Víkurfréttir - 23.11.2006, Side 19
Hrafn Jökulsson skrifar:
Glaðbeittur
snillingur
heiðraður
Það hefur verið mér mikil ánægja að vinna
að skipulagningu Afmælismóts Helga Ólafs-
sonar, ásamt því kraftmikla fólki sem heldur
um stjórnvölinn í Reykjanesbæ og öðrum
þeim sem að þessari hátíð standa.
Og það er sannarlega við hæfi að við skulum
heiðra Helga Ólafsson stórmeistara og skóla-
stjóra Skákskóla íslands.
Helgi Ólafsson hefur verið kallaður mestur
listamaður íslenskra skákmanna. Að skoða
bestu skákir hans er einsog að hlusta á tón-
verk eftir Mozart eða lesa ljóð eftir Jónas
Hallgrímsson: snilldin er einhvernveginn
svo sjálfsögð, og samt er verið að gefa manni
innsýn í veröld sem enginn annar hefði getað
skapað.
Ég man fyrst eftir Helga þegar ég var gutti
að þvælast á Hótel Loftleiðum á Reykjavík-
urskákmótum áttunda áratugarins. Þá var
þessi ungi Eyjamaður bjartasta vonin í ís-
lensku skáklífi, og sannarlega átti hann eftir
að rísa undir þeim vonum sem við hann
voru bundnar.
Möguleikarnir á taflborðinu eru óendan-
legir, fleiri en allar stjörnur alheimsins, fleiri
en sandkorn jarðarinnar. Leitin að besta
leiknum í hverri stöðu útheimtir í senn ná-
kvæmni vísindamannsins og sköpunargáfu
listamannsins. Helgi Ólafsson er bæði vís-
indamaður og listamaður, og skákir hans
verða skoðaðar af ánægju og nautn um
ókomnar aldir.
Ef lýsa ætti persónunni koma ýmis orð upp
í hugann: Lítillátur, þrjóskur, gefandi, krefj-
andi, glaðbeittur.
Það er ótrúleg lífsreynsla að sitja með Helga
og fá að kynnast hvernig hugur hans vinnur.
Hann kann utan að ótölulegan fjölda af
skákum, getur vitnað í þriggja feta löng ljóð
og kann auk þess skil á mannkynssögu og
tónlist. Og allt þetta skoðar hann með sínum
sífrjóa hug, frá sínu sjónarhorni.
Þess vegna eigum við bara einn Helga Ólafs-
son. Og þegar við, á merkum tímamótum,
heiðrum þennan alhliða meistara, þá eru það
ekki affekin, fslandsmeistaratitlarnir, frammi-
staðan með landsliðinu, sigrar á skákmótum,
sem koma fyrst upp í hugann, heldur gleðin
yfir því að fá að vera samferða slíkum snill-
ingi -- lítillátum, þrjóskum, gefandi, krefj-
andi og glaðbeittum.
Skák-Helgi í Reykjanesbæ
Skákfélag Reykjanesbæjar, Skák-
félagið Hrókurinn, Hrafn Jök-
ulsson og Reykjanesbær standa
fyrir Skák-helgi í Reykjanesbæ dag-
ana 25.-26. nóvember nk.
Að auki verða grunnskólar í bænum
heimsóttir og skákin kynnt m.a. með
fjölteflum í skólunum.
Laugardaginn 25. nóvember kl. 11:00
er skákmót Skákfélags Reykjanes-
bæjar þar sem 4 efstu fá þátttöku í
afmælismóti Helga Ólafssonar í Lista-
sal Duus húsa daginn eftir. Fjöltefli
Ivan Sokolovs í Heiðarskóla verður kl.
14:00 og eru skákáhugamenn á Suð-
urnesjum hvattir til þátttöku og að
líta við í Heiðarskóla og sjá meistara
Sokolov berjast við Suðurnesjamenn.
Sunnudaginn 26. nóvember verður
Afmælismót Helga Ólafssonar haldið
í Listasal Duus húsa og hefst mótið kl.
12:00 og stendur til kl. 16:00. Mótið
er opið gestum og hvetjum við fólk til
að líta við í Listasal Duushúsa og sjá
meistarana með eigin augum berjast
til sigurs í mótinu, en vegleg verðlaun
verða í boði fyrir sigurvegara mótsins.
Eins verða skákirnar sýndar á tjaldi
í Bíósal Duus húsa og umræður um
frammistöðu keppenda ræddar af
skákspekingum.
í mótinu taka þátt eftirtaldir stór-
meistarar auk afmælisbarnsins Helga
Ólafssonar; Jóhann Hjartarson, Mar-
geir Pétursson, Ivan Sokolov, Jón L.
Árnason, Friðrik Ólafsson, Hannes
H. Stefánsson, Guðmundur Sigurjóns-
son, Hendrik Danielsen, Þröstur Þór-
hallsson, Helgi Áss Grétarsson, Lenka
Ptacnikóva, Róbert Harðarson og fl.
Mótinu verður sjónvarpað beint á sjón-
varpsstöðinni Sýn og eins á netinu.
Skákstjóri verður Gunnar Björnsson,
en útsendingu á netinu annast Halldór
Grétarsson og Kristian Guttesen. Skák-
útsendingu í sjónvarpi verður lýst af
Hermanni Gunnarssyni
Aðgangur að mótinu er ókeypis.
- - . ......-. X
Við erum geðveikt góð saman
^SPARISJÓÐURINN
- fyrir þig og þína
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VlKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 16.NÖVEMBER2006 19