Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
J ón Birgir Guðmundsson á Selfossi er faðir Elvars Arnar Jónssonar sem hefur tekið þátt í landsliðsverkefn-um með 19 ára handboltalandsliði
Íslands. Hann segir heilmikinn kostnað því
samfara að fara í keppnisferðir með ungl-
ingalandsliðinu í handknattleik. Jón Birgir
segir ennfremur að þegar krakkar eru
komnir á unglingsaldur og lengra í íþrótt
sinni og þar með í landslið séu landsliðs-
verkefni oft á sumrin. Við það tvöfaldist
kostnaðurinn því það sé oft erfitt fyrir
þessa krakka að fá vinnu.
„Það eru ekki miklir möguleikar í þeim
efnum þegar þau segjast þurfa kannski að
fá frí 3–4 sinnum yfir sumarið til að fara í
1–2 vikna keppnisferðir. Það er bara eitt
sérsamband, KSÍ, sem stendur undir þessu.
Handknattleikssambandið er að reyna
að gera sitt besta og koma til móts við sitt
keppnisfólk. Það eru öll sérsambönd í
svipaðri stöðu og HSÍ sem hafa ekki bol-
magn til að fjármagna þessar unglinga-
landsliðsferðir,“ sagði Jón Birgir.
Tvær ferðir kostuðu
okkur 475.000 krónur
Aðspurður hve kostnaðurinn væri hár
þegar upp væri staðið frá venjulegri ferð
sagðist Jón Birgir geta sagt frá tveimur
ferðum sem 19 ára landsliðið fór til
Svíþjóðar og Rússlands í sumar sem leið.
„Við þurftum að borga flugfar og uppi-
hald og þegar upp var staðið var saman-
lagður kostnaður 475.000 krónur. Ég veit
ekki um neinn leikmann sem hefur ekki
farið vegna kostnaðar. Leikmenn reyna
hvað þeir geta til að safna upp í þennan
kostnað með ýmsum hætti. Minn strákur
fór með félaga sínum í nokkur fyrirtæki
hér á svæðinu eins og allir gera til að safna
styrkjum en það dekkaði ekki kostnaðinn
til fulls. Ennfremur sóttu þeir um styrki hjá
sínum félögum sem eru ekki háir og þetta
hjálpar alltaf eitthvað. Þetta er bara staðan
og í langflestum tilfellum þarf viðkomandi
að reiða fram einhvern pening úr eigin
vasa. Eins og ég sagði áður er erfitt að
vinna með þessu þegar þú ert kominn í
landslið. Það eru æfingar alla daga, flestar
byrja um fimmleytið og stundum fyrr, fer eftir
hvaða íþróttahús er laust í Reykjavík. Síðan
ertu fjarverandi frá vinnu, kannski allt að
tvær vikur í senn. Sonur minn fór í þrjár ferðir
í sumar en í þriðju ferðinni, sem var til Katar,
var liðinu boðið í heimsókn þar sem Katar-
menn borguðu flugið og uppihaldið,“ sagði
Jón Birgir.
Það ætti frekar að líta
á þetta sem fjárfestingu
til framtíðar
Þegar Jón Birgir var spurður hvað væri til ráða
í þessum efnum sagði hann að það verði að
endurskoða sýn stjórnvalda á þetta mál.
„Það er alltaf verið að þrýsta á hærri fjár-
framlög hvað ferðakostnað áhrærir. Það er
hins vegar alltaf litið á þetta sem hrein
útgjöld fyrir ríkið. Það ætti miklu frekar að
líta á þetta sem fjárfestingu til framtíðar.
Það er rosalega gaman fyrir þessa krakka
og í raun heiður að vera valin í landsliðið
og að leika fyrir Íslands hönd. Það er frá-
bær upplifun og sérstaklega hjá 19 ára
þar sem liðinu gekk mjög vel, en kostn-
aðurinn er mikill, það er engin spurning.
Ég er ekki að gagnrýna HSÍ, þar er bara
ekki úr meiri peningum að moða eins og
hjá öllum sérsamböndum, nema KSÍ.
Lausn í þessum efnum er ekki í sjónmáli
nema að stjórnvöld láti meira fé af hendi
til þessa málaflokks og svo þyrftu að koma
til stærri styrktaraðilar. Það er skilningur
á vandanum, allir eru af vilja gerðir, en
hreyfingin er í fjársvelti. Það er enginn að
öfundast út í KSÍ, alls ekki, en það vildu
bara fleiri vera í sömu stöðu og þeir. KSÍ
gerir þetta mjög veglega og stendur flott
að málum og eiga heiður skilið fyrir það,“
sagði Jón Birgir.
Jón Birgir sagði að þótt HSÍ hefði fengið
aukin framlög vegna frábærs árangurs A-
landsliðsins byggðist starfið engu að síður
að miklu leyti á fórnfýsi, bæði hjá þeim
sem stjórna og þeim sem eru að spila.
Leikmenn, ekki síst, leggja gríðarlega
mikið á sig.
Norska liðið fékk
dagpeninga og allt var
greitt undir þá
Jón Birgir nefndi eitt dæmi frá HM í Rúss-
landi í sumar þar sem Ísland náði frábær-
um árangri og hreppti bronsverðlaun.
„Íslenska liðið var með Norðmönnum í
riðli og þeir ætluðu sér alltaf að leika um
gullið, en það gekk ekki eftir. Norska liðið
var ekkert með meiri mannskap í kringum
sitt lið en við. Það kom í ljós í samtölum við
þá að þeir fá dagpeninga og allt er greitt
undir þá. Auk þess fá þeir ýmiss konar
fatnað og útbúnað sem þeir eignast.
Þarna er ólíku saman að jafna enda skilja
Norðmenn ekkert í því hvað við komumst,
land án lítillar umgerðar,“ sagði Jón Birgir.
Dýrt að vera valinn
í unglingalandslið
Í greinargerð með tillögunni segir:
„Það eiga allir að eiga jafnan rétt til þátttöku
í íþróttum og verða afreksfólk. Því miður er
þessu ekki þannig háttað. Afreksfólkið okkar
þarf að eiga efnaða foreldra til að geta tekið
þátt í landsliðsverkefnum. Börn og unglingar,
sem eru valin til keppni í landsliðum okkar,
þurfa sjálf að greiða stóran hluta af ferða- og
gistikostnaði. Þetta er algerlega óásættanlegt.“
Skinfaxi fékk feður tveggja ungmenna
til að segja frá reynslu sinni af þátttöku
sona sinna í landsliðsverkefnum. Annars
vegar er Jón Birgir Guðmundsson á Selfossi,
en sonur hans, Elvar Örn Jónsson, tók í sumar
þátt í verkefnum 19 ára handknattleiks-
landsliðsins. Hins vegar er Guðjón Axelsson
í Keflavík en sonur hans, Elvar Snær Guðjóns-
son, var í 15 ára landsliðinu í körfuknattleik.
Á 49. sambandsþingi UMFÍ, sem haldið
var í Vík í Mýrdal 10. og 11. október sl.,
var samþykkt tillaga þar sem mennta- og
menningarmálaráðherra var hvattur til að
sjá til þess að íslenska ríkið greiði ferða- og
gistikostnað barna og unglinga í landsliðs-
ferðum íslenskra landsliða.
Þurfa alltaf að reiða fram einhvern pening úr eigin vasa
Feðgarnir Jón Birgir
Guðmundsson og
Elvar Örn Jónsson
á Selfossi.