Víkurfréttir - 23.11.2006, Blaðsíða 36
PÁLL ÓSKAR & MONIKA
Á AÐVENTUTÓNLEIKUM
í SANDGERÐI
Þann 3. desember næstkomandi halda Páll Óskar söngvari
& Monika hörpuleikari aðventutónleika í safnaðarheimil-
inu Sandgerði. Þar koma þau fram ásamt strengjakvartett,
kór Hvalsneskirkju, kór Útskálakirkju og söngsveitinni Víking-
arnir. Flutt verður bæði nýtt og gamalt efni eftir íslenska og
erlenda höfunda, t.a.m. Hreiðar Inga Þorsteinsson, Magnús Þór
og Burt Bacharach. Að sjálfsögðu verða jólalögum gerð góð skil
á efnisskránni.
Páll Óskar & Monika hófu samstarf sitt árið 2001 og fyrsta afurð
þess samstarfs var geislaplatan „Ef ég sofna ekki í nótt” og tveimur
árum síðar sendu þau frá sér jólaplötuna „Ljósin heima”. Þau hafa
flutt tónlist við ýmis tækifæri hérlendis sem erlendis og hlotið lof
fyrir glæsilegan og ljúfan flutning.
Aðgangseyrir er kr. 2000. Miðar eru seldir við innganginn.
Sölusýning
Heiðarskóli í fremstu röð í
samræmdu prófi í ensku
Komdu og skoðaðu eitt glæsilegasta húsiö á Hafnargötunni.
Útsýniö er engu líkt!
Sölumenn á staönum laugardaginn 25. nóvember
næstkomandi frá kl. 13:00-15:00
Heitt á könnunni.
Löngum hefur því verið
haldið fram að fólk á Suð-
urnesjum tali almennt
betri ensku en gengur og gerist
annarsstaðar á landinu og er
þá bent á nálægðina við banda-
ríska herinn til útskýringar.
Hvað sem sannleiksgildi þeirrar
fullyrðingar líður er þó eitt víst
að krakkarnir í Heiðarskóla í
Reykjanesbæ eru í fremstu röð á
landsvisu þegar kemur að ensku-
kunnáttu.
I samræmda prófinu í ensku síð-
asta vor var Heiðarskóli í 8. sæti
af öllum grunnskólum landsins
þegar miðað var við normal-
dreifða einkunn, sem er almennt talinn marktæk-
asti kvarðinn til að bera skóla saman. Meðalein-
kunn Heiðarskóla var 7,4. Auk þess kom skólinn
ákaflega vel út í öðrum greinum, en að sögn Sól-
eyjar Höllu Þórhallsdóttur, aðstoðarskólastjóri
Heiðarskóla, hafa nemendur skólans staðið sig vel
síðustu ár og eru stöðugt að sækja í sig veðrið.
Ragnheiður Ragnarsdóttir er fagstjóri í ensku og
kennir jafnframt ensku í 8., 9. og 10. bekkjum skól-
ans og hún telur að þennan góða árangur megi
m.a. þakka góðum tengslum við foreldra.
„Krakkarnir eru mjög duglegir og metnaðarfullir,
en foreldrarnir styðja líka vel við bakið á þeim.
Annað sem kemur til er það að sami kennari sé
með krökkunum alla elstu bekkina svo þar er
ákveðin samfella. Einnig er mikilvægt að náms-
efnið sé fjölbreytt og reynt sé að koma til móts við
áhugasvið þeirra. Það er ótal margt úr umhverfinu
sem við getum nýtt, eins og til dæmis tónlist með
enskum textum.”
Forsvarsmenn skólans hyggjast nota þennan með-
byr og eru með áætlanir um að vinna með tungu-
málakennslu í yngri bekkjum þar sem formleg
kennsla er ekki hafin.
I heimsókn blaðamanns í kennslustund í 10. bekk
sögðu nemendur að þeim þætti gaman í ensku-
tímum og bættu því við að þau ætluðu sér að
gera enn betur næsta vor en samnemendur þeirra
gerðu síðast.
Bílastæðahús, lyfta, inngangur
bæði frá Hafnargötu og Ægisgötu,
íbúðir með einstaklega glæsilegum innréttingum
og vel tækjum búnar.
Skólamál:
36 IVÍKURFRÉTTIR i 47. TÖLUBLAÐ 27.ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTiR Á NETiMU
www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!