Skinfaxi - 01.11.2015, Page 23
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 23
Þ að er mjög erfitt að lýsa stemning-unni hérna, enda get ég bara sagt að hún sé ólýsanleg. Að byrja í lýðháskóla er eitthvað sem mér finnst að allir
ættu að reyna að upplifa. Þetta færir þér gleði,
ný tækifæri og vini til eilífðar. Ég veit að það
upplifa ekki allir það sama en hér ætla ég að
segja frá reynslu minni. Hérna er ég með 85
öðrum nemendum og hver og einn er
sérstakur á sinn hátt.
Það fyrsta sem ég tók eftir hér var að þér er
tekið eins og þú ert. Það skiptir til dæmis ekki
máli hvort þú eigir nýjustu skóna sem eru í
tísku, það er öllum tekið jafn vel. Fyrstu vikurn-
ar fara í svokallaða „ice breakers“-þrautir og
þar má segja að samvinna sé algjörlega óum-
flýjanleg. Þetta er frábær hugmynd og hjálpaði
mikið við að byrja að tala við krakkana og
kynnast meira. Aðstaðan hér er frábær og mað-
ur getur notfært sér hana þótt kennsla sé ekki í
gangi. Heimavistin er mjög góð og þar er alltaf
eitthvað að gera. Herbergin eru einnig mjög
góð og nóg pláss.
Danir eru einstaklega duglegir að finna sér
eitthvað að gera og alltaf er verið að biðja fólk
um t.d. að koma að spila blak, fótbolta, bad-
minton og bara nefndu það. Hérna kynnist
maður einnig frábærum leikjum og þrautum,
einhverju sem maður hefur aldrei þekkt og
skemmtir sér svo konunglega í. Kennararnir
hérna eru alveg frábærir. Segjum nú svo að ég
bæði þig um að nefna einn uppáhaldskennara
úr allri skólagöngu þinni. Hérna gæti ég ekki
valið, þeir eru allir dásamlegir. Þeir vilja allt
fyrir þig gera og vilja kynnast þér frá a-ö. Mark-
mið þeirra er líka að taka þig út úr þínum eigin
þægindaramma og láta þig koma þér sjálfum
á óvart. Það hef ég upplifað hér og það er ein-
stök tilfinning að koma sér sjálfum á óvart og
komast að því að maður getur eitthvað sem
maður vissi ekki áður að maður gæti.
Helgarnar hérna eru þannig að það er annað-
hvort löng helgi, stutt helgi eða a-helgi. A-helg-
arnar er bara eitt orð yfir snilld. Kennararnir
skipuleggja eitthvert þema og maður fer algjör-
lega „all-in“ eins og maður segir. Eftir það er
alltaf „fest“ sem er s.s. borðhald og eitthvert
atriði og svo er partý eftir á. Eitt get ég sagt,
að mér hefur aldrei leiðst í þessu, það er alltaf
jafn skemmtilegt.
Í Nordjyllands Idræthøjskole getur maður
valið úr öllu milli himins og jarðar eða allt frá
fótbolta yfir í að fara í fallhlífarstökk. Skólinn
býður einnig upp á ferðir. Ég valdi Adventure-
ferð til Chamonix í Frakklandi og þeirri ferð
er ekki hægt að lýsa með orðum. Þar var allt
skipulagt fyrir okkur og þeir peningar, sem ég
borgaði fyrir þetta, voru ekki neitt miðað við
það sem ég fékk að sjá og upplifa!
Eins og ég sagði hér að ofan er þetta kjörið
tækifæri að koma sér út úr þægindaramman-
um og upplifa svo margt sem maður gleymir
aldrei það sem eftir er.
Daníela Jóhannsdóttir
Lífið í Nordjyllands Idrætshøjskole:
„Þetta færir þér gleði,
ný tækifæri og vini til eilífðar“