Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 26
26 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
S tarfið innan Héraðssambands Vestfirðinga, HSV, stendur með blóma, þátttakan er góð í því starfi sem í boði er og verkefnin eru næg fram undan. Innan HSV eru 23 aðildarfélög.
„Stór hluti af starfsemi HSV er að vinna
fyrir félögin og við erum alltaf að gera starf-
ið skilvirkara. Við viljum að
félögum okkar vegni vel
og að við getum með
einhverju móti komið til
móts við félögin með
einum eða öðrum
hætti. Við erum um
þessar mundir að betrumbæta
afrekssjóðinn okkar en við fengum
meira fjármagn frá Ísafjarðarbæ inn í sjóðinn.
Við erum að efla hann og framtíðin er sú að
við getum gert samninga við afreksíþrótta-
fólk okkar. Samningur er gerður, farið yfir
markmiðin og þegar þeim er náð er hægt
að borga út. Draumur okkar er geta gert vel
en við erum kannski með kostnað upp á
fleiri hundruð þúsund og að stærstum hluta
Samningur við Ísafjarðarbæ
hefur gríðarlegt vægi í öllu
íþróttastarfi
tengist hann keppnisferðum og öðru slíku.
Þátttakendur frá okkur eru mikið á ferðinni
og það kostar sitt. Ég get í þessu sambandi
nefnt að ferð Kristínar Þorsteinsdóttur á
Evrópumótið kostaði um eina milljón króna.
Það kostar okkur einnig um 50 þúsund krón-
um meira að fara ferð til útlanda en að senda
krakka á höfuðborgarsvæðið. Með breyting-
um á afrekssjóðnum teljum við að við
getum betur komið til móts við
iðkendur okkar,“ sagði
Guðný Stefanía Stefáns-
dóttir, formaður HSV, í
viðtali við Skinfaxa.
Guðný Stefanía segir
að þegar á allt sé litið
gangi starfið innan HSV vel og samband-
ið búi svo vel að hafa frábæran framkvæmda-
stjóra. Guðný Stefanía sagði að um þessar
mundir væri verið að ganga frá endurnýjun
á samstarfs- og verkefnasamningi við Ísa-
fjarðarbæ. Samstarfssamningur hefur verið
við bæinn frá 2007 og verkefnasamningur-
inn var gerður stuttu síðar.
„Þessir samningar hafa gríðarlegt vægi í
öllu íþróttastarfi hér fyrir vestan. Íþróttaskól-
Guðný Stefanía
Stefánsdóttir,
formaður HSV.