Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
S törf sjálfboðaliða innan íþrótta- og ung-mennafélagshreyfingarinnar er erfitt að meta til fjár enda ekki auðvelt að fá
góða yfirsýn yfir alla þá vinnu sem lögð er
fram. Vinnustundirnar eru óteljandi og óhætt
að segja að sjálfboðaliðavinnan sé einfaldlega
einn dýrmætasti fjársjóður sem hreyfingin á.
Sjálfboðaliðarnir hafa í gegnum tíðina bor-
ið starfið uppi og í raun verið sá hornsteinn
sem allt starf byggist á. Þó mörg félög hafi
launaða starfsmenn á sínum snærum hafa
sjálfboðaliðarnir ávallt haft veigamiklu hlut-
verki að gegna með því að sitja í stjórnum,
ráðum og nefndum. Fyrir utan það að móta
og stýra starfinu koma þeir m.a. að fjáröflun-
um, skipulagningu viðburða og mótahaldi,
svo eitthvað sé nefnt.
Í framhaldi af þessum inngangsorðum má
velta því fyrir sér hvað fái fólk til að verja jafn
miklu af tíma sínum í sjálfboðaliðastörf fyrir
hreyfinguna og raun ber vitni.
Ánægja og gleði eru vitaskuld lykilþættir.
Mörgum finnst einfaldlega gaman að starfa
að áhugamálum sínum með fólki sem deilir
þeim með manni. Það er gaman að vera hluti
af liði og geta lagt sitt af mörkum til að gera
veg þess sem mestan. Margir foreldrar hafa
tengst starfinu í gegnum íþróttaiðkun barna
sinna og þannig lagt sitt af mörkum. Þar veg-
ur forvarnaþátturinn án efa þungt. Þá hafa
margir byrjað sem iðkendur hjá íþróttafélagi
og komið svo til starfa fyrir félagið síðar. Svo
eru margir sem tengjast sama félaginu jafn-
vel áratugum saman og eru alltaf til í að
leggja fram hjálparhönd þegar á þarf að halda.
Þó störf sjálfboðaliða séu mjög oft þunga-
miðjan í íþrótta- og ungmennafélagsstarfinu
er ekki sjálfgefið að svo sé. Þeir sem hafa
starfað í hreyfingunni vita að oft vantar fleiri
hendur og á sumum stöðum hefur starfið
jafnvel lagst niður vegna þess að ekki hefur
fengist fólk til að halda því gangandi.
Hjá DGI, systursamtökum UMFÍ í Dan-
mörku, hafa menn bent á ýmsar leiðir sem
hægt er að fara til að fá fleiri sjálfboðaliða til
starfa og ekki síst hvernig megi auka ánægju
sjálfboðaliðanna í störfum fyrir hreyfinguna.
Eitt af því sem þeir nefna er að mikilvægt
sé að hafa góða heimasíðu með góðum upp-
lýsingum um félagið. Þar geti fólk, sem hefur
áhuga á að starfa fyrir félagið, séð fyrir hvað
það stendur og hvernig starf þess er skipulagt.
Annað atriði er að tala einfaldlega við þá sem
maður þekkir, spyrja þá hvort þeir séu til í að
koma til starfa hjá félaginu. Svo nefna þeir líka
að mikilvægt sé að geta þess hvar sem færi
gefst að sjálfboðaliðar séu velkomnir til starfa.
Þar má nefna ýmsa samfélagsmiðla, fréttabréf,
héraðsblöð o.fl. Með því að auglýsa eftir sjálf-
boðaliðum sé allt eins líklegt að einhverjir
nýir bætist í hópinn.
Eitt er að fá sjálfboðaliða til starfa en annað
að fá þá til að starfa til lengri tíma. Þá skiptir
miklu máli að fólk fái hrós fyrir vel unnin störf.
Gaman að vera hluti af liði
og geta lagt sitt af mörkum
Því má ekki gleyma að klappa fólki á öxlina
og láta í ljós þakklæti þegar vel er gert.
Í Danmörku hafa félög stofnað sérstaka
sjálfboðaliðaklúbba innan sinna raða. Með
því að vera í sjálfboðaliðaklúbbnum gefst
fólki ekki bara tækifæri til að starfa fyrir sitt
félag heldur er ýmiss konar ávinningur sem
því fylgir. Við inngöngu í klúbbinn fær við-
komandi bol eða búning félagsins að gjöf og
ýmis önnur fríðindi fylgja eins og aðgangur
að leikjum og viðburðum, afsláttur af æfinga-
gjöldum og í líkamsrækt, afsláttarkort og fleira.
Einnig er viðkomandi t.d. í facebook-hópi
þar sem upplýsingum er miðlað. Ekki er alltaf
gerð krafa um að félagar taki þátt í öllu starfi
klúbbsins heldur þegar þeir hafa tækifæri til.
Framlag sjálfboðaliða innan íþróttahreyf-
ingarinnar til samfélagsins er ómetanlegt og
erfitt að gera sér fyllilega grein fyrir verð-mæti
þess starfs. Eitt er víst að margir einstaklingar
eru tilbúnir að verja hundruðum klukku-
stunda í störf fyrir hreyfinguna á ári hverju
án þess að taka neitt fyrir það. Fyrir það ber
að þakka.
Mörg sveitarfélög virða þetta mikla starf
og styðja íþróttastarfið vel með góðri aðstöðu
og góðum fjárframlögum sem gerir félögun-
um kleift að halda úti öflugra starfi en ella.
Öflugt íþróttastarf er eitt af því sem fólk
skoðar áður en það flyst í nýtt sveitarfélag.
Örn Guðnason, varaformaður UMFÍ
Örn Guðnason,
varaformaður
UMFÍ.
Örn Guðnason, varaformaður UMFÍ:
19. Unglingalands-
mót UMFÍ Borgar-
nesi 2016
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur
á milli Ungmennasambands Borgarfjarðar,
UMSB, UMFÍ og Borgarbyggðar um fram-
kvæmd 19. Unglingalandsmóts UMFÍ um
verslunarmannahelgina 2016. Unglinga-
landsmót hefur einu sinni áður verið haldið
í Borgarnesi en það var árið 2010.
Mótin hafa vaxið og sannað gildi sitt sem
glæsilegar fjölskyldu- og íþróttahátíðir þar
sem saman koma þúsundir barna og ungl-
inga ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt
í fjölbreyttri dagskrá. Unglingalandsmót
UMFÍ er vímuefnalaus fjölskylduhátíð þar
sem börn og unglingar á aldrinum 11–18
ára reyna með sér í fjölmörgum íþrótta-
greinum en samhliða er boðið upp á fjöl-
breytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir
alla fjölskylduna.
Unglingalandsmótin hafa hvarvetna
vakið mikla athygli og þeir fjölmörgu sem
þau hafa sótt hafa verið öðrum til mikillar
fyrirmyndar með allri framkomu hvort sem
er í keppni eða leik.
Neðri mynd: Frá vinstri: Hrönn Jónsdóttir,
ritari UMFÍ, Ásgeir Ásgeirsson, varasam-
bandsstjóri UMSB, og Kolfinna Jóhannes-
dóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar.
6. Landsmót UMFÍ
50+ Ísafirði 2016
Í nóvember sl. var skrifað undir samninga
milli UMFÍ, Ísafjarðarbæjar og HSV vegna
6. Landsmóts UMFÍ 50+ sem verður haldið
á Ísafirði 10.–12. júní 2016.
Um er að ræða tvo samninga. Annars
vegar er samningur á milli landsmóts-
nefndar sem HSV hefur skipað, Ísafjarðar-
bæjar og UMFÍ. Sá samningur varðar upp-
byggingu og afnot af mannvirkjum, áhöld-
um, tækjum og búnaði sem er allt nauð-
synlegt til að mótið geti farið fram. Hinn
samningurinn er á milli UMFÍ og HSV og
snýr að skipulagi mótsins og undirbúningi.
Undirbúningur fyrir mótið er kominn
vel á skrið. Undirbúningsnefnd hefur starf-
að frá sumri en hana skipa Guðný Stefanía
Stefánsdóttir formaður, Jóhann Króknes
Torfason, Anna Lind Ragnarsdóttir og
Jónas Gunnlaugsson. Þau eru öll fulltrúar
HSV. Gísli Halldór Halldórsson er fulltrúi
Ísafjarðarbæjar og fulltrúar UMFÍ eru Flem-
ming Jessen og Auður Inga Þorsteinsdóttir
framkvæmdastjóri UMFÍ.
Efri mynd: Frá vinstri: Guðný Stefanía
Stefánsdóttir, formaður HSV, Haukur
Valtýsson, formaður UMFÍ, Gísli Halldór
Halldórsson bæjarstjóri og Stefanía
Ásmundsdóttir, formaður landsmóts-
nefndar.
Skrifað undir samninga