Skinfaxi - 01.11.2015, Side 6
6 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 4. tbl. 2015
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson,
jonkristjan@umfi.is.
Ábyrgðarmaður: Haukur Valtýsson,
formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Linda
Ólafsdóttir, Róbert Daníel Jónsson, fotbolti.net
o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Örn Guðnason formaður,
Gunnar Gunnarsson,
Berglind Ósk Agnarsdóttir,
Pétur Arason og
Jóhanna Hreiðarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsfólk UMFÍ:
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa
og kynningarfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi,
Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Haukur Valtýsson, formaður,
Örn Guðnason, varaformaður,
Hrönn Jónsdóttir, ritari,
Helga Jóhannesdóttir, gjaldkeri,
Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórnandi,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi,
Björn Grétar Baldursson, meðstjórnandi.
Varastjórn UMFÍ:
Þorgeir Örn Tryggvason,
Kristinn Óskar Grétuson,
Sigurður Óskar Jónsson og
Guðmundur Sigurbergsson.
Forsíðumynd:
Forsíðumyndin er af ungum þátttakendum í
íþróttaskóla HSV á Ísafirði. Íþróttaskólinn hefur
notið mikilla vinsælda hjá yngri kynslóðinni.
Í blaðinu er fjallað um blómlegt starf HSV en
innan sambandsins eru 23 aðildarfélög.
Þátttaka er góð í því íþróttastarfi sem í boði er
og næg verkefni eru fram undan.
Margt er á döfinni hjá HSV á næsta ári. Stærsta
verkefnið er líklega 6. Landsmót UMFÍ 50+
en mótið verður haldið á Ísafirði næsta sumar.
M örg okkar eru afar áhuga-söm um að börnin okkar leggi stund á íþróttir, tónlist
eða taki þátt í öðru æskulýðsstarfi.
Við vitum að börnin hafa gott af
þessu, það er uppbyggilegt, þrosk-
andi og styrkir einstaklinginn á all-
an máta. Rannsóknir sýna, svo að
ekki verður um villst, að þetta er
raunin. Foreldrar eru, eins og gefur
að skilja, misjafnlega í stakk búnir til
að greiða götu barna sinna í þess-
um efnum en eins og allir vita sem
kynnst hafa kostar það sitt að senda
börnin í íþróttir, tónlist og eða í ann-
að tómstunda- og æskulýðsstarf.
Ofan á bætast ferðir vítt og breitt
sem hafa drjúgan kostnað í för með
sér. Ferðalög, keppnisgjöld og uppi-
hald eru ansi hár kostnaðarliður.
Eins og við þekkjum eru notaðar
ýmsar leiðir til að lækka kostnaðinn,
stundum tekst að brúa bilið með
ýmsum fjáröflunarleiðum, en það
sem vantar upp á er foreldranna
eða aðstandenda að greiða. Þetta
verða á stundum nokkrar keppnis-
ferðir yfir árið. Eftir því sem börnin
verða eldri verður kostnaðurinn oft
og tíðum meiri. Foreldrar á lands-
byggðinni þekkja þetta best, börnin
þeirra þurfa margsinnis að fara í æf-
inga- og keppnisferðir á höfuðborg-
arsvæðið. Þá þurfa margir að fara
langan veg með ærinni fyrirhöfn,
ekki síst fjárhagslegri.
Þegar börnin feta sig upp þroska-
stigann hlotnast mörgum þeirra sá
heiður að verða fulltrúar Íslands á
erlendum vettvangi. Þau eru valin í
yngri landslið Íslands, nokkuð sem
mörg þeirra hefur dreymt að yrði
einhvern tíma að veruleika. Kostnað-
ur við þátttökuna lendir á landsliðs-
fólkinu sjálfu og þá verður enn eina
ferðina að grípa til fjáröflunar til að
mæta þeim kostnaði. Stundum
tekst vel til en oft vantar upp á og
þá lendir á foreldum og aðstand-
endum að borga brúsann. Fólk er
misjafnlega statt og getur þetta
því verið drjúgur biti að kyngja fyrir
marga. Sérsamböndin langflest
hafa ekki úr miklu að moða og hafa
í raun nóg með sig.
Það eru eflaust margir sem spyrja
sig: Hvað er hægt að gera til að létta
fólki þennan kostnað sem óumflýjan-
lega fylgir íþróttaiðkun og tómstunda-
starfi? Félögin gera hvað þau geta
og eins hafa sveitarfélögin sum
hver styrkt sitt fólk til að létta undir,
til dæmis hvað varðar þann þátt sem
lýtur að ferðakostnaði. Ríkisvaldið
hefur látið meira fé rakna í ferða-
sjóðinn en áður en betur má ef duga
skal. Þetta er mál sem ekki er hægt
að hlaupa frá enda engin lausn feng-
in með því. Allir sem einn, ríkið og
sveitarfélög, verða með einhverjum
hætti að koma enn beittar að þessu
máli. Öll viljum við börnunum vel
en það kostar að halda úti öflugu
íþróttastarfi. Eitt er ég sannfærður
um, að aukið fjármagn í þennan mála-
flokk er ekki bara íþyngjandi fyrir
ríkisvaldið til lengri tíma litið. Pen-
ingunum er vel varið og við stönd-
um öll sterkari þegar upp er staðið.
Nú bíður okkar nýtt ár, okkur öll-
um til heilla, og ekki síður spennandi
en það sem er að kveðja. Skinfaxi
óskar ungmennafélögum, sem og
landsmönnum öllum, gleðilegra
jóla og farsældar á nýju ári.
Komið til móts við þátttakendur
í íþrótta- og tómstundastarfi
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjórnarspjall:
U ngmennafélag Íslands og Wappið hafa undirritað
samstarfssamning sem felur
það í sér að félögin ætla að
vinna saman að því að koma
leiðarlýsingum um gönguleiðir í
gönguverkefni UMFÍ á stafrænt
form til birtingar í Wappinu.
Með samningnum verður
Ungmennafélag Íslands einn af
helstu samstarfsaðilum Wapps-
ins og með frá byrjun þar sem
Wappið var fyrst gefið út 5. nóv-
ember. Innan tíðar mun Ung-
mennafélag Íslands jafnframt
bjóða landsmönnum upp á
tvær leiðarlýsingar í Wappinu
notendum að kostnaðarlausu.
Þetta eru fyrstu skrefin í sam-
starfi þessara aðila.
Um Wappið
Wappið er stafrænn gagnagrunnur leiðarlýsinga á Íslandi sem er miðlað í gegnum app fyrir I-phone og
Android-snjallsíma. Leiðarlýsingarnar verða um allt land, með GPS-ferlum, ljósmyndum og er miðlað á ensku
og íslensku til notenda. Hægt er að hlaða leiðarlýsingum á símann og nota án þess að vera í gagnasambandi.
Stokkur ehf. forritar Wappið og Samsýn ehf. sér um kortagrunninn fyrir Ísland.
Leiðarlýsingar um gönguleiðir
í gönguverkefni UMFÍ á stafrænt form
Einar Skúlason hjá Wappinu og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Ungmennafélags Íslands, handsala samstarfssamninginn.