Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 24
24 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
U ngmennafélagið Drengur í Kjós hefur verið endurvakið en félagið hafði ekki haldið úti starfsemi um árabil. Drengur var stofnað
1915 og var eitt af stofnfélögum UMSK. Nú, á
eitthundrað ára afmæli félagsins, var ákveðið að
endurvekja félagið og var það gert í félagsheimil-
inu Félagsgarði á dögunum en Félagsgarður var
reistur af Dreng og er í eigu félagsins. Kosin var
ný stjórn og er Guðný Ívarsdóttir nýr formaður
félagsins.
Á fundinum var kynnt ný bók um 100 ára
sögu Drengs. Jón M. Ívarsson skrifaði bókina og
las hann valda kafla í henni fyrir fundarmenn.
Bókin er mjög vegleg og prýdd mörgum mynd-
um. Í formála hennar segir að þetta sé saga
mikillar starfsemi, menningar, fórnfýsi og
félagsþroska.
„Ritun sögunnar var heilmikil vinna, mun
meiri en allir bjuggust við. Þetta var mjög starfs-
samt ungmennafélag og eitt af þeim öflug-
ustu á landinu. Það var einsdæmi á sínum
tíma þegar þeir byggðu húsið sitt, Félagsgarð.
Það voru bara ungmennafélagar sem byggðu
húsið, það tók eitt ár og þrjá daga frá því að
byrjað var að grafa fyrir húsinu þangað til að
það var vígt. Þetta sýnir einstaka samheldni og samvinnu hjá ungmenna-
félögum hreppsins sem voru ekki óskaplega margir. Þetta átti sér stað 1936
Ungmennafélagið Drengur endurvakið
og 100 ár saga félagsins gefin út
og var eiginlega fyrsta félagsheimilið á landinu,“
sagði Jón M. Ívarsson, sagnfræðingur og mikill
ungmennafélagsmaður, sem skrifaði 100 ára
sögu Ungmennafélagsins Drengs.
Jón sagði að félagið hefði verið stofnað í hálf-
leik á knattspyrnuæfingu 1915 en þá var félagið
byrjað í íþróttum á fullu. Svo fór Drengur að
keppa við nágranna sína í Aftureldingu en árum
saman var keppni á milli þessara félaga í íþróttum.
Þar öttu kappi saman bestu íþróttamenn héraðs-
ins, bæði úr Kjósinni og Aftureldingu. Jón sagði að
félögin hefðu sent sameinað lið til þátttöku í Víða-
vangshlaupi ÍR og gjörsigruðu Reykjavíkurfélögin
sex ár í röð.
- Nú er búið að koma félaginu af stað aftur.
Hvernig sérðu framtíð þess?
„Ég vona að hún verði bara góð. Félagið lagðist í
dvala eins og stundum gerist með félög þegar fækk-
ar í sveitunum. Starfsemin var orðin afskaplega lítil
sem engin eftir aldamótin. Þegar menn réðust hins
vegar í það að skrifa 100 ára söguna og hún kom út
þá fylltust menn nýjum krafti og félagið var endur-
vakið. Þar tóku eldri félagar og unga kynslóðin hönd-
um saman.
Ég er bara nokkuð ánægður með bókina. Þetta er
ítarleg saga og hún er fjölbreytt og úr miklu að moða. Mér fannst skemmtilegt
að vinna þessa sögu og ég vona að öðrum finnist hún skemmtileg,“ sagði Jón.