Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 8
8 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
B ygging skíðaskála á Brandsholti í Selár-dal við Steingrímsfjörð hefur staðið yfir síðan í vor en nýja húsið er allstór
braggi. Það er Skíðafélag Strandamanna sem
stendur fyrir framkvæmdunum og eru menn
frá Trésmiðjunni Höfða á staðnum við störf
auk sjálfboðaliða. Vignir Örn Pálsson, formað-
ur Héraðssambands Strandamanna, segir að
stefnt sé að því að taka skálann í notkun í
vetur og það sé alveg ljóst að þessi aðstaða
muni koma í góðar þarfir og lyfta skíðastarf-
inu á hærra plan.
Þegar á allt er litið hafa
framkvæmdir gengið vel
„Fyrir skemmstu færðum við rafmagnsinn-
takið inn og gengum frá vatnsbólinu. Það er
komið rennandi vatn en við eigum eftir að
ljúka við innivinnu eins og að setja upp milli-
veggi og hreinlætisaðstöðu. Þetta verður
klárað á næstunni og er stefnt að því að taka
þessa aðstöðu að fullu í notkun í vetur. Við
vorum heppnir með veður í september og
vel gekk að reisa húsið. Þegar á allt er litið hafa
framkvæmdir gengið vel en við eigum ekki
óþrjótandi peninga. Við ætlun núna sem
fyrst að loka húsinu og koma því í þannig
ástand að hægt sé að nota það,“ sagði Vignir
Örn Pálsson, formaður HSS.
Vignir Örn segir að starfið muni gjörbreyt-
ast þegar þessi aðstaða verður komin upp og
mikilvægt sé að hafa almennilegt húsaskjól.
Svæðið þarna um kring er eingöngu göngu-
svæði en mikill áhugi hefur alltaf verið fyrir
gönguskíðum á Ströndum.
Bygging skíðaskála í Selárdal við Steingrímsfjörð:
Starfið mun gjörbreytast
með þessari aðstöðu
„Áhuginn á svæðinu er mikill og hefur svo
verið um árabil. Nú er fólk farið að koma til
okkar úr Reykhólasveitinni og tveir keppend-
ur frá okkur fóru á á Andrésar andarleikana
síðasta vetur. Það er aldrei að vita nema að
með tilkomu þessa skíðaskála fari göngu-
áhugafólk að sunnan að koma hingað í aukn-
um mæli. Það myndi ekki koma mér á óvart
enda umhverfið allt hér um kring frábært til
útivistar. Það eru ekki nema um tveir og hálf-
ur tími sem tekur að renna hingað norður úr
Reykjavík og um 15 mínútna akstur inn á
gönguskíðasvæðið,“ sagði Vignir Örn.
Vignir Örn sagði að skíðaganga ætti sér
langa sögu á Ströndum. Á sjötta áratugnum
áttu Strandamenn Íslandsmeistara í skíða-
göngu. Vignir Örn segir ákveðinn kjarna
skíðagöngufólks stunda íþróttina alla jafnan
en tíu manna hópur ætlar að fara í æfinga-
búðir til Þýskalands í febrúar.