Víkurfréttir - 23.11.2006, Blaðsíða 20
Margeir Pétursson
stórmeistari skrifar
Þegar Helgi
nærsérvelá
strikslær hann
heimsmeist-
urum við
Vinur minn, félagi
og keppinautur um
áratugaskeið, Helgi
Ólafsson, stórmeistari, er
nú kominn út í miðtaflið
í sínu lífi. Ekki ber kapp-
inn það þó með sér í útliti,
hann hefur lítið breyst frá
því Vestmannaeyjagosið
skolaði honum upp á mið-
borðið hér um árið og ekki
langt síðan hann vakti upp
glæsilega drottningu.
Keppnismenn ná því lengra
sem þeir eiga sér harðskeytt-
ari og öflugri keppinauta
og stöndum við Helgi og fé-
lagar okkar Jóhann Hjartar-
son og Jón L. Árnason því í
mikilli þakkarskuld hverjir
við aðra. Þetta er nú einn
af þeim hlutum sem menn
sjá betur eftirá. Það er ekk-
ert sérstaklega skemmtilegt
þegar félagarnir, sem rnaður
umgengst nærri daglega,
reyna að stöðugt að sýna
fram á að nánast hver einasti
leikur eða hugsun manns sé
byggð á mistökum og jafnvel
heilsteyptri ranghugmynd.
Slíkt aðhald er þó líklega ein
besta hvatning til dáða sem
hægt er að hugsa sér.
Á þessum árum, 1975-1995,
ríkti afar harður keppn-
isandi hjá okkur sem vorum
í fremstu röð íslenskra skák-
manna, ekki síst á milli mín
og afmælisbarnsins. Metn-
aðurinn var mikill, mikið
var á sig lagt við æfingar og
keppni og gagnrýni á félag-
ana hvergi spöruð. Þetta
var harður skóli sem varð að
góðu veganesti.
Þrátt fyrir þetta vorum við
yfirleitt hinir bestu félagar
utan skákborðsins. Ljóðlín-
urnar „í góðsemi vegur þar
hver annan“ áttu einkar vel
við um okkur. Það kom þó
vissulega oft fyrir að skákir
Helga væru hreinlega yfir
alla gagnrýni hafnar. Þegar
hann nær sér vel á strik slær
hann heimsmeisturum við.
Eftir að ég lagði niður vopn
á skákborðinu hef ég mjög
hvatt Helga til að halda uppi
merki okkar vígamóðu skák-
kynslóðar, enda fyrst í mið-
taflinu sem átökin hefjast
fyrir alvöru.
HELGIÓLAFSSON STÓRAAEISTARI í SKÁK Á TÍAAAMÓTUIVl OG TEFLIR í REYKJANESBÆ
Sextugasti og fimmti reiturinn
Fyrsti opinberi skákvið-
burðurinn sem ég sótti
var Skákþing ísiands
árið 1968 sem haldið var í dans-
skóla Hermanns Stefánssonar.
Ég man að ég settist niður við
borð í salnum og fór nokkrum
sinnum yfir „Ódauðlegu skák-
ina“ sem ég kunni utan að.
Nokkrum vikunr síðar var ég
nýfluttur og staddur í Höllinni í
Vestmannaeyjum þar sem frarn
fór fjöltefli Evgenij Vasjukov.
Ég staldraði lengi við skák sem
Einar klink tefldi. Þegar sovéski
stórmeistarinn drap peð með
tilþrifum sneri Einar sér við og
spurði: „Má þetta?“
„Hva, veistu ekki hvað þetta er.
Þetta er framhjáhlaup," sagði
ég stoltur.
Snemma hausts '68 fór ég á
mína fyrstu skákæfmgu í Dríf-
anda. Á leiðinni gekk ég fram
á lundapysju. Eg tók hana
upp, setti í pappakassa og fór
með hana heirn og síðan aftur
niður í Drífanda. Mér fannst
ég vera orðinn Eyjapeyi. Ég var
hinsvegar fremur lítið fyrir að
spranga sem var hitt skilyrðið,
treysti hvorki reipinu né sjálfum
mér. Hinsvegar sá ég Ásmund
Friðriksson einu sinni stíga í
sprönguna í efsta þrepi og láta
sig vaða niður. Það var tilþrifa-
mikil og hrikaleg sjón.
Á langri leið hef ég komist að
eftirfarandi niðurstöðu: að tapa
er ekki hið versta sem getur
komið fyrir mann, því eins og
segir í kvæðinu sem ég orti á
flugi yfir Las Vegas, The player
must go down.
Þeir sem hafa teflt mikið um
dagana vinna óumflýjanlega
margar skákir og flestar þeirra
eru einskis virði; til að tefla góða
skák þarf maður að finna 65 reit-
inn. Ég sá þennan ágæta titil í
grein eftir Robert Byrne. Eins og
ég skil það þá liggur 65 reiturinn
fyrir utan hið venjulega sjónsvið
skákmannsins. Hann er kannski
beint fyrir framan okkur en við
viljum ekki sjá hann. Skákmenn
mæta stundum til leiks bólgnir
af þekkingu en sköpunargáfan
varð eftir á hótelherberginu.
„Hlekki brýt ég hugar,“ sagði
skáldið.
Ég var beðinn að senda inn
nokkrar skákir. Ég fann 65. reit-
inn í þessum skákum. Frægasti
leikur sem ég hef leikið er án
efa gegn Levitt, 17. Hxe6. Hann
hefur ratað inn í nokkrar bækur
um bestu leiki skáksögunnar.
Ólympíumótið á Möltu 1980
Jan Timman - Helgi Ólafsson
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Bg5 Bg7 4.
Rbd2 c5 5. e3 cxd4 6. exd4 0-0
7. Bd3 Rc6 8. c3 d6 9. 0-0 h6
10. Bh4 Rh5 11. Hel f5 12. d5
Re5 13. Bc2 Rf4 14. Rxe5 dxe5
15. Bg3 g5 16. Bxf4 gxf4 17. f3
Bd7 18. Bb3 b5 19. Khl Db6
20. Hcl Hac8 21. c4 a6 22. cxb5
axb5 23. Rbl Hxcl 24. Dxcl
Hc8 25. Dd2 Kf8 26. Rc3 Bf6
27. Rdl b4 28. Rf2 Bh4 29. Kgl
Kg7 30. De2 e4 31. fxe4 fxe4
32. Hfl f3 33. gxf3 Bh3 34. d6
exd6 35. Hdl Hf8 36. Khl Dxf2
37. Hgl
37... Dxgl 38. Kxgl exf3
Hvítur gafst upp.
Ólympíumótið í Saloniki 1984
Helgi Ólafsson - Vlastimil Hort
Drottningarbragð
1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 dxc4 4.
Rc3 a6 5. e4 b5 6. e5 Rd5 7. a4
Rxc3 8. bxc3 Dd5 9. g3 Bb7 10.
Bg2 Dd7 11. Ba3 Bd5 12. 0-0
Rc6 13. Hel g6 14. Bc5 Hd8 15.
axb5 axb5 16. Rg5 Bxg2
17. e6 fxe6 18. Kxg2 Dd5 19.
Df3 Dxf3 20. Kxf3 Hd5 21. Rxe6
Kd7 22. He2 Bh6 23. Hael Ha8
24. g4 Bg5 25. Rxg5 Hxg5 26.
Bxe7 Hd5 27. Bc5 b4 28. Ke4
Hg5 29. cxb4 Hxg4 30. Kd5 Hb8
31. Kxc4 Hxd4 32. Bxd4 Hxb4
33. Kc5 Hxd4 34. He7 Rxe7 35.
Kxd4 Kd6 36. Ke4 Ke6 37. He3
c6 38. Hh3 h5 39. Kd4 h4 40.
Ke4 g5 41. f4 Kf6 42. íxg5 Kxg5
43. Hc3 Kg4 44. h3 Kg5 45. Hc5
Kf6 46. Kf4 Rg6 47. Kg4 Re5 48.
Kxh4 Kf5 49. Kg3 Ke4 50. h4
Kf5 51. h5 Kf6 52. Kh4 Rf3 53.
Kg4 Re5 54. Hxe5
Svartur gafst upp.
Reykjavík 1986
Bandaríkin - Norðurlönd
Larry Christiansen - Helgi
Ólafsson
Drottingarbragð
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4.
Rc3 Be7 5. Bf4 0-0 6. e3 c5 7.
dxc5 Bxc5 8. a3 Rc6 9. b4 Be7
10. Dc2 Bd7 11. Be2 Hc8 12. O-
O dxc4 13. Hadl De8 14. Hd2
a5 15. b5
Rb4 16. axb4 axb4 17. Re4 b3
18. Rxf6 Bxf6 19. Dbl c3 20.
Hxd7 Dxd7 21. Dxb3 c2 22. e4
Hc3 23. Da4 Hfc8 24. Bcl h6
25. e5 Be7 26. Dg4 Kh8 27. Dh5
Ba3 28. Dg4 Bxcl 29. Hxcl Hb3
30. De4 Hbl 31. Hxbl cl=D
32. Rel Dcd2 33. Bd3 g6 34. h4
Dd5 35. Dg4 Dxe5 36. Rf3 Def4
37. Dxf4 Dxf4 38. Bfl Hcl 39.
g3 Hxfl
Hvítur gafst upp.
Reykjavíkurmótið 1990
Gata Kamsky - Helgi Ólafsson
Grunfelds vörn
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Bg5 Bg7 4.
Rbd2 d5 5. e3 0-0 6. Bd3 Rbd7
7. h4 De8 8. Bf4 c5 9. c3 Rg4 10.
h5 e5 11. dxe5 Rdxe5 12. Be2
Bf5 13. hxg6 fxg6 14. Rh4 Bd3
15. Rdf3 Bxe2 16. Dxe2
Helgi einbeittur við skákborðið.
Hxf4 17. exf4 Rd3 18. Kd2 Dxe2
19. Kxe2 Rxf4 20. Kd2 Rxf2 21.
Hhfl R4d3 22. g4 c4 23. g5 He8
24. Habl b5 25. Rg2 Re4 26.
Kdl Rg3 27. Hgl Rf2 28. Kcl
Re2 29. Kd2 Rxgl 30. Hxgl b4
31. cxb4 Bxb2 32. Rf4 Hf8 33.
Ke3 Hxf4 34. Kxf4 Rh3 35. Ke3
Rxgl 36. Rxgl d4 37. Ke4 d3 38.
Rh3 Ba3 39. Kd4 Bxb4 40. Kxc4
d2 41. Rf2 Be7 42. Kd3 Bxg5 43.
Ke2 Bf4 44. Rd3 g5
Hvítur gafst upp.
Reykjavíkurskákmótið 1990
Helgi Ólafsson - Jonathan
Levitt
Drottningarindversk vörn
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. Rf3 c5 4.
g3 b6 5. Bg2 Bb7 6. 0-0 Be7
7. d4 Re4 8. Rxe4 Bxe4 9. Bf4
0-0 10. dxc5 bxc5 11. Dd2 Db6
12. Hfdl Hd8 13. De3 Db7 14.
Bd6 Bxd6 15. Hxd6 Dxb2 16.
Hadl Db7
17. Hxe6 fxe6 18. Rg5 h6 19.
Rxe4 Rc6 20. Rxc5 Dc7 21.
Rxd7 Hac8 22. Dxe6 Kh8 23.
Be4 Re7 24. Hd6 Dxc4 25. Dxe7
Dcl 26. Kg2 He8 27. Df7 Hxe4
28. Hg6
Svartur gafst upp.
20 IVÍKURFRÉTTIR í 47.TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!