Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 20
Á forsíðu Fréttablaðsins föstudaginn 18. ágúst mátti lesa helstu frétt blaðsins þann daginn. Hún var um aflífun ótaminna slasaðra graðhesta, en margt er þar rangt og annað spuni. Matvælastofnun birti samdægurs leiðréttingu við fréttina og hefur Dýralæknafélag Íslands harmað fréttaflutning blaðsins á Fésbókar- síðu sinni. Að lina þjáningar Matvælastofnun kom að þessu máli ásamt sjálfstætt starfandi dýra- læknum til að lina þjáningar lítt eða ótaminna graðhesta sem voru slasaðir eftir átök. Ekki var unnt að fanga hrossin og setja á þau múl eða skorða þannig að hægt væri að meðhöndla þau svo öruggt væri. Dýralæknir úrskurðaði að aflífa þyrfti nokkur hross þar sem með- höndlun sára þeirra var ekki mögu- leg. Í samráði við eiganda var aflífun því framkvæmd á staðnum með skjótum hætti. Matvælastofnun gekkst síðan í ábyrgð fyrir greiðslu kostnaðar við þjónustu dýralækna vegna slasaðra hrossa sem hægt var að meðhöndla. Tortryggni Í umfjöllun Fréttablaðsins er sáð tortryggni í garð héraðsdýra- læknis sem upplýsti að mannúð- lega hafi verið staðið að verki og að hrossin hafi drepist samstundis, en þau voru skotin af stuttu færi og blóðguð strax. Í texta með mynd í blaðinu er fullyrt að tveir grað- hestar hafi ekki drepist fyrr en þeir voru komnir nokkuð langt frá gerði þar sem aflífun fór fram. Auk þess er fullyrt að eitt hross hafi flækst í girðingu. Ýjað er að því sama í texta fréttarinnar. Hið rétta er að hræin voru dregin til eftir aflífun til að koma þeim úr augsýn hrossa sem átti eftir að aflífa. Eitt hrossið féll undir gerðið við aflífun og valt niður brekkuna fyrir neðan. Það útskýrir hvers vegna það hræ er lengra frá gerðinu en önnur. Dýra- læknir sem var á svæðinu hefur einnig staðfest eftir skoðun mynda að hræ hafi verið flutt enn frekar til eftir að dýralæknarnir yfirgáfu svæðið. Brot á lögum og reglum Fullyrt er að Matvælastofnun hafi ekki farið að reglum um velferð hrossa við aflífun. Þetta er rangt. Undir þeim kringumstæðum sem þarna voru, villtir og skelfdir grað- hestar sem ekki var hægt að nálgast nema leggja sig í lífshættu, var ekki val á öðru en að aflífa hrossin á staðnum. Það væri andstætt lögum um velferð dýra að bregðast ekki við, því eigandi er skyldugur að láta með- höndla slösuð dýr eða aflífa. Var gætt að öllum þáttum sem varða kröfur um aflífun með sársaukalausum hætti og þannig að önnur dýr yrðu þess ekki vör og að hrossin yrðu ekki að þola óþarfa þjáningu og hræðslu. Það er ólíku saman að jafna að aflífa tamið hross sem hægt er að fanga og halda rólegu þannig að skot í höfuð sé nákvæmt eins og reglur segja til um. Ábyrgð eiganda og förgun hræja Þá var fullyrt að Matvælastofnun hafi tekið hrossin úr vörslu eiganda, en dýralæknar engu að síður gengið burt að lokinni aflífun og falið eigendum förgun hræjanna. Hið rétta er að engin vörslusvipting fór fram. Því hafði Mat- vælastofnun hvorki ábyrgð eða for- ræði á förgun. Það sem eftir stendur í fréttinni er því sú staðreynd að eigandi hrossanna hafði ekki flutt hræin í gám sveitarfélagsins sem til þess er ætlaður en úr því var bætt að kröfu Matvæla- stofnunar. Lokaorð Markmið Matvælastofnunar með aðkomu að þessu máli var að koma dýrum í neyð og eigendum þeirra til aðstoðar. Það sama á við um dýra- lækna sem kallaðir voru til. Þeir sem hafa átt við ótamda og hrædda graðhesta þekkja að það getur verið hættulegt og er velferð manna þá einnig í húfi. Það er því ekki verjandi að tortryggja að ósekju störf fólks sem setur sig í hættu við að lina þjáningar slasaðra graðhesta. Nálgast má nán- ari upplýsingar og leiðréttingar við umrædda umfjöllun á heimasíðu Mat- vælastofnunar, mast.is. Velferð dýra og manna Nýverið voru kynntar niður-stöður úttektar Evrópumið-stöðvar (European Agency for Special Needs and Inclusive Education) á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi. Viðstaddir kynninguna voru ráð- herrar menntamála, velferðarmála Skólar fyrir öll börn og ungmenni Þeir sem hafa átt við ótamda og hrædda graðhesta þekkja að það getur verið hættu- legt og er velferð manna þá einnig í húfi. Það er því ekki verjandi að tortryggja að ósekju störf fólks sem setur sig í hættu við að lina þján- ingar slasaðra graðhesta. og heilbrigðismála ásamt fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga, Heimilis og skóla, Kennarasam- bands Íslands og Skólameistara- félags Íslands. Sýna niðurstöður úttektarinnar að lög og stefnumótun hér á landi styðja vel við hugmynda- fræði um menntun fyrir alla og skóla án aðgreiningar. Lög um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og aðalnámskrár allra skólastiga leggja áherslu á rétt barna til að afla sér góðrar menntunar í heimabyggð við hlið vina sinna og jafnaldra. Af hverju eru skólar á Íslandi fyrir öll börn og ungmenni? Niðurstöður úttektarinnar sýna að sameiginlegur skilningur á því að öll börn sæki almenna skóla á Íslandi er ekki fyrir hendi. Víða ríkir sá skilningur að til séu „eðlileg“ börn og svo „börn með sérþarfir“. Væn- legra þykir að líta á börn og ung- menni sem fjölbreyttan hóp með fjölbreyttar þarfir og að hlutverk kennara sé fyrst og fremst að koma til móts við nám hvers nemanda og að sjá til þess að hann taki framför- um. Einnig þarf að ganga út frá því að börn og ungmenni hafi rétt á því að sækja almenna skóla í samfélagi þar sem jöfnuður og umburðarlyndi ríkir. Er það í samræmi við lög og stefnumótun á Íslandi og þann grunn sem íslenskt samfélag byggir á. Í skóla fyrir alla læra börn og ung- menni grunnþætti menntunar, læsi, sköpun, heilbrigði, sjálfbærni, lýð- ræði og jafnrétti. Með því að sækja þann skóla sem næstur er taka þau þátt í að móta nærsamfélag sitt og læra að tilheyra því. Hvernig geta allir skólar verið fyrir öll börn og ungmenni? Í úttekt Evrópumiðstöðvar á skólum á Íslandi kemur fram að eitt helsta verkefni sem hagsmunaaðilar íslensks skólakerfis standa frammi fyrir á næstu árum er að öðlast sam- eiginlegan skilning á því hvernig standa skuli að því að öll börn fái menntun við hæfi í öllum skólum á Íslandi. Þar höfum við góðan grunn að byggja á í lögum og námskrám. Hagsmunaaðilar þurfa að sameinast um hvernig grunnnám, símenntun og stuðning kennarar þurfa til að sinna fjölbreyttum þörfum barna og ungmenna með fjölbreyttum kennsluháttum með það fyrir augum að hvert barn taki fram- förum. Nám er í eðli sínu félagslegt, börn læra í samneyti við önnur börn og fullorðna. Talið er að teymis- vinna þar sem kennarar vinna saman með hóp barna sé vænlegri til árangurs en að einn kennari kenni hópi barna. Á Íslandi er kraf- ist M.Ed.-gráðu við úthlutun leyfis- bréfa til kennara og þarf grunnnám kennara að taka í ríkari mæli mið af því að þeirra bíði að kenna fjöl- breyttum nemendahópi. Rætt hefur verið um að koma á einhvers konar kandídatsnámi kennaranema þar sem þeir öðlast leikni í að beita þeirri þekkingu sem þeir öðlast í kennaranáminu. Niðurstöður Evrópumiðstöðv- arinnar sýna að í skólakerfinu er nægilegt fjármagn fyrir hendi til að sinna fjölbreyttum þörfum nem- enda, meira fjármagn en tíðkast í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Vandi íslenska kerfisins er að fjármunir eru oft bundir við greiningar á sérþörfum barna sem hefur leitt til þess að greiningar hér eru töluvert fleiri en í samanburðar- löndum. Þessu þarf að breyta og má hugsa sér að fjármunum sé einkum úthlutað til skóla eftir fjölda nem- enda, samsetningu barnahópsins og félagslegri stöðu viðkomandi sveitarfélags í stað þess að úthluta fé vegna tiltekinna einstaklinga. Niðurstöður úttektarinnar sýna einnig að við þurfum að vera vakandi fyrir dreifðari byggðum landsins, en í fjölda sveitarfélaga eru fámennir skólar. Því þarf einnig að úthluta fjármagni með það fyrir augum að jöfnuður ríki í menntun barna um allt land, hvort sem þau læra í fámennum skólum eða fjöl- mennum. Hvað þarf að gera á Íslandi? Fyrir liggur að þeir sem að skóla- starfi koma þurfa á næstu mán- uðum að öðlast sameiginlegan skilning á því hvernig best verði staðið að menntun fyrir öll börn í öllum skólum. Fyrirhugað er að halda ráðstefnur og málstofur víða um land til að fylgja eftir úttekt Evr- ópumiðstöðvar. Augljósasta verk- efnið er að grunn- og símenntun kennara taki mið af fjölbreyttum nemendahópum og margvíslegum kennsluaðferðum til að mæta þeim. Allt stuðningskerfi skóla þarf að standa við bakið á kennurum, efla samstarf þeirra og lærdómssamfélag í skólum og milli skóla, þar sem rætt er um fjölbreyttar þarfir barna og hvernig þeim skuli mætt frá degi til dags. Endurskoða þarf úthlutun fjármagns svo að þeim mikla tíma sem varið hefur verið í greiningar sé varið í að skipuleggja og þróa nám og kennslu þar sem árangur og vel- líðan barna er leiðarljósið. Aðkoma ráðherra menntamála, heilbrigðismála, velferðarmála, fulltrúa Sambands íslenskra sveitar- félaga, Heimilis og skóla, Kennara- sambands Íslands og Skólameist- arafélags Íslands að málinu sýnir að íslensk stjórnvöld taka málefnið alvarlega og hyggjast fylgja því eftir af fullum þunga. Stofnaður hefur verið stýrihópur með tengiliðum fyrrgreindra aðila sem munu móta aðgerðaráætlun og vinna að mál- inu næstu árin. Fögnum fjölbreyti- leikanum og látum drauminn um að allir skólar á Íslandi séu fyrir öll börn og ungmenni verða að veru- leika. Stjórn Grunns – félags fræðslustjóra og stjórnenda á skólaskrifstofum. Anna Magnea Hreinsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs Borgarbyggðar María Kristjánsdóttir forstöðumaður skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings Sigurlína Jónasdóttir leikskóla- og daggæslufulltrúi Grindavíkurbæjar Valgerður Janusdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar Þorsteinn Hjartarson fræðslustjóri í Sveitarfélaginu Árborg Fyrir liggur að þeir sem að skólastarfi koma þurfa á næstu mánuðum að öðlast sameiginlegan skilning á því hvernig best verði staðið að menntun fyrir öll börn í öllum skólum.- 30 % Verð áður 3749 kr. kg 2624 kr.kg Lamba innralæri Athugasemd ritstjórnar Fréttablaðið fagnar því að geta birt athugasemdir Matvæla- stofnunar (MAST). Ritstjórnin vekur athygli á því að fyrr í síðustu viku var birt leiðrétting á atriðum upphaflegu fréttar- innar er vörðuðu vörslusviptingu á hrossum. Ritstjórn hefur leitað upplýsinga hjá þeim sem þekkja vel til hrossaræktar sem staðfesta athugasemdir MAST varðandi þá hættu sem skapast þegar átt er við skelfda grað- hesta og þær aðferðir við aflífun sem eru mögulegar undir slíkum kringumstæðum. Leiðréttist það hér með. Ritstjórn hefur hins vegar hvorki fengið útskýringar á því af hverju hræ hrossanna voru flutt til né af hverju þeim var ekki fargað fyrr en nokkrum dögum eftir að hrossin voru  aflífuð. Jón Gíslason forstjóri Mat- vælastofnunar 2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R20 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð I ð 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 F -B C 7 4 1 D 8 F -B B 3 8 1 D 8 F -B 9 F C 1 D 8 F -B 8 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.