Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 48
MarkMenn
Hreiðar Levý
Guðmundsson
Aron Rafn
Eðvarðsson
Hægra Horn
Leó Snær
Pétursson
Patrekur
Jóhannesson,
þjálfari Selfoss.
Handbolti Það stefnir allt í að
Olís-deild karla í handbolta á næsta
tímabili verði sú sterkasta í áraraðir.
Deildin var mjög góð á síðasta
tímabili en í sumar hafa 13 leikmenn
komið heim úr atvinnumennsku
og þeir munu styrkja deildina til
mikilla muna. Að sama skapi hafa fáir
leikmenn farið út í atvinnumennsku
í sumar.
Hér á síðunni má sjá hvaða
tólf atvinnumenn eru komnir
heim. Þeirra á meðal eru þrír
sem voru í íslenska landsliðinu
sem vann til silfurverðlauna
á Ólympíuleikunum
2 0 0 8 o g
bronsverðlauna á
EM 2010; Snorri
Steinn Guðjónsson,
B j ö r g v i n P á l l
G ú s t avs s o n o g
H r e i ð a r L e v ý
Guðmundsson.
Þar fyrir utan eru
tveir fastamenn í
landsliðinu komnir
heim, Bjarki Már
Gunnarsson og Aron
Rafn Eðvarðsson, líkt
og Atli Ævar Ingólfsson
sem átti góð ár í Svíþjóð og hefur
bankað á landsliðsdyrnar. Þá er
besti leikmaður Olís-deildarinnar
2014-2015, Björgvin Hólmgeirsson,
kominn aftur heim eftir tveggja
ára dvöl í Dúbaí sem og Árni Þór
Sigtryggsson, Einar Ingi Hrafnsson
og Pétur Pálsson sem spiluðu sem
atvinnumenn í fjölda ára. Þorgrímur
Smári Ólafsson og Leó Snær
Pétursson stoppuðu styttra við
í atvinnumennskunni en gerðu
ágæta hluti.
Það eru ekki bara tólf
atvinnumenn sem eru komnir
heim heldur er Patrekur
Jóhannesson, þjálfari
austurríska landsliðsins,
kominn aftur í Olís-
deildina eftir tveggja
ára hlé. Patrekur er
tekinn við Selfossi
sem endaði í 5. sæti
deildarinnar í fyrra.
„ Ég m a n a ð
deildin var ágætlega
góð þegar ég var
með Haukana 2013-2015. En hún er
töluvert sterkari núna,“ sagði Patrekur
þegar Fréttablaðið leitaði álits hans á
heimkomu atvinnumannanna.
„Þetta eru í sumum tilfellum menn
sem eru búnir að vera lengi úti og í
öðrum tilfellum menn sem eru yngri
og hafa ekki verið jafn lengi úti. Það
eru misjafnar ástæður. En ég held að
þetta sé mjög gott fyrir deildina og
íslenskan handbolta.“
Patrekur segir að þótt Olís-deildin
sé ekki atvinnumannadeild sé
umgjörðin í kringum liðin góð.
„Við erum með marga góða þjálfara
og bjóðum upp á eins gott umhverfi
og hægt er. Auðvitað er þetta ekki
100% atvinnumennska en flest lið eru
að gera vel miðað við aðstæður,“ sagði
Patrekur og bætti því við að reynsla
leikmannanna sem eru komnir heim
geti reynst yngri samherjum þeirra
vel.
„Það er mikilvægt að þeir sem
hafa verið í atvinnumennsku geti
miðlað af reynslu sinni til yngri
leikmanna. Blandan er mikilvæg,“
sagði þjálfarinn.
Olís-deild karla hefst með leik
Hauka og ÍR sunnudaginn 10.
september nk. ingvithor@365.is
Við erum komnir heim
Þrettán atvinnumenn hafa snúið heim og spila í Olís-deild karla í handbolta í
vetur. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfoss, segir þetta jákvætt fyrir deildina.
vinstri skytta
Þorgrímur
Smári Ólafsson
Magnús Óli
Magnússon
Björgvin
Hólmgeirsson
Snorri Steinn
Guðjónsson
2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F i M M t U d a g U R28 s p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Skemmtanir
Árshátíðir
Grímuböll
Dimmisjón
ofl. & ofl.
Ykkar skemmtun....
....okkar fókus
Full búð af
nýjum vörum!
Verið velkomin í Verslun Guðsteins, Laugavegi 34
Síðan 1918
Hægri skytta
Árni Þór
Sigtryggsson
Björgvin Páll
Gústavsson
Leikstjórnandi
Atli Ævar
Ingólfsson
Bjarki Már
Gunnarsson
Einar Ingi
Hrafnsson
Pétur
Pálsson
LínuMenn
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
F
-F
2
C
4
1
D
8
F
-F
1
8
8
1
D
8
F
-F
0
4
C
1
D
8
F
-E
F
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K