Fréttablaðið - 24.08.2017, Page 43

Fréttablaðið - 24.08.2017, Page 43
Svona var Kim klædd þegar hún mætti í veislu í Beverly Hills nýlega. Kim Kardashian lét lítið á sér bera eftir að hún var rænd á hótelherbergi í París á síðasta ári. Nú er hún hins vegar komin á fullt aftur í samkvæmislífinu og vekur athygli sem aldrei fyrr. Ástæðan er ekki síst klæðaburður hennar. Kim er óspör á að birta sjálfsmyndir á samfélagsmiðlunum, sérstaklega á Instagram. Sumir hneykslast á klæðnaðinum en Kim hefur gríðarleg áhrif á tískuheiminn og er leiðtogi á því sviði. Undanfarið hefur hún oft sést án brjóstahaldara eða lætur hann duga sem topp. Brjóstahaldaraleysið er líklegt til vinsælda hjá yngri konum, eftir því sem tískulöggur segja. Sú tíska var allsráðandi á hippaárunum. Kim Kardashian er fædd 21. október 1980. Hún er þekktust sem fyrirsæta og leikkona í eigin raunveruleikaþáttum, Keeping Up with the Kardashians og Dancing With the Stars. Hún hefur verið gift bandaríska rapparanum Kanye West frá árinu 2014. Þau eiga tvö börn. Bæði Kim og Kanye eru elskuð af ljósmyndurum um allan heim. Þau hafa tvisvar heimsótt Ísland. Leiðir tískuna Rauð kúrekastígvél verða hæstmóðins í vetur. Stóru tískuhúsin hafa þegar lagt helstu línurnar fyrir skótískuna í vetur og þar leynist margt skemmtilegt. Há stígvél eru áberandi og þau eru ýmist loðin, í áberandi litum eins og skærrauðum, eða jafnvel glitrandi. Kúrekastígvél sem ná yfir hnén koma sterk inn og þar er hællinn fremur lágur. Dansdrottningar geta dregið fram glimmerskóna því glitrandi skór með silfurglimmeri verða eitt af því allra heitasta á djamminu. Glitrandi sokkar innan undir hælaskó, bandaskó og sandala verða leyfðir og svo verða hvítir eða svartir skór með lógóum, mynstri og texta áberandi. Tvílitir skór í svörtu og hvítu skora hátt í vetrartískunni en einnig verða skór í skærum jarðlitum í tísku. Líkt og undanfarið verða íþróttaskór í tísku, enda þægilegir og hentugir við mörg tækifæri en þeir verða í einföldum litum með glitrandi mynstri eða öðru sem lífgar upp á þá. Rauðir, glitrandi eða loðnir Gallabuxur eru alltaf vin-sælar og margir sem eiga sínar uppáhaldsgallabuxur sem þeir fara helst ekki úr. Þótt galla- buxur séu mikið notaðar er óþarfi að þvo þær oft í mánuði. Sumir vilja meina að þær þurfi aðeins að þvo á hálfs árs fresti því gallabuxur eiga að laga sig að vexti hvers og við þvott tapa þær þessu lagi. Auðvitað er þetta smekksatriði en hins vegar er hægt að fríska upp á gallabuxur með því að láta þær hanga inni á baði þegar farið er í sturtu. Einnig er hægt að setja þær í plastpoka og setja í frysti í tvo daga. Ef vafi leikur á hvaða númer af gallabuxum eigi að kaupa er best að kaupa alltaf minna númerið því gallabuxur víkka alltaf með tímanum. Ef stytta þarf gallabuxur er best að þvo þær a.m.k. tvisvar áður því þær styttast í þvotti. Gallabuxur á alltaf að þvo á röngunni við fremur lágan hita. Þær á ekki að þurrka í þurrkara en ef það er bráðnauðsynlegt á að nota lægsta mögulega hita og taka þær úr þurrkaranum áður en þær eru orðnar alveg þurrar, slétta úr og láta þær þorna á herðatré. Góð gallabuxnaráð Sé vafi á hvaða númer af gallabuxum eigi að kaupa, á alltaf að velja minna númerið. MYND/GETTY Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is E F LI R a lm an na te ng s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ön nu n Velkomin í okkar hóp! Komdu, við kunnum þetta! Innritun stendur yfir í síma 581 3730. Nánari upplýsingar á jsb.is fundur fyrir alla TT hópa 27. ágúst kl. 17:00  Ný TT námskeið að hefjast innritun hafin TT-1 námskeiðin okkar fyrir konur fela í sér leiðbeiningar um mataræði, líkamsrækt, sjálfsstyrkingu, fundi, vigtun og mælingar. Þessi sívinsælu námskeið hafa margsannað ágæti sitt og reynst konum afburðavel til að ná markmiðum sínum. Við bjóðum hvorki skyndilausnir né sveltikúra, heldur raunhæfar leiðir til að lifa góðu lífi. TT-3 námskeiðin okkar eru fyrir 16-25 ára stelpur. Þetta eru sérsniðin lífsstílsnámskeið fyrir þær sem vilja taka mataræðið í gegn og komast í gott form. Við byggjum námskeiðin á áralangri reynslu af því að kenna ungmennum líkamsburð og listdans ásamt þekkingunni sem við höfum byggt upp af því að veita konum sambærilega þjónustu í gegnum tíðina. Mótun BM Áhersla lögð á styrk, liðleika og góðan líkamsburð. Mótandi æfingar fyrir kvið, rass- og lærvöðva. Fit Form 60+ Alhliða líkamsrækt sem stuðlar að auknu þreki, þoli, liðleika og frábærri líðan. Opna kerfið 1-2-3 Bjóðum röð af 30 mínútna krefjandi tímum í opna kerfinu. Einkaþjálfun Þjálfarar JSB eru fagmenn og vita nákvæmlega hvað þarf til að ná settum markmiðum og aðstoða við aðhald ef þess er óskað Kynntu þér fjölbreytt úrval af námskeiðum og opnum tímum á jsb.is FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 F I M MT U DAG U R 2 4 . ág ú s t 2 0 1 7 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 0 -0 6 8 4 1 D 9 0 -0 5 4 8 1 D 9 0 -0 4 0 C 1 D 9 0 -0 2 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.