Víkurfréttir - 23.11.2006, Page 28
Til þess að fullnægja líklegri
vaxtarþörf hugsanlegs 250.000
tonna álvers í Helgvík má ætla
að virkja þurfi sem nemur um
500 - 600 MW í uppsettu afli.
Það samsvarar 4-7 jarðvarma-
vikjunum til viðbótar við þær
sem þarf til þess að knýja áfang-
ana tvo sem nú eru til umíjöll-
unar.
Lítil umræða hefur farið fram
um þessi mál á meðal íbúa á
Suðurnesjum. Sem íbúi á svæð-
inu og framkvæmdastjóri sam-
taka sem vilja stuðla að lýðræð-
islegri og upplýstri umræðu
um mál af þessu tagi velti ég
því fyrir mér hvort almenn sátt
sé um áformin á meðal Suður-
nesjamanna. Áformaður er íbúa-
fundur um áformin að kvöldi
27. nóvember í sveitarfélaginu
Garði.
Bergur Sigurðsson,
framkvœmdastjóri
Landverndar.
►► ErlingurJónssson skrifar:
Öflugt uppbyggingarstarf
á Suðurnesin
Að geta hjálpað einum
sem getur hjálpað
öðrum hlýtur að vera
frábær tilfinning, er það ekki ?
Tökum hönd-um saman og
stuðlum að góðu uppbygging-
arstarfi hér á Suðurnesjum.
Með því að hjálpa þeim einstak-
lingum sem þurfa á því að halda
og vilja, erurn við um leið að
vinna gegn áfengis- og fíkniefna-
vandanum. Með því að hrinda
þessu í framkvæmd myndi for-
varnarforystan hugsanlega geta
(vonandi ) minnkað neysluna,
kaupin, söluna, afbrotin og jafn-
vel haft áhrif á innflutning á
öllum þessum viðbjóði. Eftir að
einstaklingar hafa fengið allan
þann stuðning í eftirmeðferð
sem þarf og byggt sig upp and-
lega og líkamlega þurfa þau að
gera öryggisnet í kringum sig,
til að viðhalda þeim bata sem
þau hafa náð. Forðast þá sem
ekki eru tilbúnir að leita sér að-
stoðar, og sérstaklega þá sem
vilja hafa þau enn í neyslunni.
(sölumenn) Þetta á einnig við
um aðstandendur og aðra sem
tengjast þeim einstaklingum á
einhvern hátt. Þannig lít ég á
þessa aðstoð. (hjálp) Það má
einnig líta á það þannig að það
hlýtur að vera mikill sparnaður
í því, t.d. ef löggæslan okkar
þurfi ekki að vera að eltast við
og sitja um smáfólkið. Þeir geta
þá frekar einbeitt sér að þeim
stóru, eða vinna að forvarnar-
málum og öðru því sem er í bið,
og ekki hefur verið hægt að kom-
ast yfir. Ég efast ekki urn að for-
svarsmenn byggðarlagana eru
að huga að þessum málaflokk.
Þeir hljóta einnig að gera sér
grein fyrir öllum þeim skaða og
hættum sem hljótast af þessum
völdum og þeim kostnaði og
andlegri vanlíðan sem þessu
fylgir. Athugið að góð heilsa
sparar peninga.
Það væri gott ef almenningur
fengi að sjá einhverjar upplýs-
ingar frá þeim forsvarsmönnum
sem hafa með þessi mál að gera
Hvort að eitthvað sé að gerast
í þessum málum og ef svo er, í
hvaða farvegi þau eru.
Nú eru jólin að nálgast, árstíð
sem á að vera tími gleði og
friðar, en er einnig mjög erfiður
tími fyrir marga sem þjást af
fíkn, þunglyndi, kvíða og fl.
Hvernig væri að við tækjum
okkur saman og sínum sam-
stöðu okkar og styrk í þessum
málum. Höldum kraftmikinn
og öflugan opin fund um upp-
byggingu, forvarnir og fræðslu.
Fund þar sem allir áhugasamir
Suðurnesjabúar sameinast í
baráttu sinni gegn fíkn og fíkni-
efnum og fyrir stuðningi til
þeirra sem þurfa á honum að
halda.
Það eru sem betur fer margir
sem hafa snúið við blaðinu og
lifa góðu lífi, þeir verða hins-
vegar að fara varlega og gleyma
sér ekki. Það er auðvelt og hefur
farið illa fyrir sumum sem hafa
gleymt sér, því það getur gerst
hratt. Til að fyrirbyggja að það
gerist er t.d. tilvalið að mæta á
fundi og/eða hjálpa öðrum.
Góð samvinna skilar sér, þó svo
að við getum ekki staðið saman
um þingmennina okkar, þá efast
ég ekki um að við getum staðið
heil saman að þessu mikilvæga
verkefni.
Suðurnesjamenn stöndum
saman. Við getum þetta.
Erlingur Jónsson.
►► Bergur Sigurðsson skrifar:
►► Ásgeir M. Hjálmarsson skrifar:
Félag um munnlega sögu og munnlegar heimildir
Of lítið álver í Helguvík?
af atburðum sem þeir hafa
lifað eða heyrt aðra segja frá.
Áhersla er lögð á að safna inn
frásögnum sem varðveist hafa
í hljóðupptökum af hvaða tagi
sem er, þ.m.t. á vaxrúllum,
grammafónplötum, segul-
böndum, geisladiskum, mynd-
böndum, kvikmyndafilmum og
á stafrænu formi.
Byggðasafn Garðskaga hefur
áhuga á því að taka þátt í þessu
verkefni, með það að markmiði
að varðveita sögu Garðmanna
sem best.
Safnið hefur nú þegar yfir að
ráða dálitlu af efni sem getur
passað inn í þetta verkefni. Nú
vill Byggðasafnið leita til Garð-
búa og annara þeirra sem telja
sig hafa í fórum sínum ein-
hverjar upptökur aða heimildir,
sem þeir vilja lána til afritunar
þ.e.a.s. frásagnir af atburður úr
Garðinum.
Öllum frumgögnum verður
skilað aftur, nema viðkomandi
óski eftir því að þau verði varð-
veitt í Miðstöðinni. Gert er ráð
fyrir að Miðstöð munnlegrar
sögu taki til starfa í lok janúar
2007. Hafa má samband við und-
irritaðann, í síma 8942135 eða
netfang gardskagi@simnet.is
Með góðri kveðju
Ásgeir M. Hjálmarsson
forstöðumaður
Byggðasafns Garðskaga.
Uppi eru áform um
að byggja álver með
250.000 tonna fram-
leiðslu getu
í Helg vík.
Þ a ð h e f u r
lengi legið
fyrir að til
þess að njóta
hag kvæmni
stærðarinnar
þurfa álver
að vera talsvert stærri en sem
þessu nemur og því er viðbúið
að stækka þurfi upp í u.þ.b.
500.000 tonn eða svo áður en
langt um líður.
Þörf álvera til þess að ná fram-
leiðslugetu nærri 500.000
tonnum kemur t.d. fram í
skýrslu iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra um framgang verk-
efna á sviði stóriðju sem lögð
var fyrir Alþingi í október 1997.
Þá hafði Hydro lýst áhuga á að
byggja álbræðslu með allt að
720.000 tonna framleiðslugetu
í einingum sem hver um sig
hefði um 240.000 tonna fram-
leiðslugetu. í skýrslu iðnaðarráð-
herra segir m.a: „Framleiðslu-
geta álversins yrði í upphafi að
minnsta kosti 200.000 tonn á
ári. Álver hafa farið stækkandi á
undanförnum árum og til þess
að nýta hagkvæmni stærðar-
innar verður að gera ráð fyrir að
tvöfalda megi framleiðslugetu
álversins að nokkrum árum
liðnum.”
f tengslum við áformaða
stælckun álversins í Straumsvík.
Á NFS 3. mars sl. kom fram að
forráðamenn Alcan höfðu í sam-
tali við Halldór Ásgrímsson, þá-
verandi forsætisráðherra, sagt
að annaðhvort yrði álverið í
Straumsvík stækkað eða það
lagt niður. I viðtali Fréttablaðs-
ins við Rannveigu Rist, for-
stjóra ÍSAL, þann 12. nóvember
sl. komu fram upplýsingar af
svipuðu tagi þar sem Rannveig
sagði:
„Við höfum unnið markvisst
að stækkuninni frá árinu 1999.
Okkur er annt um að þessi
áform nái fram að ganga því
þau eru forsenda þess að hér
verði blómlegur rekstur til
langrar framtíðar. Til okkar eru
gerðar miklar kröfur, ekki að-
eins á sviði umhverfis- og örygg-
ismála heldur einnig varðandi
hagkvæmni í rekstri...”
Eins og fram hefur komið
munu íbúar í Hafnarfirði fá að
kjósa um stækkunina og í því
samhengi segir Rannveig: „Fólk
þarf hinsvegar að átta sig á því
að það er mikil breyting frá því
sem tíðkast hefur hér á landi
að íbúar geti kosið fyrirtæki í
burtu, eða niður, eins og gæti
orðið raunin hér í Hafnarfirði.”
Af þessum orðum að dæma
stefnir í að íbúum Hafnarfjarðar
verði boðnir kostirnir stækkun
eða lokun.
Enn ein vísbendingin um að
hagkvæmni stærðarinnar sé
fólgin í mun stærri álverum er
horft er til í Helguvík kom fram
í Speglinum á Rás 2 þann 16.
nóvember. Þar sagði Thorstein
Dale Sjötveit, aðstoðarforstjóri
Hydro, orðrétt:
„Álverið sem við erum að
byggja í Katar núna framleiðir
600.000 tonn og við lítum á
það sem skynsamlega stærð.
Við erum þó einnig þeirrar
skoðunar að byggingaráfangar
með framleiðslugetu upp á 250
- 300.000 tonn geti verið góð og
I skilvirk álver.”
Síðla sumars barst Byggða-
safni Garðskaga erindi
um það, að taka þátt í
stofnun Mið-
stöðvar um
mu n n 1 e g a
sögu.
Miðstöð um
munnlega sögu
er samstarfs-
verkefni milli
Sagn fræði-
stofnunnar Háskóla fslands,
Rannsóknarstofu í kvenna og
kynjafræðum, Kennaraháskóla
íslands - Háskólasafns.
Stofnunin mun hafa það hlut-
verk að safna munnlegum
frásögnum á formi hljóð-og
myndupptakna og varðveita þær
við bestu skilirði. Unnið verður
að því að færa hljóðupptökur
yfir á stafrænt form og gera þær
þannig aðgengilegri. Miðstöð
um munnlega sögu mun leggja
áherslu á að miðla upplýsingum
um efni í vörslu safnsins á að-
gengilegan hátt og þjónusta íbúa
um allt land. Miðstöð um munn-
lega sögu mun jafnframt stuðla
að rannsóknum á sviði munn-
legra heimilda og standa fyrir
ráðstefnum og fyrirlestrum um
munnlega sögu.
Munnlegar heimildir má skil-
greina á marga vegu en þær
heimildir sem Miðstöð um
munnlega sögu mun einbeita
sér að því að safna eru fyrst og
fremst frásagnir einstaklinga
8 | VÍKURFRÉTTIR 47.TÖLUBIAÐ I 27. ARCANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU ‘www.vf.is- LESTU NÝIUSTU FRÉTTIR ÐAGLEGA!
21