Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 9 8 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 2 4 . á g ú s t 2 0 1 7
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
skoðun Guðjón
Brjánsson vill
knýja fram
sanngjarna
réttarbót fyrir
námsfólk. 18
sport Þór/KA er óstöðvandi í
Pepsi-deild kvenna. 26
Menning Tvær ólíkar en spenn-
andi sýningar verða opnaðar í
Hafnarborg annað kvöld. 36
lÍFið Litið inn á skemmtilegt
heimili í Noregi þar sem litadýrð
er í aðalhlutverki. 44
plús 2 sérblöð l Fólk
l heilsurækt
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
12 MANNA
ÁSAMT FYLGIHLUTUM
MIKIÐ ÚRVAL
VERÐ FRÁ KR. 24.990
HNÍFAPARATÖSKUR
LAUGAVEGI 178 – SÍMI 568 9955
landbúnaður Bóndi fær ekki að
nefna hryssuna sína Mósuna, en
samkvæmt nýlegum lögum Alþjóða-
samtaka um íslenska hestinn verður
nefnd að leggja blessun sína yfir
nöfn hreinræktaðra hrossa. Nafn-
inu Mósan var til dæmis hafnað
því að nöfn með greini
brjóta í bága við
íslenska nafna-
hefð. Atvinnu-
vegaráðuneytið
skoðar nú á hvaða
lagagrunni þessi
nefnd telji sér heim-
ilt að banna fólki að
nefna hrossin sín
hvaða nafni sem er.
– bb / sjá síðu 2
Skoða hvort sé
heimilt að banna
hestanöfn
Tristan Bergmann Einarsson, rauðklæddur fyrir miðri mynd, ætlar sér að skapa framtíðina ef eitthvað er að marka klæðnað hans. Tristan, sem er í sex ára bekk í Ísaksskóla, er einn af tug-
þúsundum grunnskólabarna sem settust á skólabekk í gær. Starf flestra grunnskóla landsins fór þá að rúlla á nýjan leik eftir sumarfrí. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
stJórnsÝsla Áformað er að rekstur
kísilverksmiðju United Silicon verði
stöðvaður 10. september næstkom-
andi svo unnt sé að gera nauðsyn-
legar úrbætur. Mögulegt er að slökkt
verði fyrr stöðvist ofn hennar lengur
en í klukkustund eða ef afl hans fer
undir tíu megawött.
Þetta kemur fram í bréfi sem
Umhverfisstofnun (UST) sendi fyrir-
tækinu í gærkvöldi. Fyrirtækið hefur
viku andmælafrest. Kristleifur Andr-
ésson, upplýsingafulltrúi United Sili-
con, segir ótímabært fyrir fyrirtækið
að tjá sig um málið.
„Þetta er bréf sem felur í sér upp-
gjör á frávikum sem hafa verið greind
við eftirlit hjá fyrirtækinu. Það felur
líka í sér viðbrögð við hvernig hefur
gengið frá því að þau fengu heimild
til endurræsingar í maí. Það hafa
komið upp frekari bilanir síðan þá
með tilheyrandi lyktarmengun,“ segir
Sigrún Ágústsdóttir, sviðstjóri hjá UST.
Ekki verði gefin heimild til að
ræsa verksmiðjuna að nýju ef
úrbætur verða ekki gerðar. „Það þarf
að gera umræddar úrbætur og UST
þarf að taka tíma til að yfirfara þær
ef gefin verður heimild til ræsingar
að nýju.“
„Þetta er mjög leiðinlegt og sorg-
legt að mál þurfi að æxlast svona
eins og verið hefur með mál United
Silicon. Þetta hefur verið sorgarsaga
alveg frá byrjun,“ segir Björt Ólafs-
dóttir, umhverfis- og auðlindaráð-
herra.
Björt segir enn fremur að henni
þyki undarlegt að þeir sem fari með
fé almennings fjárfesti í fyrirtæki
sem almenningur í nágrenninu hefur
lýst yfir að hann sé á móti. „Hvernig
geta stjórnendur lífeyrissjóða fundið
út hjá sér að peningur almennings sé
best ávaxtaður í fyrirtæki sem fólk er
á móti og öll viðskiptasaga þess er á
þennan veg?“ – jóe
Áforma að slökkva á kísilverksmiðjunni
Verði ekki ráðist í úrbæt-
ur á verksmiðju United
Silicon verður slökkt á
henni í upphafi næsta
mánaðar. Umhverfis-
stofnun sendi bréf þess
efnis til fyrirtækisins í
gærkvöldi.
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
F
-A
D
A
4
1
D
8
F
-A
C
6
8
1
D
8
F
-A
B
2
C
1
D
8
F
-A
9
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K