Skinfaxi - 01.11.2015, Side 17
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 17
Þ að hafði lengi verið draumur hjá mér að fara í íþróttalýðháskóla í Danmörku og lét ég verða af því að árið 2014. Lýð-háskólinn, sem ég valdi, heitir Gerlev
Idrætshøjskole og er á Sjálandi. Vorið áður
kláraði ég menntaskóla og vann um haustið til
þess að safna pening. Það var stórt skref að
flytja að heiman í fyrsta skipti, alein og til út-
landa í þokkabót. Fyrstu vikurnar íhugaði ég
að fara aftur heim og var ekki sannfærð um að
þetta hentaði mér. Það lagaðist þó, þegar líða
tók á, enda mikilvægt að gefa nýju umhverfi
tíma til aðlögunar. Það kom mér virkilega á
óvart hversu þroskandi þessi tími var og vil ég
með þessum pistli segja frá reynslu minni og í
leiðinni hvetja ungt fólk til þess að fara í lýð-
háskóla.
Fyrstu dagana í skólanum var mikið lagt upp
úr því að nemendur kynntust hver öðrum og
var engum gefinn kostur á feimni. Við vorum
látin fara í alls konar leiki, faðmast, dansa, skipt-
ast á persónulegum skoðunum og deila vand-
ræðalegri lífsreynslu. Fyrsta vikan var svo við-
burðarík að hún leið eins og einn mánuður.
Þegar fór að koma rútína á lífið höfðu allir valið
sér aðalgrein, aukagrein og tvær bóklegar grein-
ar. Bæði aðal- og aukagreinarnar eru íþróttir.
CrossFit var aðalgreinin mín í sex mánuði en á
tveggja mánaða fresti skiptum við um auka-
grein. Þar prófaði ég yoga, dans, fimleika og fót-
bolta. Bóklegu greinarnar eru í óhefðbundnari
kantinum en allar lærdómsríkar á sinn hátt.
Dæmi um bóklegar greinar eru Art Class þar
sem sköpunargáfunni er gefin útrás eða Harry
Potter þar sem fræðst er um galdramenn og
horft á kvikmyndir. Einnig voru í boði fög líkt
og næringar- og heilsufræði, íþróttasálfræði
og nudd ásamt fleiri greinum sem stuðla að
heilsu og góðum lífstíl. Eftir athafnasama daga
tók svo við ekta heimavistarfílingur á kvöldin
eða ‘hygge’ eins og Danirnir kalla það. Þá voru
dýnurnar dregnar inn í sal og horft á mynd á
stórum skjá, sungið yfir varðeldi ef veðrið var
gott, spilað eða spjallað yfir tebolla.
Meðan á dvölinni stóð ferðaðist ég bæði um
Danmörku og til annarra landa. Í lok janúar
var farið í skíðaferð til Noregs þar sem ég próf-
aði bæði gönguskíði og snjóbretti. Eftir tvo
mánuði var haldið til La Santa með CrossFit-
hópnum í æfingabúðir þar sem við tókum m.a.
þátt í Mini Triathlon og kepptum í eftirhermu
af heimsleikunum í CrossFit. Ein vikan í skól-
anum var svokölluð Ritus-vika eða óvissuvika.
Nemendum var skipt í nokkra hópa og dró
hver og einn miða um hvert skyldi haldið. Við
fengum ekkert að vita hvert við værum að fara
eða hvað yrði gert fyrr en við komum á áfanga-
stað. Ferðin var skemmtileg og lærdómsrík lífs-
reynsla sem ég má ekki deila með lesendum til
að skemma ekki það óvænta.
Íþróttatímarnir voru alltaf krefjandi og var
mikið lagt upp úr hópeflingu og stuðningi við
félagann. Einnig var lögð rík áhersla á að við
lærðum að segja hvert öðru til og lagfæra tækni.
Ég tók ótrúlega mikið af fróðleik með mér sem
hefur nýst mér vel í því sem ég geri nú. Allir
kennararnir eru afar metnaðarfullir þegar kem-
ur að starfinu og með það markmið í huga að
nemandinn fái sem mest út úr dvölinni. Það
má segja að ég hafi lært hugtakið „heilsa“ upp
á nýtt í skólanum en áður hafði ég þróað með
mér mikla útlitsdýrkun og miðuðust æfingar
og mataræði eingöngu að því. Í Gerlev voru
áherslurnar öðruvísi; þol, styrkur, tækni, gæði
æfinga og einfaldlega að hafa gaman. Í kjölfar-
ið snerist mataræðið um það að hafa nægan
kraft í æfingar, að líða betur og njóta. Stundum
voru vikurnar brotnar upp og okkur gefið færi
á að prófa nýjar íþróttir líkt og bardagaíþróttir,
samkvæmisdansa, capoeira, krikket og margt
fleira. Íþróttaaðstaða skólans er mjög góð og
við máttum nota hana að vild. Þarna eru þrír
fótboltavellir, parkour-aðstaða, völlur fyrir bæði
strandblak og streat basket, stór íþróttasalur,
fimleikasalur og CrossFit Box.
Mér finnst það stór kostur við skólann að
áfengisneysla er lítil miðað við marga aðra lýð-
háskóla. Í mörgum skólum byrjar áfengisneysla
á miðvikudegi og stendur til laugardags. Drykkja
var leyfð í partýum sem tilheyrðu laugardögum
en annars ekki. Partýin höfðu alltaf eitthvað
ákveðið þema og var mikið lagt upp úr búning-
um og skreytingum. Þetta fyrirkomulag gerði
það að verkum að helgarnar voru alltaf tilhlökk-
unarefni og stóðust allar væntingar. Eina helgi
í mánuði var heimferðarhelgi og gafst okkur
Íslendingunum þá kostur á að eiga notalega
helgi í skólanum eða fara og heimsækja danska
vini okkar. Við Íslendingarnir urðum mjög
náin á þessum mánuðum og vorum eins og
lítil fjölskylda. Það var afar notalegt að hafa
hvert annað, sérstaklega ef heimþráin fór að
segja til sín.
Lýðháskóladvölin gerði mig að mun sjálf-
stæðari einstaklingi og opnari til þess að takast
á við nýjar aðstæður og verkefni. Eftir dvölina
var hugmynd mín um framtíðarmenntun líka
mun skýrari. Ég tel að dvöl í lýðháskóla, þar sem
einstaklingur fær tækifæri til að sinna áhuga-
málum sínum daglega, geti verið stór hjálp þeg-
ar kemur að þeirri ákvörðun að velja menntun.
Ég lærði mikið hvað varðar íþróttir, hreyf-
ingu og heilsu í Gerlev. Í janúar hóf ég starf
sem CrossFit-þjálfari hjá Heilsueflingu-Heilsu-
rækt á Egilsstöðum. Reynslan frá Gerlev nýttist
mér ótrúlega vel í því starfi þar sem ég er ekki
menntaður þjálfari. Í haust tók ég þá ákvörðun
að fara aftur til Danmerkur og læri nú Global
Nutrition and Health við Metropol. Í náminu
er lögð rík áhersla á alþjóðleg sjónarmið og það
er svo heppilegt að ég bý yfir þeirri reynslu að
hafa búið með fólki allsstaðar að úr heiminum
í hálft ár. Ég kynntist mörgum frábærum og
ólíkum persónuleikum með mismunandi við-
horfum til lífsins í Gerlev. Og ekki var nóg
með það; Ég eignaðist marga af bestu vinum
mínum þar.
Eftir að ég kom heim hef ég fengið margar
fyrirspurnir frá fólki sem er að velta því fyrir
sér að fara í lýðháskóla. Að mínu mati er þetta
frábær leið til þess að stíga út fyrir þæginda-
hringinn og prufa eitthvað nýtt. Ég mæli auð-
vitað fyrst og fremst með skólanum mínum
en hef aðeins heyrt góða hluti um aðra skóla.
Þetta er einstök reynsla sem ég mæli hundrað
og tíu prósent með.
Karitas Hvönn Baldursdóttir
Mikið lagt upp
úr hópeflingu
og stuðningi við
félagann
Lýðháskóladvöl
í Gerlev á Sjálandi: