Skinfaxi - 01.11.2015, Side 11
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 11
G uðjón Axelsson er faðir Elvars Snæs Guðjónssonar sem var í 15 ára landsliðinu í körfuknattleik er tók
þátt í Copenhagen Invitational-
móti í Danmörku sl. sumar. Tveir leikmenn
frá Keflavík voru í liðinu. U15-liðið stóð sig
gríðarlega vel á mótinu og vann til silfur-
verðlauna eftir tap gegn Berlínarúrvalinu í
hreinum úrslitaleik. Fjórar stúlkur úr Kefla-
vík voru valdar í 12 manna landsliðshóp
U15 sem tók þátt í Copenhagen Invitational.
Fjórar stúlkur voru líka valdar til að keppa
með U16 á Norðurlandamóti yngri lands-
liða sem fór fram í Solna í Svíþjóð og fjórar
stúlkur valdar til að keppa með U16 á EM
en íslenska liðið lék í Rúmeníu. Einn leik-
maður úr Keflavík var valinn til að keppa
með U16-liði drengja á Norðurlandamóti
yngri landsliða í Solna.
Ekkert annað í stöðunni
en að ráðast í söfnun
„Til að fjármagna kostnað við ferðirnar var
ekkert annað í stöðunni en að ráðast í
söfnun. Við í foreldraráði fórum saman í
söfnun og náðum nánast að safna upp í
ferðakostnaðinn. Ferðirnar til Danmerkur,
Svíþjóðar og Andorra kostuðu um tvær
milljónir króna og tókst okkur að mestu
að safna upp í þessar ferðir. Söfnunin fór
fram með hefðbundnum hætti, dósum var
safnað, við fengum verkefni hjá Isavia og
Fríhöfninni við að endurmerkja poka og
unnum á Nettó-mótinu og á Ljósanótt.
Styrkur kom síðan frá unglingaráði.
Mér fannst það bara vera afrek að ná að
dekka kostnaðinn með þessum hætti en
ég vissi að í einhverjum tilfellum þurftu
leikmenn alfarið að borga úr eigin vasa,“
sagði Guðjón þegar hann var inntur eftir
kostnaði við keppnisferðir sonar síns.
Það þarf að finna leiðir
til að koma til móts við
krakkana
Guðjón sagði það deginum ljósara að þessi
mál þyrfti að skoða og reyna að finna leiðir
til að koma til móts við þá krakka sem valdir
væru í landsliðið.
„Auðvitað hvetjum við foreldrar krakkana
endalaust áfram og það er mikill heiður að
vera valinn í landslið en ferðir til þátttöku í
mótum á erlendum vettvangi kosta sitt og
það þarf að bretta upp ermar til fjármagna
dæmið. Það er hægt með þrotlausri vinnu að
safna upp í þessar keppnisferðir en við verð-
um að hafa í huga að markaðurinn er ekki
endalaus. Vonandi er að það gerist ekki
að foreldrar þurfi að afþakka landsliðssæti
krakka sinna vegna bágrar fjárhagsstöðu.“
Peningurinn verður að
koma frá ríkinu
„Ferlið í þessu dæmi er alveg handónýtt,
það sem snýr að ferðakostnaði. Peningur-
inn og styrkurinn verður að koma með
einhverjum hætti, jafnvel frá ríkisvaldinu,
þó ekki væri nema til helminga. Hér fyrir
sunnan eru einfaldlega ekki nógu mörg
fyrirtæki til að styrkja þessa krakka til þátt-
töku. Við hér í Keflavík eigum landsliðsfólk
í mörgum keppnisgreinum og allir standa
frammi fyrir sama vandanum, það er að
safna, finna styrki eða standa sjálf undir
kostnaði til þátttöku á mótum erlendis.
Það eru allir á hlaupum um allan bæ að
safna. Vandamálið er svo kannski enn verra
í litlum bæjarfélögum úti á landsbyggðinni.
Ef ekki verður gripið í taumana og ákveðin
einhver stefna hjá stjórnvöldum verður
þetta eilífðarvandamál,“ sagði Guðjón.
Það þarf að bretta upp ermar til að fjármagna dæmið
Feðgarnir Elvar
Snær Guðjónsson
og Guðjón Axels-
son í Keflavík.