Víkurfréttir - 14.12.2006, Side 48
Síðustu Víkurfréttir fyrir jól
koma fimmtudaginn 21. desember
Skurðdeild virk á dagvinnutíma!
Suðurnesjum hefur
íbúafjölda vaxið fiskur
um hrygg. I Reykja-
nesbæ ein-
göngu, hafa
tæp 2000 ný
íbúð ar hús-
næði hafa
verið byggð á
umliðnu ári
eða eru í bygg-
ingu þeg ar
þessi orð eru hripuð niður.
Nærþjónusta sveitarfélaga
við íbúa sína hefur stórauk-
ist á öllu svæðinu og ekkert
lát virðist vera á vinsældum
svæðisins. Það er þekkt stað-
reynd að sveitarfélög standa
í mikilli samkeppni gagnvart
fólksfækkun- eða hækkun.
Þrátt fyrir þá miklu raun sem
brotthvarf varnarliðsins setti
á herðar sveitarfélaga á Suður-
nesjum hafa þau öll brugðist
rétt við. Af frumkvæði og skyn-
samlegri framtíðarsýn hafa
kjörnir fulltrúar á svæðinu
staðið sig með mikilli prýði.
Skólamál, æskulýðsstörf, þjón-
usta við eldri borgara og barna-
fjölskyldur er betri en annars
staðar þekkist á landinu.
Hver er framtíðarsýn
heilbrigðisráðherra ?
Nýverið svaraði heilbrigðisráð-
herra fyrirspurn frá alþingis-
manninum Jóni Gunnarssyni
■ Elvar Geir Sævarsson skrifar:
um hvort unnt verði að starf-
rækja sólarhringsbráðavakt á
skurðstofum Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja á næsta ári.
I svari ráðherra kemur m.a.
fram að hún telji eðlilegt að sjá
hvernig starfsemin fer af stað í
nýju umhverfi áður en vöktum
verður fjölgað. Einnig svarar
ráðherra því til að hafa verði
sérstaklega í huga að tíðni út-
kalla sé frekar lág og að akst-
ursleið sé stutt til mjög öflugrar
skurðstofu á Landspítalanum
- háskólasjúkrahúsi og að akst-
ursleiðin þangað hafi verið stór-
lega bætt með tvöföldun Reykja-
nesbrautar. Svar ráðherra er
óviðunandi að mínu mati.
Þekkingarleysi
Svar ráðherra er einnig vitnis-
burður um algjört þekking-
arleysi á þeirri þróun sem ég
hef getið um hér fyrr hér í pistl-
inum. Á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja er að finna þriðju
stærstu fæðingardeild landsins.
Þá er um þessar mundir mikil
sókn hjá barnafjölskyldum inn
á svæðið. Eitt verður ráðuneytið
og ráðherra að skilja sem er að
markaðssetning á stofnuninni
sem slíkri er ógerleg á meðan
þjónustan er óstöðug vegna tak-
markaðs opnunartíma á skurð-
deildinni. Án efa gæti stofnunin
létt verulega á Landspítala Há-
skólasjúkrahúsi ef þjónustan
væri eðlileg. Nýting á húsnæði
hlýtur að skipta máli í þessum
geira sem öðrum. Svar ráðherra
veldur mér ákaflega miklum
vonbrigðum. í svari sínu hallar
hún sér að breytingum á Reykja-
nesbrautinni. Ég spyr á að loka
sólarhringsvöktun á skurðdeild-
inni á Akranesi vegna hinna
nýtilkomnu Hvalfjarðarganga?
Auðvitað ekki.
Ótraust þjónusta fyrir
18-19.000 manns
Það lýsir ekki skynsamlegri fram-
tíðarsýn að bjóða upp á ótrausta
þjónustu fyrir 18 -19.000 íbúa
eins og raun ber vitni. Ekki
bætir úr skák að íbúafjöldinn
fer vaxandi á svæðinu. Ég sem
þingmaður á Alþingi íslend-
inga skora á ráðherra heilbrigð-
ismála, Siv Friðleifsdóttur, að
endurskoða málið í heild sinni
og taka tillit til þeirra þúsunda
sem krefjast breytinga. Þó svo
skurðdeildin sé opin 2-3 nætur
á viku vegna gangsetninga og
vöktunar á barnshafandi konum
- þá verður aldrei viðunandi að
slegið sé í lás að kveldi annarra
daga vikunnar. Bráðatilfelli og
veikindi spyrja ekki um tíma né
vikudag. Á tiltölulega stuttum
tíma hafa 5 bráðatilvik sem
krefjast viðbragða innan 20 mín-
útna átt sér stað á Suðurnesjum.
Breytingar til fullnægjandi þjón-
ustu munu kosta okkur örfáa
tugi milljóna króna árlega.
Þakka þeim sem lásu.
Guntiar Örn Örlygsson
Alþingismaður - Reykjanesbœ
VI'KURFRÉTTIR I 50. TÖtUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 I 27.ÁRGANGUR
rísa hvað sem tautar og raular.
Nú segja mér fróðari menn að
stækkun álversins í Straums-
vík sé óumflýjanleg staðreynd
og það sem verra er: Það sjón-
armið er ríkjandi að til þess að
njóta hagkvæmi stærðarinnar
þurfi álver að hafa framleiðslu-
getu sem nemur 500 - 600.000
tonnum. Erum við þá ekki að
tala um 500.000 tonna álver
eða svo hér í Helguvíkinni? Og
ef álver rís þar, þá er Reykja-
nesskaginn rammaður inn á
milli álvera austan og vestan
til og Ferðamálasamtök Suður-
nesja munu þá þurfa að starfa
þar á milli. Þetta er í besta falli
stórundarlegt.
Ég spyr þig þá Kristján: Dettur
þér í alvörunni í hug að álver
gæti á nokkurn hátt verið að-
laðandi kostur fyrir ferðamenn
eins og ferðaþjónustan á íslandi
er markaðssett í dag? Nú starfa
ég við ferðaþjónustu og get full-
yrt að fólk sem kemur hingað
er ekki hér til þess að horfa á
og dást að mannvikjum og ekki
kemur það til þess að horfa á
álver. Alveg sama hversu vel
þau „falla að umhverfinu" Sjón-
mengun er ekki helsta ástæða
andúðar umhverfissinna á ál-
verum. Það eru frekar öll tonnin
af brennisteinsoxíð sem fjúka
yfir okkur, brátt bæði í austan-
og vestanátt. Ef aðeins þyrfti
að laga álver betur að umhverf-
inu til þess að lægja reiðiöldur
vegna álvera þá væri öll þessi
umræða löngu til lykta leidd.
Ferðaþjónustan á Islandi snýst
um útivist fyrst og fremst, og
Álver fyrir ferðamenn?
Þann 9. nóvember síðast-
liðinn birtist í Víkur-
fréttum bréf frá Krist-
jáni Pálssyni
þar sem hann
lýsir þeirri
ný stár legu
skoðun að ál-
ver geti verið
vinsæll við-
komustaður
ferðamanna,
að vísu með þeim formerkjum
að umhverfi þeirra verði gert
meira aðlaðandi. Þannig ætti
að vera hægt að slá tvær flugur
í einu höggi: Bjarga atvinnuá-
standinu á Suðurnesjum eftir
brotthvarf varnarliðsins ann-
arsvegar, og koma til móts við
ferðaþjónustuna hinsvegar.
Nú er ég ekki viss hver skrif-
aði bréfið, Kristján Pálsson
formaður Ferðamálasamtaka
Suðurnesja eða Kristján Páls-
son frambjóðandi í prófkjöri
sjálfstæðismanna í Suðurkjör-
dæmi, en hér er hann að tala
fyrir álveri í Helguvík. Álver í
Helguvík hefur ekkert verið í
umræðunni og lætur fólk eins
og nú þegar hafi verið tekin
ákvörðun, og þar muni það
til þess að fá hingað ferðamenn
til að skoða álver þarf allt aðra
markaðssetningu. Erum við þá
að tala um tvískiptingu í ferða-
þjónustu og að Ferðamálasam-
tök Suðurnesja verði sjálfstæð
eining innan geirans?
Til að byrja með set ég spurn-
ingamerki við þá fullyrðingu
að atvinnuástandinu verði að
bjarga sérstaklega en það er ljóst
að Kristján lítur ekki á það sem
möguleika að hægt sé að bjarga
því með ferðaþjónustunni
einni og sér. Þessi skrif Krisjáns
eru mikil vonbrigði því þegar
formaður ferðasamtaka er far-
inn að færa rök fyrir stóriðju
þá er fokið í flest skjól og aug-
ljóst er að ekki eru framsæknar
hugmyndir um uppbyggingu
ferðaþjónustu á Suðurnesjum
upp á borðinu þar. Við þessar
vangaveltur vakna tvær spurn-
ingar: „Hvers vegna situr hann í
þessu embætti?“, og „Ætti hann
ekki frekar að einbeita sér að
flokkspóltíkinni og leyfa hug-
myndaríkara fólki að taka við
ferðaþjónustunni?“
Elvar Geir Sœvarsson,
Keflvtkingur
LESTU NÝiUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!