Skinfaxi - 01.11.2015, Side 25
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 25
Í
haust var samstarf SamVest í frjálsum
íþróttum endurnýjað til þriggja ára eða
út árið 2018. Var það gert í ljósi góðrar
reynslu af samstarfinu sem hófst 2012.
Sjö sambandsaðilar UMFÍ standa að SamVest
samstarfinu en það eru: UDN, UMFK, HSH,
UMSB, HHF, USK og HSS. Auk þess styðja
UMFÍ og FRÍ samstarfið.
Undirritunin fór fram samhliða samæfingu
í frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika, en þar voru
um 30 iðkendur mættir á sameiginlega frjáls-
íþróttaæfingu á vegum SamVest. Yfirlýsing-
una undirrituðu Arnar Eysteinsson (UDN),
Ásdís Hallgrímsdóttir (UMFK), Björg Ágústs-
dóttir (HSH), Einar Vilhjálmsson (FRÍ), Helga
Jóhannsdóttir (UMFÍ), Hólmfríður Ásmunds-
dóttir (UMSB), Páll Vilhjálmsson (HHF), Stefán
Skafti Steinólfsson (USK) og Vignir Örn Páls-
son (HSS).
SamVest samstarfið gengur út á
að efla frjálsíþróttaiðkun barna og unglinga á
samstarfssvæðinu. Ýmsir viðburðir eru haldn-
ir, sameiginlegar æfingar, bæði heima og á
höfuðborgarsvæðinu, þar sem fengnir eru
gestaþjálfarar frá stærri frjálsíþróttadeildum
félaga á höfuðborgarsvæðinu, æfingabúðir,
mót, og sameiginlegt lið SamVest hefur tekið
þátt í bikarkeppnum FRÍ.
Á sambandsþingi UMFÍ, sem haldið var í
Vík í Mýrdal í október síðastliðnum, hlaut
SamVest-verkefnið hvatningarverðlaun UMFÍ.
Samstarfið hefur verið að
eflast frá ári til árs
„Verkefnið hefur gengið mjög vel þau þrjú
ár sem liðin eru frá því að samstarfið hófst.
Óhætt er að segja að stígandi hafi verið í
þessu en þetta er samstarf á stóru svæði.
Við höfum verið að læra með hverju árinu
hvernig hlutirnir eru, hvert hjá öðru, fólkið er
að kynnast svo að samstarfið hefur verið að
eflast frá ári til árs. Þetta byggist upp á tengsl-
um, fólk kynnist og starfið fer smám saman
að virka eins og smurð vél. Þegar traust fer
að ávinnast fer þetta að virka enn betur. Við
sjáum ekki annað en að krakkarnir séu mjög
ánægð en við höfum passað okkur á að hafa
fasta punkta og viðburði sem við stefnum
að,“ sagði Björg Ágústsdóttir, formaður fram-
kvæmda SamVest.
Krakkarnir eru farnir
að kynnast vel
Björg sagði að þrjár samæfingar væru haldn-
ar yfir veturinn á höfuðborgarsvæðinu. Síðan
eru æfingabúðir á hausti, eitt sumarmót og
þau hafa verið að taka þátt í bikarkeppnum
FRÍ og voru einmitt síðast með á mótinu sem
haldið var á Laugum í Þingeyjarsýslu. Björg
sagði að þátttaka barnanna hefði verið mjög
góð. Krakkarnir eru farnir að kynnast vel sem
skilar sér síðan inn á mótin.
Samstarf SamVest í frjálsum íþróttum:
Umgjörð sem hjálpar öllum
þegar upp er staðið
„Þetta samstarf gengur, þegar á allt er litið,
mjög vel og heldur krökkunum vel við efnið,
mun lengur en áður. Þarna er umgjörð sem
hjálpar öllum þegar upp er staðið. Ég sé ekki
fram á annað en að þetta eigi bara eftir að
eflast og verða betra með hverju árinu sem
líður. Það er ýmislegt í farvatninu sem okkur
langar til að gera. Við höfum ennfremur
verið að fá þjálfaraheimsóknir og stefnan er
að fá slíkar á hvern stað yfir sumartímann en
við teljum mikla styrkingu í því á allan hátt.
Við erum bara virkilega kát og mjög bjartsýn
á framhaldið,“ sagði Björg.
Samstarfið heldur krökkunum vel við efnið