Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 18
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Aukin þekking og menntun í hvaða mynd sem er leiðir almennt til víðsýni og umburðarlyndis, eflir og bætir samfélög. Á Íslandi hafa viðhorfin til fyrirgreiðslu við námsfólk þróast með öðrum hætti en í nágrannalöndum. Síðasta aldarfjórðung hefur verið horft á fjárhagslega námsaðstoð í meginatriðum sem hefðbundin lán sem greiðast skuli til baka að fullu, verðtryggð. Að þessu leyti skiljum við Íslendingar okkur algjörlega frá öðrum norrænum þjóðum sem er til vansa fyrir þjóð sem byggir æ meira á þekkingarleit og menntun. Sanngjarnar lagfæringar Samfylkingin hefur ítrekað lagt fram frumvarp til laga um sanngjarnar lagfæringar á núverandi lögum um námslán, síðast á nýliðnu þingi. Þær lúta að tveimur þáttum. Annars vegar, að skuldbindingar ábyrgðar- manna á eldri lánum falli niður þegar viðkomandi nær 67 ára aldri eða við fráfall hans. Dæmi eru um það í núgildandi lögum að háaldrað fólk verði fyrir veru- legum búsifjum vegna ábyrgða. Ákvæðin ganga út yfir gröf og dauða og afkomendur standa jafnvel andspænis óvæntum og óréttlátum skuldbindingum. Hin breytingin er sú að námslán falli niður á því ári sem skuldari nær 67 ára aldri. Með því er verið að nálgast viðmót Norður- landaþjóðanna þar sem endurgreiðslutíminn er mun styttri eða jafnan um 15 til 20 ár. Þar eru reyndar styrkir verulegur hluti náms aðstoðarinnar. Ágreiningur um mikilvæg atriði Í fyrravor var lagt fyrir Alþingi frumvarp um námslán og námsstyrki sem ekki náði fram að ganga þar sem ágreiningur var um mikilvæg atriði. Efnislega hneig þó frumvarpið í þá átt sem ásættanlegt getur talist en verulega galla þarf að sníða burt. Ef hin umkomulausa ríkisstjórn sem nú situr við völd hugsar sér ekki til hreyfings varðandi ný lög um námslán og námsstyrki strax á næsta þingi mun Samfylkingin endurflytja frum- varp sitt enn einu sinni í þeirri viðleitni að knýja fram sanngjarna réttarbót fyrir námsfólk og ábyrgðarmenn eldri lána. Eitt eilífðar námslán Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingar- innar Samfylkingin hefur ítrekað lagt fram frumvarp til laga um sanngjarnar lagfæringar á núverandi lögum um námslán, síðast á nýliðnu þingi. IS.WIDEX.COM Hlustaðu nú! Nánari upplýsingar á vefsíðunni Góð auglýsing Fataverslunin H&M setti upp auglýsingaskilti á Lækjar- torgi til þess að vekja athygli á versluninni sem opnuð verður í Smáralind á laugar- daginn. Skiltið fór fyrir brjóstið á mörgum og í gær greindi umhverfis- og skipulagssvið frá því að leyfi fyrir skiltinu hefði verið gefið fyrir mistök. Í framhaldi var það svo fjarlægt að viðstöddum blaðaljósmynd- urum og myndatökumönnum sjónvarpsstöðvanna. Það upp- nám sem varð þann litla tíma sem skiltið stóð uppi verður í minnum haft næstu dagana og vekur væntanlega miklu meiri athygli á versluninni en skiltið hefði nokkurn tímann gert, þó það hefði staðið áfram. Sterkur leikur Eiríkur Jónsson blaðamaður birti í fyrradag bjánaleg skrif á vef sínum um Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara. Í stað þess að leiða Eirík og skrif hans hjá sér ákváðu nokkrir femínistar að svara Eiríki á veraldarvefnum. Vissulega tókst þeim að fanga athygli fjölmiðlamanna með gagnrýni sinni. En þökk sé þeim var það þó Eiríkur Jónsson sjálfur, og vefur hans, sem fékk mestu athyglina. Sem var væntanlega það sem Eiríkur sjálfur lagði upp með allan tímann. jonhakon@frettabladid.is Margir hafa bent á að ná verði utan um þann fjölda ferðamanna sem hingað sækir árlega áður en það verður hreinlega um seinan. Því miður er það enn svo að meðan barnið heldur áfram að vaxa, þá er það enn íklætt sömu brók. Hættan er ekki bara sú að unnin verði óafturkræf spjöll á landi og mannvirkjum, heldur einnig að Ísland missi aðdráttarafl sitt í augum umheimsins. Gleymum því ekki að hingað sækir fólk í fámenni, hreinleika og náttúrufegurð. Þetta eru ekki þættir sem taka má sem sjálfsögðum hlut. Of mikill átroðningur á ferðamannastöðum getur valdið því að fámennið fer fyrir lítið. Flestum þeirra ferðamanna sem hingað rata er, þrátt fyrir allt land- flæmið, smalað á sömu staðina á suðvesturhorninu. Hreinleikanum og náttúrufegurðinni þarf líka að viðhalda. Hvort tveggja getur horfið eins og dögg fyrir sólu, með til að mynda einni illa ígrundaðri virkjunar- framkvæmd. Kannski má því segja að íslenska ferðamanna undrið hafi hafist á því herrans ári 2010 þegar Eyjafjalla- jökull gaus og Ísland komst í heimsfréttirnar fyrir alvöru. Síðan hefur ferðamannafjöldinn fimmfaldast, en í millitíðinni höfum við vanist því að taka við áður óþekktum fjölda. Yfirvöld og aðrir sem vinna í greininni hafa því ekki lengur þá afsökun að glímt sé við nýtt og óþekkt vandamál. Í umfjöllun Wall Street Journal um Ísland var því haldið fram að ferðamennirnir sem bjargað hafi Íslandi úr fjárhagskröggum, séu nú að því komnir að sliga þjóðina. Venjulegt fólk þurfi að glíma við hús- næðisskort og himinháar leigugreiðslur vegna útleigu á íbúðum til ferðamanna. Hreinleiki landsins sé einnig í hættu vegna þess rusls og ágangs sem óhjákvæmilega fylgir svo miklum fjölda sem smalað er á sömu staðina. Innviðirnir hreinlega beri ekki allan þennan fjölda. Kannski er þetta orðum aukið hjá stórblaðinu, en þó er þarna sannleikskorn. Annað sem veldur áhyggjum er upplifun þeirra ferðamanna sem við er rætt á okurverðlagi. Þar á krónan vissulega stóran þátt, en þeir sem starfa í geiranum geta ekki firrt sig ábyrgð. Allt of víða ríkir gullgrafaraæði. Slíkt gengur varla til langs tíma, fólk lætur ekki plata sig oft. Sáralítið hefur borið á heildrænni stefnumótun hjá yfirvöldum í málefnum ferðamanna síðan náttúru- passinn var sleginn út af borðinu. Vonandi breytir nýr ferðamálaráðherra því nú í vetur. Þeir sem starfa í geiranum verða þó einnig að líta sér nær. Ekkert yfirvald kemur í veg fyrir að vondur matur sé seldur á uppsprengdu verði í vegasjoppu, eða að hótelgisting á gömlu svefnpokaplássi kosti það sama og á fínu hóteli í stórborg. Löngu er tímabært að við látum af vertíðarhugsun þegar kemur að ferðaþjónustunni. Orðspor byggist hægt upp, en hverfur eins og dögg fyrir sólu. Ef ekki er að gáð geta ferðamennirnir horfið einn daginn eins og síldin forðum. Vöndum okkur Yfirvöld og aðrir sem vinna í grein- inni hafa því ekki lengur þá afsökun að glímt sé við nýtt og óþekkt vandamál. 2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R18 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð I ð SKOÐUN 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 F -C 1 6 4 1 D 8 F -C 0 2 8 1 D 8 F -B E E C 1 D 8 F -B D B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.