Víkurfréttir - 23.11.2006, Blaðsíða 34
Þessar skvísur urðu árinu eldri í mánuðinum, Benni
Litli og Roonie, urðu loksins 18, ekki það að lífið breytist
mikið við það og hún AMS okkar varð bara árinu
eldri en hún varð síðast (frekar viðkvæmt mál). En við
óskum þeim öllum til lukku með þetta og biðjum þær
vinsamlegast um að myndast verr á næstu árum.
Kveðja, Minneapolis/Boston-hópurinn!
Aðalfundur
Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja verður
haldinn sunnudaginn 3. desember kl. 14:00.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn GS
Skrifstofu- og
fjármálastjóri
Óskum eftir aö ráöa skrifstofu- og fjármálastjóra
á aðalskrifstofu okkar í Reykjanesbæ.
Skrifstofu- og fjármálastjóri ber ábyrgö á öllu
bókhaldi fyrirtækisins, þ.m.t. fjárhags- og
launabókhaldi sem og afstemmingum til
endurskoöanda.
Um er að ræöa 80-100% starf. Æskilegt aö
umsækjandi hafi menntun á sviöi viðskipta
og/eöa reksturs og hafi jafnframt reynslu af
bókhaldi og launaútreikningum. Þekking/reynsla
af T0K+ og TOK launum er kostur.
Upplýsingar er tilgreini menntun, fyrri störf og
persónulegar upplýsingar berist Páli Ketilssyni á
netfangið pket@vf.is.
Víkurfréttir ehf. eru stofnaöar áriö 1983 og starfar
fyrirtœkiö á sviöi fjölmiölunar og útgáfu. Starfs-
menn eru 15-20 manns og eru aöalstöövar
fyrirtœkisins i Reykjanesbœ en auk þess rekur
fyrirtœkiö skrifstofu og samnefnt fréttablaö sem
gefiö er út i Hafnarfiröi, Garöabœ og Álftanesi.
Taize-Messa
Sunnudaginn 26. nóvember
kl:20:30 verður sameiginleg
Taize-messa Hvalsnes og Út-
skálasafnaða í Safnaðarheimil-
inu í Sandgerði.
Sungnir verða Taize-söngvar
og flutt hugljúf tónlist á
fiðlu og píanó, einnig verður
gengið til altaris. Fram koma
kórar Hvalsneskirkju og Út-
skálakirkju.
Kjartan Már Kjartansson
leikur á fiðlu og organisti er
Steinar Guðmundsson. Með-
hjálparar Sylvía Hallsdóttir og
Helga Magnea Birkisdóttir.
Allir hjartanlega velkomnir
og er fólk hvatt til að mæta
og eiga notalega kvöldstund í
skammdeginu við kertaljós og
fallega tónlist.
Björn Sveinn Björnsson
sóknarprestur
SAMVERUSTUND TVÍBURA-
FORELDRA A SUÐURNESJUM
Idag milli kl. 16-18 ætlum
við foreldrar og tvíburar á
Suðurnesjum að hittast í
Kirkjulundi (Safnaðarheimili
Keflavíkurkirkju). Við ætlum
að hafa gaman saman og
verður jólastemmningin í há-
vegum höfð. Þessi hópur hitt-
ist í september síðastliðnum
í fyrsta skipti og var mæting
mjög góð.
Hlökkum til að sjá ykkur og
bjóðum við verðandi tvíburafor-
eldra sérstaklega velkomna.
Nánari upplýsingar veita:
Guðrún Þorsteinsd. 849-8100
Jóna Rut Grindavík 893-7066
Inga Þorvaldsd. 893-1394
Olla 698-6061
Iþróttafélagið Nes hélt upp
á 15 ára afmæli félagsins
í síðustu viku með afmæl-
isfagnaði í félagsheimili Mána
þar sem félagsmenn og velunn-
arar komu saman og gerðu sér
glaðan dag af þessu tilefni. Fé-
lagið var stofnað þann 17. nóv-
ember 1991.
Margir góðir gestir heiðruðu fé-
lagið með nærveru sinni, heilla-
óskum og gjöfum, m.a. færðu
Nesararnir frá Verkalýðsfélagi
Keflavíkur 200 þúsund króna
ávísun sem kemur að góðum
notum fyrir fyrirhuga utanlands-
ferð félagsins næsta vor og var
ÍT með kynningu á ferðinni.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, tilkynnti að
Reykjanesbær ætlaði að styrkja
félagið um 2000 krónur fyrir
hvern iðkanda sem fer í ferðina.
Jóhann Magnússon formaður
ÍRB hélt tölu og færði félaginu
bók að gjöf.
Yfir 100 manns sóttu hátíðina
og héldu Grétar Örvarson,
Regína Ósk og Friðrik Ómar
uppi stuðinu fram eftir kvöldi.
Árni Johnsen var sjálfur leyni-
gesturinn og söng hann nokkur
lög við góðar undirtektir.
ViKURFRÉTTiR Á NETINU -www.vf.is* LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
B4 IVÍKURFRÉTTIR 47. TÖLUBLAÐ . 27.ÁRCANGUR