Skinfaxi - 01.11.2015, Side 3
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Þ
ann 16. nóvember síðastliðinn var
Ungmennafélagið Þjótandi stofnað
í Félagslundi í Flóahreppi. Hið nýja
ungmennafélag mun taka við störf-
um ungmennafélaganna þriggja,
Umf. Baldurs, Umf. Samhygðar og
Umf. Vöku í Flóahreppi. Fundurinn var vel
sóttur en 38 eru skráðir stofnfélagar. Undir-
búningsnefnd lagði fram tillögu að bráða-
birgðastjórn og því hverjir skyldu verða
nefndarformenn í félaginu og var hún
samþykkt.
Stjórn nýs félags er þannig skipuð: Guð-
munda Ólafsdóttir formaður, Magnús Steph-
ensen Magnússon ritari og Lilja Ómarsdóttir
gjaldkeri. Í varastjórn eru Baldur Gauti Tryggva-
son og Stefán Geirsson. Formaður íþrótta-
nefndar var kjörinn Árni Geir Hilmarsson, for-
maður skemmtinefndar Sveinn Orri Einarsson
og formaður ritnefndar Fanney Ólafsdóttir.
Undir liðnum Önnur mál var nýkjörinni
stjórn árnað heilla og sameiningarnefndinni
þökkuð góð störf undanfarið ár.
Okkur vantaði vettvang
til að koma krökkunum
saman á einn stað
„Upphafið að stofnun félagsins má rekja til
ársins 2006 þegar hrepparnir í Flóanum voru
sameinaðir í eitt sveitarfélag. Ári áður voru
skólarnir sameinaðir í Flóaskólanum þannig
að krakkarnir í þessum þremur félögum voru
farnir að kynnast meira en voru aftur á móti
ekki að fara á sömu æfingar eða keppa fyrir
sama félag. Ekki heldur að taka þátt í sömu
félagsstörfum og ýmsu öðru. Okkur vantaði
því vettvang til að koma þessum krökkum
saman á einn stað og fá jafnvel fleiri til starfa,“
Ungmennafélagið Þjótandi stofnað
sagði Guðmunda Ólafsdóttir, formaður ný-
stofnaðs Ungmennafélagsins Þjótanda.
Guðmunda sagði þetta hafa verið hið rétta
í stöðunni og auðveldaði alla umsýsluna í
kringum starfið. Þetta lyfti tvímælalaust starf-
inu á hærra plan, allir krakkarnir gætu verið
saman og átt auðveldara með að taka þátt í
verkefninu.
„Það verður því ekki annað sagt en að
spennandi tímar séu fram undan. Við ætlum
á næsta aðalfundi í janúar að leggja fram
tillögu um að gömlu félögin verði lögð
niður. Það er meiri sómi að því en að hafa
óstarfandi félög í skugga nýs félags. Þetta
nýja félag verður vonandi til framdráttar hér
á svæðinu,“ sagði Guðmunda Ólafsdóttir.
Efri röð frá vinstri:
Stefán Geirsson,
Fanney Ólafsdóttir,
Árni Geir Hilmarsson,
Sveinn Orri Einarsson
og Baldur Gauti
Tryggvason. Neðri röð
frá vinstri: Lilja Ómars-
dóttir, Guðmunda
Óladóttir og Magnús
Stephensen.