Víkurfréttir - 23.11.2006, Blaðsíða 26
stjóra að fullu reiknuð inn í upp-
gjörið, sem að sjálfsögðu var
ekki áætlað fyrir í upphafi árs.
Ekki getur þetta flokkast undir
sanngjarnan samanburð.
„Árshlutaskýrslan
sem E-listinn lét
gera erskrípa-
leikuraf verstu
gerðtil að slá ryki
í augu íbúa og
sverta ímynd bæj-
arfélagins sem
H-listinn hefur
byggt upp á und-
anförnum árum.“
Gleymdist að minnast 70
milljón króna tekjur sem
fylgja 60 fjölskyldum sem eru
að flytja í hús sín á þessu og
næsta ári?
í skýrslunni er kafli um fram-
tíðarþróun! Annað hvort
hefur skýrsluhöfundur ekki
fengið upplýsingar um að þær
60 íbúðir sem eru í byggingu í
Vogum og búið er að selja eða
hann hefur gleymt að minnast á
þær 70 milliónir í árstekiur sem
áætla má að þeim fylgi. Og það
sem meira er grunnskólinn og
leikskólinn eru tilbúnir til að
taka við þeim nemendum sem
fjölskyldunum fylgja þannig að
stór hluti þess kostnaðar sem
fylgir fyrirsjáanlegri fjölgun er
þegar kominn inn í rekstur bæj-
arfélagsins.
H-listinn hefur staðið fyrir
einni mestu fjölgun í sögu
sveitarfélaga á Islandi.
Á s.l. 7 árum hefur íbúafjölg-
unin verið ein sú mesta á
landinu eða rúmlega 40%.
Framundan er rúmlega 20%
fjölgun til viðbótar, þegar flutt
verður inn í hús á þeim lóðum
sem H-listinn stóð fyrir út-
hlutun á. E-lista meirihlutinn
hefur ekki frá því að hann tók
við úthlutað eini einustu lóð
undir íbúðabyggingar, þrátt
fyrir loforð um aukið framboð
lóða til einstaklinga.
H-listinn vissi við síðustu
kosningar að reksturinn yrði í
járnum á þessu og næsta ári og
lofaði því ekki upp í ermina á
sér með meiriháttar lækkun á
þjónustugjöldum eins og E-list-
inn gerði.
H-lista fulltrúar í bæjarstjórn
hafa alltaf verið vel meðvitaðir
um rekstur bæjarins frá einum
tíma til annars. Þeir vissu eins
og allir sem hefðu nennt að
kynna sér ársreikning bæjar-
ins fyrir árið 2005 að miklum
vexti fylgdi mikill kostnaður
og nauðsynlegt væri að sýna að-
hald uns tekjur færu að skila
sér í meira mæli. Þetta virðast
frambjóðendur E-listans ekki
hafa kynnt sér áður en lagt var
af stað með kosningaloforð. E-
listinn lofaði ábyrgðarlaust fríu
fæði í skólanum og frítt í sund
fyrir börnin. Svo kennir hann
H-listanum um að þörf verði á
að skera niður þjónustu næstu
ár. Það vakti undrun hvernig
frambjóðendur E-listans töluðu
í kosningabaráttunni, þar sem
þeir virtust helst halda að meg-
inverkefni bæjarstjórnar væri
að finna leiðir og aðferðir til að
eyða öllum þeim fjármunum
sem þeir virtust halda að flæddu
í bæjarkassann. Nú eru þeir að
►►Jón Gunnarsson ogJóhanna Reynisdóttir skrifa
eignirnar sem um ræðir til baka
og eðlilegt að það sé skoðað á
5 ára fresti hvað sé hagstæðast
hverju sinni.
Það kostar mikla peninga
að stækka hratt og á meðan
á því stendur er reksturinn í
járnum. Það hefur aldrei verið
leyndarmál.
Árið 2004 var tekin ákvörðun í
hreppsnefnd að stefna að 30%
fjölgun íbúa vegna gríðarlegrar
eftirspurnar eftir húsnæði t
Vogum. Þessi ákvörðun kallaði á
stækkun grunnskólans og bætta
aðstöðu fyrir frístundaskóla og
félagsmiðstöð. Það lá ljóst fyrir
í upphafl að afla þyrfti fjár til að
gera þetta mögulegt. Þrír mögu-
leikar voru í stöðunni. Að selja
eignir til fasteignafélags og gera
leigusamning til langs tíma,
selja hlutafé í Hitaveitu Suður-
nesja eða að taka lán til verks-
ins. Fyrir valinu varð að selja
eignir og var það samþykkt sam-
hljóða í hreppsnefnd 11. maí
2004. Samþvkkt athugasemda-
laust af tveimur af núverandi
bæiarstiórnarmönnum E-list-
ans. þ.á.m. oddvita hans. Það er
ekkert leyndarmál að það kostar
mikla peninga að stækka hratt
og á meðan á þeim aðgerðum
stendur verður reksturinn í
járnum. Mjög erfitt er að áætla
rekstrarkostnað nákvæmlega
í slíkri stöðu, þar sem ekki er
vitað nákvæmlega hvenær íbú-
arnir flytja til bæjarfélagsins.
Við hraða stækkun þá falla
gjöldin vegna hennar til, talsvert
löngu áður en tekjur skila sér og
mildlvægt að gera sér grein fyrir
þeirri staðreynd en fara ekki á
taugum.
Að bera saman rekstur bæjar-
félags, fyrri hluta árs og seinni
hluta árs, er eins og að bera
saman epli og appelsínur.
Það er í raun engin sanngirni
í því að skipta rekstri sveitarfé-
lagsins í tvo jafna hluta. Sum-
arið sem fylgir að mestu seinni
hluta ársins er mun léttari í
rekstri vegna þess að grunnskól-
inn, frístundaskólinn og félags-
miðstöðin eru ekki í rekstri.
Afborganir lána eru greiddar á
seinni hluta ársins vegna þess
að tekjurnar eru á þeim hluta,
um 20% hærri.
Aukning skulda lýst í mörgum
orðum en ekki einu orði
minnst á 40 milljón króna
eignaaukningu.
Höfundur skýrslunnar sá
ástæðu til að greina frá helstu
niðurstöðum fremst í henni.
Hann greinir frá rekstrarniður-
stöðu, veltufé frá rekstri, heild-
arskuldum og veltufjárhlutfalli.
Hann sér ekki ástæðu til að
greina frá;
* Eignaaukningu upp á 40 millj-
ónir króna.
* Að 32 milljónir af skamm-
tímaskuldum sé tilkomin vegna
óinnheimtra tekna vegna jöfn-
unarsjóðsframlaga sem koma til
greiðslu seinna á árinu.
* 30 milljóna króna gatnagerða-
gjöldum sem eiga að koma til
greiðslu á árinu vegna úthlut-
unar á iðnaðarlóðum við nær
tilbúna götu.
Bæjarfélagið verður fyrir 22
milljóna kr gengistapi vegna
þróunar krónunar fyrr á þessu
ári og 4% verðbólgu á tímabil-
inu. Hér er um reiknaða stærð
að ræða sem breytist með gengi
íslensku krónunnar og skiptir
miklu í uppgjörum þeirra sem
skulda að hluta eða öllu leiti í
erlendum gjaldmiðli. Miklar
sveiflur hafa verið á gengi ís-
lensku krónunnar og ekki fyr-
irséð hver þessi reiknaða stærð
verður í lok árs. Erfitt er í upp-
hafi árs að áætla nákvæmlega
hver gengisþróunin verður og
ef einhver væri þeim hæfileika
búinn að vita það nákvæmlega
þá yrði hann fljótt ríkur.
Svona til upplvsinga þá lenda öll
sveitarfélög á landinu í óveniu-
miklu gengistapi og verðbóta-
greiðslum á þessu ári. ekki bara
Vogarnir!
Röng áætlun í skýrslunni um
launakostnað
I skýrslunni kemur fram að
launakostnaður hafi farið 24%
fram úr áætlun. Þetta er alrangt,
inn í áætlunina vantar bókun
bæjarráðs frá 2. mars þar sem
bæjarráð samþykkir samhljóða,
einnig oddviti E-listans. 12
milljón króna auka fjárveitingu
vegna hækkunar á starfsmati.
Þar að auki eru biðlaun bæjar-
Ef færa ætti framreiknaða leigu-
skuldbindingu með skuldum
mætti líkja því við að hjón sem
keyptu búseturétt í Búmanna-
kerfinu og greiddu 100 þúsund
á mánuði í leigu og rekstur íbúð-
arinnar, skulduðu jafnvirði 30
ára leigu! Hægt er að kaupa
Isíðasta tölublaði Víkur-
frétta var vitnað í skýrslu
um árs hluta upp gjör
Sveitarfélags-
ins Voga. Þar
var dregin upp
dökk mynd
af stöðu þæj-
ar fé lags ins.
Bæjarfélaginu
sem skuld ar
minnst á íbúa
af sveitarfélög-
unum fimm á
Suðurnesjum
ef bornir eru
saman ársreikn-
ingar þeirra
fyrir árið 2005,
á s a m t þ v í
að vera með
sterka eiginfjárstöðu. Samt
eru Vogar fámcnnasta sveit-
arfélagið og með næst lægstu
tekjur á íbúa samkvæmt árs-
reikningum 2005.
Skuldir á íbúa í Vogum hafa
lækkað úr 670 í 505 þúsund
á íbúa á milli áranna 2003-
2005 og eignfjárhlutfall hefur
hækkað úr 30% í 40% á sama
tíma.
Ekki getur þetta flokkast undir
slæman árangur á þriggja ára
tímabili þar sem vöxtur hefur
verið gríðar mikill!
Skýrsluhöfundur er mjög upp-
tekinn af því að reikna húsa-
leigu næstu 30 ára inn í skuldir
bæjarfélagsins. Þetta er gert í til-
raun til að sverta stöðu bæjarfé-
lagsins en samkvæmt reiknings-
skilavenju sem endurskoðandi
Voga og margir aðrir endurskoð-
endur bæjarfélaga styðjast við,
þá er getið um skuldbindingar
vegna leigusamninga í sérstakri
skýringu í ársreikningi.
„Það kostar
mikla peninga
að stækka hratt
og á meðan á því
stendurerrekstur-
inn íjárnum. Það
hefur aldrei verið
leyndarmál."
VÍKURFRÉTTiR Á NETÍNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTiR DAGLEGA!
26 | VÍKURf RÉTTIR 47.TÖIUBIAÐ 27.ÁRGANGUR