Víkurfréttir - 23.11.2006, Page 27
vakna upp við það, að rekstur
smárra bæjarfélaga í miklum
vexti er erfiður og kallar á mik-
inn tíma og kraft þeirra sem
taka slíkt að sér.
E-listinn er upptekinn af því
að sverta ímynd bæjarfélags-
ins sem hann er kosinn til að
stjórna.
Árshlutaskýrslan sem E-listinn
lét gera er skrípaleikur af verstu
gerð til að slá ryki í augu íbúa
og sverta ímynd bæjarfélagins
sem H-listinn hefur byggt upp
á undanförnum árum. Allar
upplýsingar sem fram koma i
árshlutaskýrslunni lágu fyrir og
því er gerð hennar einungis pen-
ingaeyðsla hjá E-listanum. Ekki
laðar þessi neikvæða umræða
nýja íbúa til sveitarfélagsins, er
það? E-listanum væri nær að
eyða tíma sínum og orku í að
halda áfram öflugri uppbygg-
ingu í stað þess að standa í enda-
lausu niðurrifi á því sem áður
hefur verið gert. Þeir sem bjóða
sig fram til erfiðra ábyrgðastarfa
þurfa að axla þá ábyrgð sem
fylgir og vera tilbúnir til að
eyða bæði tíma og kröftum í
að ná árangri. Ibúar í Vogum
bíða enn eftir því að sjá hvort
núverandi meirihluti hefur kraft
til áframhaldandi uppbyggingar
bæjarins eða hvort hann ætlar
einungis að sitja vælandi yfir því
að verkefnið sé erfitt.
Jón Gunnarsson
fyrrverandi oddviti H-listans.
Jóhanna Reynisdóttir
fyrrverandi bæjar-
stjóri í Vogum.
►► Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar:_
Hálshnykkingar skapa áhættu
Nýjar rannsóknir kynda
nú und ir gaml ar
grunsemdir um að
svoköll uð
hnykkingar-
meðferð á háls-
hryggjarliðum
geti leitt til
heilablóðfalls.
í kjölfarið
hafa efasemdir
vaknað um heim allan um að
hálshnykkingar geti falið í sér
vissa áhættu, ekkert síður en
skurðaðgerðir.
Það eru fyrst og fremst nýlegar
rannsóknir vísindamanna
við Kaliforníu-háskóla í San
Francisco sem vakið hafa athygli
á þessu. Læknar rannsökuðu
55 sjúklinga, sem látist höfðu
af völdurn heilablóðfalls vegna
skaddaðrar hálsslagsæðar og
sannreyndu að niu þeirra höfðu
farið í háls-hnykkingarmeðferð
undangenginn mánuð. Það er
fimm sinnum hærri tíðni en töl-
fræðilega hefði mátt búast við.
Þrúgaðir af þessum stað-
reyndum hafa margir kíróprakt-
orar farið að líta í eigin barm
af meiri gagnrýni en áður og
margir hafa jafnvel viðurkennt
að þótt meðferðin sé fram-
kvæmd á réttan hátt, sé sannar-
lega ákveðin áhætta til staðar.
Kírópraktorar beita fyrst og
fremst tveimur aðferðum í með-
ferð sinni. Annars vegar er um
að ræða liðkun og hins vegar
liðlosun með hnykkingu. Með
liðkun hreyfir kírópraktorinn
liðinn varlega með markvissum
hreyfingum að endimörkum
mögulegrar hreyfigetu. Hann
hreyfir hann þó ekki lengra en
eðlileg hreyfimörk liðsins leyfa,
sem um leið eru sársaukaþol-
mörk viðkomandi sjúklings.
Liðlosun felur það í sér að færa
liðinn yfir hindrunina með
snöggum, markvissum rykk.
En afleiðingarnar geta orðið ör-
lagaríkar því grunur leikur á að
liðlosun á hálsliðum geti valdið
heilablóðfalli. Gagnrýnendur
þessarar aðferðar óttast að hinn
kröftugi rykkur geti skemmt
eina hinna fjögurra aðalsla-
gæða, sem sjá heilanum fyrir
blóði. Við það getur blóðtappi
myndast í slagæðinni, sem getur
stöðvað blóðflæði til heilans.
Um heim allan fara efasemdir
ört vaxandi varðandi þessa
“mjúku aðferð”. Kanadískir
taugalæknar hafa formlega gefið
út tilkynningu, þar sem varað
er eindregið við þeim hættum,
sem fylgt geta háls-hnykkingar-
meðferð. Einnig horfa regnhlíf-
arsamtök aðila heilbrigðisstétta
í Evrópu kvíðafull til þeirrar
áhættu, sem meðferð af þessu
tagi hefur í för með sér og getur
leitt til heilablóðfalls og jafnvel
dauða.
Almennt er fólki ekki ráðið frá
því að gangast undir meðferð
kírópraktora en þó er vert að
benda fólki á að vera visst um
að sá meðferðaraðili, sem beitir
hnykkingarmeðferð, hafi til-
skilin leyfi kírópraktors. Samt
sem áður á að bjóða sjúklingum
upp á opna umræðu og veita
þeim skriflegar upplýsingar urn
mögulegar áhættur, sem háls-
hnykkingarmeðferðum fylgja.
Ef til vill hugsa þá menn og
konur sig tvisvar um áður en
sú ákvörðun er tekin að gangast
undir slíka meðferð.
Höfundur er náttúrulœknir, sál-
frœSingur og höfundur bókar-
innar „Lœknum með höndunum
- nútíma þrýstimeðferS".
Birgitta Jónsdóttir Klasen,
náttúrulæknir og rithöfundur.
Höfum opnað nýja húsgagnaverslun
að Hafnargötu 23 í Keflavík
Hafnargata 23 • Reykjanesbær • Sími 421 8899
Opnunartímar: Mánudaga - föstudaga kl. 11-18
Laugardaga kl. 11-14
STÆRSTA FRETTA- OG AUGLYSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 23. NÓVEMBER 20061 27