Fréttablaðið - 27.09.2017, Page 36
Þórunn, Örn, Ásta og Kristján aðstoða þig við að hanna draumainnréttinguna frá JKE DESIGN. JKE DESIGN er með fallegar innréttingar fyrir þvottahúsið. MYND/HANNA
Innréttingarnar frá JKE DESIGN hafa verið mjög vinsælar í Danmörku allt frá
því að þær komu fyrst á markaðinn árið 1970.
Innréttingarnar frá JKE DESIGN hafa verið mjög vinsælar í Dan-mörku allt frá því þær komu
fyrst á markaðinn árið 1970. „Frá
upphafi hefur verið lögð áhersla
á vandað handbragð og hugað er
að hverju smáatriði. JKE DESIGN
býður einnig upp á góðar lausnir
sem gera vinnuna í eldhúsinu
auðveldari og skemmtilegri og
reglulega koma fram spennandi
nýjungar þar sem þægindi eru í
fyrirrúmi,“ segir Ásta. Hún starfar
með einvalaliði hönnuða hjá BYKO
sem sjá um að hanna eldhús, bað-
herbergi eða þvottahús að óskum
hvers og eins.
Draumaeldhúsið í BYKO
„Hjá JKE DESIGN fær viðskipta-
vinurinn draumainnréttinguna
hvort sem er fyrir eldhúsið eða
baðherbergið. Við hjá BYKO
bjóðum upp á einstaklega góða
þjónustu og hver og einn fær þá
innréttingu sem hann óskar sér
því hún er hönnuð algjörlega að
hans óskum,“ segir Ásta. „Hjá JKE
DESIGN fást æðislegir búrskápar,
stórir tækjaskápar og hornskúffur
sem ekki fást annars staðar og
margar spennandi útfærslur á
haldalausum innréttingum. Hægt
er að fá innréttingarnar sprautu-
lakkaðar í hvaða lit sem er og
viðurinn í þær er sérvalinn svo
hann hafi sama útlit og áferð,“
upplýsir Ásta og bætir við að JKE
DESIGN bjóði líka upp á einfaldari
innréttingar.
„Við erum með flottar innrétt-
ingar fyrir verktaka, svo sem hvítar
innréttingar með plastfrontum
sem eru harðgerðir og þola mikið
álag,“ nefnir hún.
Hjá BYKO fást einnig hágæða
borðplötur í miklu úrvali og valið
stendur um stein- eða viðar-
plötur. „Við höfum hafið sölu á
alveg möttum borðplötum frá
Fenix. Þær fást í nokkrum litum,
eru hitaþolnar og hægt er að laga
fínar rispur með straujárni þar sem
nanótækni er notuð. Falleg borð-
plata setur mikinn svip á heildar-
útlitið á eldhúsi og baðherbergi,“
segir Ásta.
Allt sem tengist heimilinu
Auk JKE DESIGN innréttinga
fæst allt sem tengist heimilinu í
BYKO. „Ef þú kaupir innréttingu
hjá okkur færðu einnig vaskinn,
blöndunartækin, sturtuna, flís-
arnar, parket og í raun allan
pakkann til að ljúka verkefninu.
Það sparar ótrúlega mikinn tíma
sem annars færi í að fara á milli
staða. Við erum með mjög vönduð
merki og það er markmið okkar að
bjóða framúrskarandi þjónustu,“
segir Ásta.
JKE DESIGN
innréttingar
fást í BYKO
„Hjá BYKO í Breiddinni fást nú innrétt-
ingar frá JKE DESIGN en það er danskt
vörumerki sem býður upp á einstak-
lega breiða línu í innréttingum í hæsta
gæðaflokki. JKE DESIGN er með inn-
réttingar fyrir eldhús, baðherbergi og
þvottahús og að auki skápa og renni-
hurðir,“ segir Ásta Sigurðardóttir, ráð-
gjafi og stílisti hjá BYKO.
JKE DESIGN býður upp á góðar lausnir sem gera vinnuna í eldhúsinu auð-
veldari og reglulega koma fram spennandi nýjungar.
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 7 . S E p t E M B E R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
2
7
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
D
B
-B
D
E
8
1
D
D
B
-B
C
A
C
1
D
D
B
-B
B
7
0
1
D
D
B
-B
A
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
6
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K