Fréttablaðið - 27.09.2017, Page 22

Fréttablaðið - 27.09.2017, Page 22
TIMEOUT HAUSTTILBOÐ STÓLL + SKEMILL kr. 286.000 Opið mánudaga - föstudaga 11 - 18 / Laugard. 11 - 16 Bæjarlind 14 - 16 | 201 Kópavogi Sími 553 7100 | linan.is / linanehf / linan.is Listaverð kr. 357.600 Við smið- irnir þurf- um að hafa alls kyns verkfæri við höndina, hamarinn, tommustokk, blýant og þess háttar. Nú eru borvélar orðnar svo léttar að þær hanga utan á manni líka. Elín Albertsdóttir elin@365.is Gulli segir að meðan þætt-irnir hans, Gulli byggir, séu í vinnslu hafi hann ekki mik- inn tíma til annarrar smíðavinnu. Þættirnir séu tímafrekir í vinnslu. „Sólarhringurinn minn er oft ansi athyglisverður,“ segir hann. „Ég starfa eingöngu sem smiður í þáttunum þessar vikurnar en tek ekki að mér önnur verkefni. Fólk er oft að framkvæma á kvöldin og um helgar og ég þarf að elta þess tíma. Einnig þarf ég að reka á eftir iðnaðarmönnum því allt þarf þetta að ganga upp,“ segir Gulli en fyrsti þátturinn fór í loftið á mánudags- kvöldið. „Þetta er mikil vinna meðan á þessu stendur,“ segir Gulli sem heimsótti leikarahjónin Björk Jakobsdóttur og Gunnar Helgason í fyrsta þætti. Þau tóku efri hæðina í húsi sínu í gegn með góðum árangri. Gulli vaknar virka morgna kl. 5.30 til að mæta í Ísland í bítið. „Ég er búinn að vera með Bítið í fjögur og hálft ár svo þetta er farið að venjast. Mér þótti erfitt fyrsta árið að vakna svona snemma enda er ég B-týpan. Núna finnst mér eiginlega betra að vakna kl. 5.30 en klukkan sjö. Ég reyni að komast í rúmið klukkan tíu á kvöldin og svo tek ég mér 20 mínútna lúr í hádeginu. Geimferðastofnunin NASA komst að því við rannsókn vegna hvíldar- tíma geimfara að 27 mínútna lúr væri hámark til að viðhalda orku. Ég fer eftir því,“ segir Gulli sprækur. Þegar hann er spurður um eftirlætisverkfæri smiðsins, svarar hann: „Það er leatherman, leður- belti sem maður hengir verkfærin á. Við smiðirnir þurfum að hafa alls kyns verkfæri við höndina, hamarinn, tommustokk, blýant og þess háttar. Nú eru borvélar orðnar svo léttar að þær hanga utan á manni líka,“ segir Gulli og bætir við að mikil bylting hafi orðið í gerð borvéla á undan- förnum árum. „Þær eru öflugar en samt mjög léttar.“ Gulli segist ekki vera öflugur í smíðavinnu heima. „Maður er eiginlega búinn að fá nóg þegar heim er komið. Ég bý í raðhúsi sem var byggt árið 1972 og hef verið að taka það í gegn smám saman undanfarin ár. Ég þarf að taka baðherbergi í gegn hjá mér en það verður ekki fyrr en þættirnir klárast. Við tókum eldhúsið í gegn árið 2005 en tískan í innréttingum hefur breyst mikið síðan þá. Ég segi nú alltaf við fólk að velja klassískar innréttingar því þær þurfa að standa lengi,“ segir Gulli. „Núna eru hvítar innréttingar mest áberandi.“ Í þáttunum tekur hann að sér sjö mismunandi verkefni. „Við breytum fjósi í íbúð í Hálsa- sveit, tökum hús í gegn í Reykjanesbæ og í Hlíðun- um, breytum lítilli kompu í herbergi í miðbænum svo eitthvað sé nefnt,“ útskýrir hann. Fólk sækir um að komast í þáttinn til Gulla og verkefnin eru valin með framleiðsludeild Stöðvar 2. Gulli segir að fólk þurfi að borga fyrir allar breytingar enda fást engir iðnaðar- menn til að vinna frítt. „Þeir þurfa að vinna fyrir salti í grautinn eins og aðrir. Svona breytingar verða líka oft mun meiri en gert er ráð fyrir í upphafi.“ Þættir eins og Gulli byggir hafa verið vinsælir víða um heim og nokkrir eru sýndir á sjónvarpsstöðinni Fine Living. Tímalaus hönnun er best Gunnlaugur Helgason eða Gulli Helga hefur í nóg að snúast þessa dagana við gerð tólf heimilis- þátta fyrir Stöð 2 auk þess sem hann stýrir morgunþætti Bylgjunnar með Heimi Karlssyni. Gulli Helga og Guðmundur Árni Árnason við vinnu í þáttunum Gulli byggir á Stöð 2. Gulli segir að verkfæri hafi breyst. Borvélar núna séu bæði öflugar og léttar. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . S e p T e m B e R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R 2 7 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D D B -C 2 D 8 1 D D B -C 1 9 C 1 D D B -C 0 6 0 1 D D B -B F 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.