Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 30
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Jón lauk námi á myndlistarbraut enda hefur hann verið listrænn frá barnsaldri og hefur alltaf
þótt gaman að mála, teikna og móta
skúlptúra. Áhugi hans á fatasaumi
vaknaði meðfram listnáminu og
hóf hann nám í fata- og textílbraut
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
í framhaldi af myndlistinni.
Fatasaumurinn leikur í höndum
hans og margir vinir Jóns hafa
beðið hann að sauma fyrir sig föt.
Sömuleiðis saumar hann mikið á
sjálfan sig.
Jón hefur starfað í sumar sem
þjónn á Laundromat Café og í Lista-
safni Íslands og gestir hafa tekið eftir
honum þar enda sker hann sig vel úr
fjöldanum. Jón verður 21 árs í sept-
ember en hefur þegar komið fram í
mörgum auglýsingum. Auk þess fór
hann til Finnlands í vor til módel-
starfa. „Það var mjög skemmtilegt
að kynnast því auk þess sem ég gat
keypt mér efni sem fást ekki hér
á landi. Ég væri alveg til í að prófa
fleiri slík verkefni á erlendri grund
en vil klára námið mitt fyrst.“
Jón aðhyllist eingöngu svartan
fatnað. „Ég vil hafa fötin svört,
víð og öðruvísi en aðrir ganga í,“
segir hann. „Ég hef aldrei verið
fyrir liti, meira að segja nær-
urnar eru svartar,“ bætir hann við.
„Fataskápurinn minn er eitt stórt
Fataskápurinn er svarthol
Jón Albert Méndez er fyrirsæta hjá Eskimo models og stundar nám í klæðskerasaumi. Hann
klæðist einungis svörtum flíkum en útlit hans þykir nokkuð eftirtektarvert.
Jón er töffari. Takið eftir síða jakkanum og mynstrinu á buxunum. MYND/EYÞÓR
Annað útlit í
klæðnaði og
sannarlega
ekki týpískur
herrafatnaður.
MYND/EYÞÓR
svarthol,“ segir hann glettinn. „Það
er auðvelt að blanda mörgum stílum
saman þegar maður hefur einfaldan
smekk í litum,“ segir hann. Jón er oft
stoppaður á götu og spurður hvar
hann hafi fengið ákveðna flík sem
hann klæðist. Stundum hefur hann
saumað hana sjálfur.
Jón hefur starfað mikið með
Viðari Loga ljósmyndara. Aðstoðað
hann sem fyrirsæta eða stílisti
við til dæmis auglýsingatökur og
baksviðs á tískusýningum. „Við
notum stundum fataskápinn minn
eða ég sauma eitthvað sem hentar.
Ég hef líka saumað alls kyns föt fyrir
ljósmyndatökur,“ segir Jón sem var í
strætó á heimleið þegar við náðum
tali af honum.
Jón hefur ekki hug á að feta slóð
fata- eða tískuhönnuðar. „Ég er
meira inn á frjálsri línu í tísku og
hef mestan áhuga á myndlist og
teikningu,“ segir hann. Faðir hans
er frá Kólumbíu en móðir hans
íslensk. Þrátt fyrir að móðursystur
Jóns séu hárgreiðslumeistarar og
eldri bróðir hans einnig hefur hann
alltaf viljað hafa sítt hár. „Ég er með
mjög hrokkið hár og það er ekkert
auðvelt að halda því við. Mér finnst
ég samt eiga að vera með sítt hár en
ég þarf ekki að fara langt þegar þarf
að klippa eða snyrta.“
Jón er skapandi, listrænn og
skemmtileg týpa. Hann á örugg-
lega eftir að láta meira að sér kveða
í framtíðinni enda enn ungur að
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
LOKA-ÚTSÖLULOK
70% afsláttur
af öllum útsöluvörum
Fa
rv
i.i
s
//
0
81
7
KRINGLUNNI | 588 2300
PEYSA
11.495
Tv
eir
litir
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . áG ú s T 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
0
-0
6
8
4
1
D
9
0
-0
5
4
8
1
D
9
0
-0
4
0
C
1
D
9
0
-0
2
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K