Fréttablaðið - 27.09.2017, Side 27

Fréttablaðið - 27.09.2017, Side 27
Starfsfólk fyrirtækjaþjónustu Pennans hefur áralanga reynslu af því að þjónusta fyrirtæki og stofnanir. Mynd/Hanna Leitz Complete er „mini“ hátalari með þráðlausri Bluetooth-tengingu. Þrátt fyrir að vera lítill eru hljóm- gæðin frábær. Á hátalaran- um er hljóðnemi og hentar hann því fyrir fundina, í bústaðinn eða útileguna. USB orkubanki fyrir farsíma og spjaldtölvur hleður tvö tæki í einu. Við leggjum áherslu á að mæta kröfum viðskiptavina okkar, koma til móts við óskir þeirra og geta brugðist hratt við þegar vörur eru pantaðar,“ segir Jóhann Gunnarsson, sölustjóri hjá fyrirtækjaþjónustu Pennans. „Fyrir- tækjaþjónustan verður tuttugu ára í ár og við höfum því áratuga reynslu í því að veita fyrirtaks þjónustu til fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum, allt frá stærstu fyrirtækjum landsins, minni fyrirtækjum og stofnunum niður í einyrkja.“ ný vefsíða eykur möguleika Ýmsar leiðir eru færar til að panta vörur hjá Pennanum. „Hægt er að fá sölumenn okkar á staðinn, hringja í þjónustuverið eða mæta í verslanir okkar. En einnig hefur færst töluvert í vöxt að fólk kjósi að versla í gegnum netið,“ segir Jóhann en fyrr á þessu ári var opnuð ný, stærri og betri vefverslun á www. penninn.is. „Vefurinn er útbúinn mjög öflugri leitarvél og mörgum þykir afar þægilegt að nota vefinn til að versla.“ Viðgerðarþjónusta og stóla- verkstæði Jóhann segir viðskiptavini sína leggja mikið upp úr því að fá góða þjónustu, ekki síst að loknum kaupum. „Fólk er að kaupa verð- mæti og vill fá góða eftirfylgni ef eitthvað kemur upp á. Því erum við með stólaverkstæði ef eitthvað amar að skrifstofustólunum og viðgerðar- þjónustu fyrir til dæmis kaffivélarn- ar sem við leigjum fyrirtækjunum.“ Breitt vöruúrval Vöruúrvalið er sannarlega breitt hjá Pennanum og þær fæst allt sem þarf til að reka skrifstofur. „Við erum með allt frá pennum, borðum og stólum upp í rekstrar- vörur, tölvurekstrarvörur og kaffi,“ segir Jóhann. Fundarherbergi spila stóran þátt í flestum skrifstofum og þar er ekki komið að tómum kofanum frá Pennanum sem býður upp á fjölbreyttar lausnir á snertiskjáum og öðrum búnaði fyrir fundar herbergi. Lögð er áhersla á gæði í vörunum sem boðið er upp á hjá Pennanum. „Við erum bæði með ný og flott merki en einnig vörumerki sem við höfum haft í marga áratugi og erum stolt af,“ segir Jóhann. Hann nefnir sem dæmi Leitz sem er þekkt fyrir bréfabindi, heftara, gatara, hleðslu- banka og þráðlausa hátalara. „Legamaster er annað gæðamerki sem býður upp á tússtöflur og snertiskjái og svo erum við með Kinnarps í stólum og húsgögnum og Herman Miller sem er þekkt merki í skrifstofustólum.“ Skrifstofurými í þróun Á þeim tuttugu árum sem fyrirtækjaþjónusta Pennans hefur starfað hafa orðið miklar breyt- ingar á skrifstofurýmum. Í stað lokaðra skrifstofa eru opin rými nú algengust og þeim fylgja allt aðrar kröfur á húsgögn og þjónustu en áður. „Við fylgjumst vel með breyt- ingum á skrifstofumenningunni og höfum tekið þátt í mikilli þróun. Sumar vörur hafa ekkert breyst, aðrar dottið út og enn aðrar þróast mikið,“ segir Jóhann. Hann tekur sem dæmi að um þessar mundir séu vinsæl svokölluð standandi fundarherbergi. „Það eru framtíðarfundarherbergi þar sem haldnir eru örfundir þar sem fólk stendur í stað þess að sitja. Við erum með lausnir fyrir slík rými.“ Meðal annarra nýjunga nefnir Jóhann aukið úrval Pennans á hleðslubönkum og viðlíka græjum. „Það færist æ meir í vöxt að starfs- fólk vinnur á símana sína, spjald- tölvur eða fartölvur, og þarf þá að vera mikið á ferðinni. Þar koma hleðslustöðvar sterkt inn.“ Þjónusta um allt land Penninn rekur verslanir í Vestmannaeyjum, Keflavík, Akureyri, Ísafirði, Akra- nesi, Húsavík og nokkrar á höfuðborgarsvæðinu. Því er lítið mál að þjónusta fólk um allt land. „Við sendum út um allt land og þegar fyrirtæki panta hjá okkur fá þau vöruna senda upp að dyrum ásamt glaðningi,“ segir Jóhann en í hverjum mánuði er einnig boðið upp á skemmtilegan kaupauka. Allar nánari upplýsingar má finna á www.penninn.is Þjónustan ávallt í fyrirrúmi Góð og lipur þjónusta er aðalsmerki fyrirtækjaþjónustu Pennans sem í tuttugu ár hefur þjónustað fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. KynnInGaRBLaÐ 5 M I ÐV I KU daG U R 2 7 . s e P t e m b e r 2 0 1 7 SKRIfStofan 2 7 -0 9 -2 0 1 7 0 4 :3 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D D B -9 B 5 8 1 D D B -9 A 1 C 1 D D B -9 8 E 0 1 D D B -9 7 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 6 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.