Víkurfréttir - 23.11.2006, Page 18
f # t * % I
Marta Eiríks.
Lærðu a& nota heilsuvörur og
að þekkja góðan næringarríkan mat
Nómskeið fer fram í
heilsudeild Samkaupa Njarövík
námskeið
fimmtudagskvöld
30. nóvember kl. 20:00
Skráning í síma 848 5366 WWW.pulsinn.is
VEFGALLERY
ELLERT GRÉTARSSON
www.eldhorn.is/elg
Nú í skammdeginu
þegar þunglyndið og
slenið leggst á sum
okkar, er svokölluð orkusviðs-
meðferð ein þeirra leiða sem
gæti gagnast til að vinna á því.
Guðrún Eyjólfsdóttir, hómópati
í Reykjanesbæ, segir meðferð-
ina hafa gefið góða raun en hún
byggir á því að koma á jafnvægi
á orkusviði líkamans með því
að virkja ákveðna punkta hans,
ekkert ósvipað og nálarstungu-
aðferðin byggir á nema að hér
eru ekki notaðar nálar heldar
bankað á ákveðna punkta.
„Það hefur komið í ljós að að-
ferðin er mjög áhrifarík í þeim
tilvikum þegar fólk lendir í sál-
arkreppu sem kemur upp aftur
og aftur og tengist neikvæðum
hugsunum og tilfinningum sem
grafið hafa um sig og virðast
engan endi ætla að taka,” segir
Guðrún aðspurð út í meðferð-
ina.
Hún segir dæmi um þetta and-
leg viðbrögð við dramatískri
reynslu, svo sem slysum, alvar-
legum sjúkdómum eða ýmis
konar áföllum. Aðferðin hefur
gefið góða raun við fælni, angist
og þunglyndi, flughræðslu, loft-
hræðslu, prófskrekk og innlok-
unarkennd svo eitthvað sé nefnt
af þeim huglægu vandamálum
sem hrjáð geta mannfólkið.
„Það er tilvalið að nota þessa
meðferð í mörgum öðrum
tilvikum,.s.s. til að vinna á
krónískum sársauka og draga úr
streitu. Þeir sem hafa beitt þess-
ari tækni í meðferð telja sig ná
árangri í 70-80% tilvika,” segir
Guðrún. Þeir sem vilja komast í
orkusviðsmeðferð hjá Guðrúnu
geta haft samband við hana í
síma 899 0533.
gríptu augnablikið og lifðu núna
í Evrópu eru mörg
ólík lönd sem öll
hafa sín sérkenni
Með Vodafone Passport sameinast þau í eitt
mínútuverð. Það sama og á íslandi.
Með Vodafone Passportgeta viðskiptavinir Vodafone sparað allt að
76% í útlöndum miðað við fimm mínútna símtal.
Skráðu þig strax á www.vodafone.is, komdu við í verslunum okkar, eða
hringdui 1414. Þú getur Líka skráð þig með þvíað senda SMS skilaboðin
Passportí 1900. Enginn stofnkostnaður, ekkert mánaðargjald.
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
18
VlKURFRÉTTIR 47.TÖLUBLAÐ I 27ÁRGANGUR