Fréttablaðið - 24.08.2017, Síða 30

Fréttablaðið - 24.08.2017, Síða 30
Elín Albertsdóttir elin@365.is Jón lauk námi á myndlistarbraut enda hefur hann verið listrænn frá barnsaldri og hefur alltaf þótt gaman að mála, teikna og móta skúlptúra. Áhugi hans á fatasaumi vaknaði meðfram listnáminu og hóf hann nám í fata- og textílbraut í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti í framhaldi af myndlistinni. Fatasaumurinn leikur í höndum hans og margir vinir Jóns hafa beðið hann að sauma fyrir sig föt. Sömuleiðis saumar hann mikið á sjálfan sig. Jón hefur starfað í sumar sem þjónn á Laundromat Café og í Lista- safni Íslands og gestir hafa tekið eftir honum þar enda sker hann sig vel úr fjöldanum. Jón verður 21 árs í sept- ember en hefur þegar komið fram í mörgum auglýsingum. Auk þess fór hann til Finnlands í vor til módel- starfa. „Það var mjög skemmtilegt að kynnast því auk þess sem ég gat keypt mér efni sem fást ekki hér á landi. Ég væri alveg til í að prófa fleiri slík verkefni á erlendri grund en vil klára námið mitt fyrst.“ Jón aðhyllist eingöngu svartan fatnað. „Ég vil hafa fötin svört, víð og öðruvísi en aðrir ganga í,“ segir hann. „Ég hef aldrei verið fyrir liti, meira að segja nær- urnar eru svartar,“ bætir hann við. „Fataskápurinn minn er eitt stórt Fataskápurinn er svarthol Jón Albert Méndez er fyrirsæta hjá Eskimo models og stundar nám í klæðskerasaumi. Hann klæðist einungis svörtum flíkum en útlit hans þykir nokkuð eftirtektarvert. Jón er töffari. Takið eftir síða jakkanum og mynstrinu á buxunum. MYND/EYÞÓR Annað útlit í klæðnaði og sannarlega ekki týpískur herrafatnaður. MYND/EYÞÓR svarthol,“ segir hann glettinn. „Það er auðvelt að blanda mörgum stílum saman þegar maður hefur einfaldan smekk í litum,“ segir hann. Jón er oft stoppaður á götu og spurður hvar hann hafi fengið ákveðna flík sem hann klæðist. Stundum hefur hann saumað hana sjálfur. Jón hefur starfað mikið með Viðari Loga ljósmyndara. Aðstoðað hann sem fyrirsæta eða stílisti við til dæmis auglýsingatökur og baksviðs á tískusýningum. „Við notum stundum fataskápinn minn eða ég sauma eitthvað sem hentar. Ég hef líka saumað alls kyns föt fyrir ljósmyndatökur,“ segir Jón sem var í strætó á heimleið þegar við náðum tali af honum. Jón hefur ekki hug á að feta slóð fata- eða tískuhönnuðar. „Ég er meira inn á frjálsri línu í tísku og hef mestan áhuga á myndlist og teikningu,“ segir hann. Faðir hans er frá Kólumbíu en móðir hans íslensk. Þrátt fyrir að móðursystur Jóns séu hárgreiðslumeistarar og eldri bróðir hans einnig hefur hann alltaf viljað hafa sítt hár. „Ég er með mjög hrokkið hár og það er ekkert auðvelt að halda því við. Mér finnst ég samt eiga að vera með sítt hár en ég þarf ekki að fara langt þegar þarf að klippa eða snyrta.“ Jón er skapandi, listrænn og skemmtileg týpa. Hann á örugg- lega eftir að láta meira að sér kveða í framtíðinni enda enn ungur að Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 LOKA-ÚTSÖLULOK 70% afsláttur af öllum útsöluvörum Fa rv i.i s // 0 81 7 KRINGLUNNI | 588 2300 PEYSA 11.495 Tv eir litir 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . áG ú s T 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 0 -0 6 8 4 1 D 9 0 -0 5 4 8 1 D 9 0 -0 4 0 C 1 D 9 0 -0 2 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.