Víkurfréttir - 23.11.2006, Blaðsíða 21
ífllnskra
Hélgi[01atssonlíslénskáði
þalbókfsemimvaðlvíðast
hefurafariðfáTseinni
arurnfSkak<og mat,
eftiryAnatolyiKarpov.
Hrókurinn og
Edda utgafa
naf áTgef i ð/20
þus.eintok
af[bokinniitil fjögurra
arganga islenskralbarna:
Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar:
Skák-Helgi íReykjanesbæ
Ágœta skákáhugafólk.
Það er mikið fagnaðarefni að Reykjanesbær
hefur orðið fyrir valinu sem keppnisstaður fyrir
Afmælismót Helga Ólafssonar stórmeistara
og Skák-Helgi dagana 25. og 26. nóvember.
Undanfarin ár hefur Reykjanesbær stutt vel
við bakið á Skákfélagi Reykjanesbæjar með
ýmsum hætti og m.a. gert samning við félagið
um kynningu á skákíþróttinni með því að
efna til skákmóta og fræðslu fyrir bæjarbúa.
Samkvæmt upplýsingum frá forystu-
mönnum Skákfélagsins hefur þessi samn-
ingur verið einn stærsti liðurinn í að efia
félagið og skákíþróttina í Reykjanesbæ.
Undanfarin ár höfum við unnið að því að byggja
upp menningar- og listamiðstöð í Duushúsum
þar sem mótið fer fram.
Það á því vel við að aðal-
keppnin sé haldin þar,
því að undanförnu hafa
stórhuga menn á borð
við Hrafn Jökulsson, að öðrum ólöstuðum,
verið í fararbroddi við að byggja upp og kynna
skákíþróttina bæði hér innanlands og ekki
síður hjá nágrönnum okkar á Grænlandi.
Ég óska Helga Ólafssyni stórmeistara til ham-
ingju afmælið og þakka öllum þeim sem hafa
staðið að undirbúningi Skák-Helgar hér í bæ.
Mót sem þetta mun án efa efla enn frekar
skákíþróttina í Reykjanesbæ og jafnvel víðar.
Með skákkveðju,
Árni Sigfússon
bœjarstjóri.
VvA.'v ð
Ivan Sokolov er sérstakur gestur á
Skák-Helgi í Reykjanesbæ:
Aufúsugestur og
ofurstórmeistari
Hrafn Jökulsson skrifar
Ivan Sokolov er sérstakur gestur á Afmælismóti Helga Ólafs-
sonar. Vart þarf að kynna hann fyrir íslendingum, svo mjög
sein þessi geðþekki meistari hefur auðgað íslenskt skáklíf á
síðustu áratugum.
Ivan Sokolov fæddist í Sarajevo, höfuðstað Bosníu-Herzegóvinu, í
júní 1968, af króatísku og búlgörsku foreldri. Bosnía var þá hluti af
Júgóslavíu, sem var eitt mesta skákland veraldar og hinn ungi Ivan
varð snemma - rétt einsog Helgi Ólafsson á íslandi - bjartasta von
heimamanna.
Hann komst ungur í hóp allra bestu skákmanna heims og hefur náð
höfuðleðrinu af kempum á borð við Kasparov og Anand.
Þegar borgarastyrjöld hófst í Bosníu árið 1992 flutti Sokolov til
Hollands og er nú hollenskur ríkisborgari og landsliðsmaður með
hinu sterka liði þeirra.
Sokolov leiddi Skákfélagið Hrókinn til sigurs á Íslandsmóti skákfé-
laga þrjú ár í röð, 2002, 2003 og 2004, og var að auki lykilmaður við
skipulagningu sterkra alþjóðlegra skákmóta á íslandi, drifkraftur í
öllu skákstarfi Hróksins, Grænlandsfari þegar Hrókurinn hóf land-
nám skákiistarinnar þar árið 2003 og allsherjar hugmyndabanki í
öllu sem félagið tekur sér fyrir hendur.
Helgi og Sokolov eru gamlir vinir, þótt vinskapur sé ekki það fyrsta
sem kemur upp í hugann þegar skákir þeirra eru skoðaðar. Þar
ræður leitin að sannleikanum ríkjum, leitin að rétta leiknum - leitin
að leiðinni til sigurs.
Við skákborðið öðlaðist hann snemma viðurnefnið Ivan grimmi, en
þar fyrir utan væri engin lýsing íjær sanni á þessum fjölgáfaða og
bráðskemmtilega vini vorurn.
Ivan Sokolov er mestur aufúsugestur allra erlendra skákmanna á ís-
landi. Það er stórkostlegt að fá þennan litríka snilling til að taka þátt
í Skák-Helgi í Reykjanesbæ.
Þu i utras
Kynntu þér ferðatilboð í Vildarþjónustunni
*
Við lögum okkur að þínum þörfum!
^SPARISJOÐURINN
Vildarþjónusta
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLýSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIKURFRÉTTIR 1 FIMMTUDAGURINN 23. NÓVEMBER 2006