Fréttablaðið - 24.08.2017, Side 50

Fréttablaðið - 24.08.2017, Side 50
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Hermanns Vestursíðu 9, Akureyri, lést föstudaginn 18. ágúst. Útför hennar hefur farið fram. Innilegar þakkir til starfsfólksins í Lögmannshlíð fyrir góða umönnun. Friðrik Jóhannsson Eygló Björnsdóttir Sólveig Margrét Jóhannsd. Sushant Sinha Ásta Jóhannsdóttir Guðrún Birna Jóhannsdóttir Guðmundur Örn Njálsson ömmu- og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts systur okkar og frænku, Kristínar S. Árnadóttur Grandavegi 47. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjúkrunarheimilinu Grund, deild V2. Fjölskylda hinnar látnu. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Brynja Óskarsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 12. ágúst síðastliðinn. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sóltúns fyrir góða umönnun og hlýju. Edda Hilmarsdóttir Rafn Guðlaugsson Ólöf Hilmarsdóttir Sigurður Bernódusson barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubarn. Sunnudagaskólinn er trúlega þekktasti skóli landsins en kirkjur landsins bjóða upp á starf á sunnudögum þar sem börnin mæta með foreldrum sínum, öfum, ömmum eða eldri systkinum og eiga stund í kirkjunni. Skólinn hefst þriðja september og var Regína Ósk Óskarsdóttir fengin til að syngja nýtt lag til að marka upphaf skólaársins. Sunnudagaskólinn er samt ekki form- legur skóli. Hann er ekki einu sinni alltaf á sunnudögum. Þess vegna gengur hann víða undir nafninu barnastarf kirkj- unnar. Barnastarfið er víða fjölsótt og fjörugt en einnig er hægt að finna litla og notalega sunnudagaskóla. Tónlistin er í hávegum höfð þar sem er sungið og dansað við fjörug lög. Fræðslan fer fram með aðstoð stuttmynda þar sem Hafdís og Klemmi, Nebbi eða Tófa sýna hvað í þeim býr og er húmorinn ekki langt undan. Að þessu sinni ber fræðsluefni barnastarfsins yfirskriftina Í öllum litum regnbogans þar sem lífinu er fagnað í allri sinni dýrð. Regína segir að hún hafi verið að mæta í sunnudagaskólann með sínum börnum en dóttir hennar leikur einmitt í myndbandinu Í sjöunda himni sem gert var fyrir tveimur árum. Þá hefur hún og Sig ur sveinn Þór Árna son, eiginmaður hennar, stýrt nokkrum sunnudagaskólum í Lindakirkju. „Ég hef verið að mæta í Lindakirkju með krakkana mína og svo kom Guð- mundur Karl Brynjarsson, prestur í Lindakirkju, til mín einhvern tímann og spurði hvort ég vildi ekki stýra skól- anum með sér. Ég tók nokkra sunnudaga sem gekk vel. Maðurinn minn var með gítarinn og við áttum þar góða stund með börnunum.“ Hún segir að þegar hún hafi verið beðin um að syngja nýja lagið hafi hún ekkert þurft að hugsa sig um. „Fyrir tveimur árum gerðu þeir myndband í fyrsta sinn sem vakti athygli. Þá lék dóttir mín í myndbandinu. Núna var ég beðin um að syngja þetta nýja lag og klára ferlið sem þeir Guðmundur og Þorleifur Einarsson höfðu byrjað. Mynd- band fylgir og er dóttirin aftur með.“ Hún segir að lagið sé stutt og það sé smá Grease fílingur í því. „Þetta er hnitmiðað lag. Þetta er gleðilag, það er gleði í því og pínulítið Grease meira að segja. Þor- leifur leikstýrir svo myndbandinu sem og að semja lag og texta. Við sömdum svo hreyfingar með. Krökkum finnst svo gaman að hafa hreyfingar með lögum. Ég þekki það eftir að hafa verið að kenna krökkum í mörg ár,“ segir hún. benediktboas@365.is Regína Ósk í grísfílingi í sunnudagaskólanum Regína Ósk Óskarsdóttir mun syngja nýtt lag, Í öllum litum regnbogans, fyrir sunnudaga- skólann, eða barnastarf kirkjunnar, sem hefst eftir tíu daga. Að þessu sinni ber fræðslu- efni barnastarfsins yfirskriftina Í öllum litum regnbogans þar sem lífinu er fagnað. Við upptökur á laginu Í öllum litum regnbogans. Þar kom saman fjöldi krakka sem kunna sunnudagaskólalögin. Regína Ósk Óskarsdóttir flytur lag Þorleifs Einarssonar en hún hefur stýrt söngskóla Maríu Bjarkar við góðan orðstír. FRéttaBlaðið/EyÞÓR Áhorfendur Stöðvar 2 sitja margir límdir við skjáinn á sunnudögum þegar þátta- röðin Baby Boy Blue er sýnd. Þættirnir segja frá hinu óhugnanlega morði á Rhys Jones sem var aðeins 11 ára þegar hann var skotinn. Þáttaröðin hefur fengið mikið lof frá gagnrýnendum. Á þessum degi fyrir áratug voru tveir unglingspiltar, 14 og 18 ára, handteknir í Bretlandi í tengslum við morðið. Guttinn var á leiðinni heim til sín af fótboltaæfingu ásamt tveimur félögum sínum þegar unglingspiltur kom að á reiðhjóli og skaut þremur skotum úr byssu. Eitt skotið lenti í hálsi Jones og var hann úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi stuttu síðar. Rhys Jones bjó heima hjá foreldrum sínum og sautján ára bróður. Breskir fjölmiðlar höfðu eftir Bernard Hogan- Howe, yfirlögregluþjóni í Liverpool, að morðið væri ekki aðeins hræðilegt fyrir fjölskylduna heldur bæjarfélagið í heild. Í tilkynningu frá lögreglunni voru bæði íbúar í nágrenninu og allir sem tengjast glæpasamfélaginu þar hvattir til að að- stoða lögregluna við að upplýsa málið. „Við höfum oft áður lent á þagnarmúr en nú er nóg komið og þegar ellefu ára drengur er skotinn verður samfélagið að taka höndum saman,“ sagði Simon Byrne aðstoðaryfirlögregluþjónn. Eins og áhorfendur hafa fengið að kynnast í gegnum þáttaröðina var það einmitt það sem gerðist. Allir sem voru grunaðir í málinu sögðu ekkert og sýndu engan samstarfsvilja. Sean Mercer var að lokum dæmdur fyrir morðið og þeir James Yates, Nathan Quinn, Gary Kays og Melvin Coy fengu allir þunga dóma. Þá fékk móðir Mercers þriggja ára dóm fyrir að hindra réttvísina en hún laug ítrekað að lögreglunni. – bb Þ ETTA G E R ð i ST 2 4 . ÁG ú ST 2 0 0 7 Fyrstu handtökur í máli Rhys Jones 79 Vesúvíus gýs. Borgirnar Pompeii, Herculaneum og Stabiae grafast í ösku. 1215 Innósentíus 3. páfi lýsir Magna Carta ógilt. 1608 Fyrsti opinberi fulltrúi Bretlands stígur á land við Surat á Indlandi. 1841 Bjarni Thorarensen, amtmaður og skáld, deyr 54 ára gamall. Jónas Hallgrímsson yrkir um hann erfiljóð sem hefst þannig: Skjótt hefur sól brugðið sumri... 1899 Jorge Luis Borges, argentínskur rithöfundur og skáld, fæðist. 1906 Ritsími á milli Skotlands og Íslands um Hjaltland og Færeyjar er opnaður og er sæsímastrengurinn 534 sjómílur á lengd. 1944 Sveinn Björnsson, forseti Íslands, og Franklin D. Roosevelt, forseti Bandaríkjanna, ræðast við í Hvíta húsinu í Washington, en Sveinn var í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. 1968 Norræna húsið í Reykjavík er vígt. Finnski arkitektinn Alvar Aalto teiknaði bygginguna. Norðmaðurinn Ivar Eskeland er ráðinn fyrsti forstöðumaður hússins. 1980 Fyrstu alþjóðlegu rallkeppni á Íslandi lýkur eftir fimm daga keppni. 1983 Fjölmennur fundur í Reykjavík, sem haldinn er í veitingahúsinu Sigtúni af svokölluðum Sigtúnshópi, krefst breytinga á húsnæðislánakerfinu. 1991 Úkraína fær sjálfstæði frá Sovétríkjunum. 2006 Á þingi Alþjóðasambands stjarnfræðinga er samþykkt að telja Plútó ekki lengur til reikistjarna sólkerfisins. 2008 Ísland vinnur silfurverðlaun í handbolta á Ólympíuleikunum í Peking. 2012 Dómur er kveðinn upp yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik, sem myrti 77 manns sumarið 2011, með öflugri bílasprengju í miðborg Óslóar og svo með skotárásum í Útey. Merkisatburðir 2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R30 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A ð I ð tímamót 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 8 F -D F 0 4 1 D 8 F -D D C 8 1 D 8 F -D C 8 C 1 D 8 F -D B 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.