Víkurfréttir - 23.11.2006, Qupperneq 16
Grétar Ólason, helsti jólaskreytir Reykjanesbæjar hefur
hafið vinnu sína við jólaskreytingarnar í ár. Hann tók
að vísu ekki fyrstu handtökin sjálfur heldur tveir herra-
menn sem réðust að öspunum hans Grétars og klæddu þær í hvít
ljósaljós fyrr í vikunni og þurftu auðvitað lyftubíl til í stór trén.
Nú styttist óðum í jólastemmninguna, fyrsti í aðventu er eftir
tíu daga og krakkar sem kaupmenn eru að komast í jólagírinn.
Verktakar Reykjanesbæjar hófu vinnu við að setja upp jólaljós á
götum bæjarins í byrjun nóvember þannig að óhætt er að segja
að talsverð vinna falli til við jólaundirbúninginn.
Víkurfréttir munu ekki láta sitt eftir liggja og eins og undanfarin ár
verður boðið upp á Jólalukku VF og verslana en í boði eru yfir 5000
vinningar að verðmæti margra milljóna króna. Stærstu vinningarnir
eru til að mynda stórt plasmasjónvarp frá Ormsson í Keflavík, 17
Evrópuflugmiðar frá Icelandair, sófasett frá Bústoð, fartölva frá
Tölvulistanum og margt fleira.
Brenton og
Berglind í
nýju Bhome
búðinni.
Hinn kunni körfuboltamaður, Brenton Birmingham úr Njarðvík og íslenska landsliðinu
hefur ásamt konu sinni Berglindi Sigþórsdóttur opnað húsgagnaverslun sem ber nafnið
Bhome.
Nýja verslunin sem er staðsett við Hafnargötu 23 í Keflavík er með vörur frá Danmörku og víðar. Um er
að ræða Qölbreytt húsgögn á góðu verði þar sem lögð er áhersla á útlit og gæði og gott verð.
Brenton segist hafa gengið með hugmyndina í maganum í nokkurn tíma en síðan ákveðið að láta slag
standa þegar þeim bauðst gott húsnæði á góðum stað, í hjarta Hafnargötunnar i Keflavík.
Berglind og Brenton buðu til opnunarhófs sl. þriðjudagskvöld þar sem margir vinir og ættingjar sam-
fögnuðu þeim. Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tækifæri. Verslunin opnaði í gær og er opin
alla virka daga til kl. 18 og 10-14 á laugardögum. Fleiri myndir úr hófínu eru á vefsíðu VF, www.vf.is.
Haldið var uppá 70 ára
afmæli Knattspyrnu-
félagsins Víðis laugar-
daginn 4. nóv. síðastliðinn í
Samkomuhúsinu Garði.
Félaginu barst fjöldi kveðja og
gjafa frá velunnurum. Sveitafé-
lagið afhenti félaginu 700.000
kr að gjöf til eflingar unglinga-
starfi, þá fékk félagið einnig
peningargjafir frá Samkaup
sem og Tryggva Einarsyni og
frú.
Þá veitti KSI eftirtöldum
að il um heiðursmerki
sambandsins. Ólafur Róberts-
son fékk silfurmerki KSÍ og
þeim Heiðari Þorsteinssyni, Sig-
urði Ingvarssyni og Sigurjóni
Kristinssyni Gullmerki KSI.
Við munum fjalla meira um
70 ára afmæli Víðis i jólablaði
Heiðursmerkjahafar KSÍ:
Sigurjón, Heiðar, Ólafur
og Jóna Sigurðardóttir
(Ingvarssonar) sem tók
við fyrir hönd föður síns.
VF í desember en okkur vantar vinsamlegast hugsa til okkar
fleiri myndir úr veislunni. svo við getum gert þeim góð
E f Garðmenn myndu skilí jólablaðinu.
16 | VÍKURFRÉTTIR , 47. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR
:TTIR DAGLEGA!