Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 27
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 27
inn hefur sannað gildi sitt að okkar mati og
notið mikilla vinsælda. Allar rannsóknir sýna
að börn, sem eru í fjölbreyttum æfingum, upp
að ákveðnum aldri, skila sér betur út í íþrótta-
hreyfinguna. Við erum ekki að tala um ein-
hverja afrekskrakka heldur halda þau áfram
og þau eru betur í stakk búin til að vera góð
í sinni grein. Með íþróttaskólanum náum við
til barna sem annars hefðu ekki verið í íþrótt-
um og það eru sérstaklega nýbúarnir okkar.
Áður en til íþróttaskólans kom voru þau lítið
sem ekkert í íþróttasölunum. Það segir ýmis-
legt um íþróttaskólann og mikilvægi hans að
um 95% krakka í 1.–4. bekk eru í honum. Við
leggjum ennfremur áherslu á að við séum
alltaf með menntaða þjálfara í störfum hjá
okkur,“ sagði Guðný Stefanía.
Helstu greinar sem stundaðar eru innan
héraðssambandsins eru körfubolti, fótbolti,
skíði, handbolti, sund og blak og golfið er
alltaf að stækka.
Draumur okkar er að
fá yfirbyggt fjölnota
íþróttahús
„Hér um slóðir hefur íþróttastarf alltaf verið
mikið í gegnum tíðina. Draumur okkar hefur
verið að fá yfirbyggt fjölnota íþróttahús og
sundlaug en laugin hér er allt of lítil. Við ber-
um þá von í brjósti að þessi draumur verði
einhvern tíma að veruleika. Við erum annars
brött og ánægð með krakkana okkar. Við
höldum næsta sumar Landsmót UMFÍ 50+
og mikil eftirvænting ríkir hjá okkur fyrir því
verkefni. Það er spennandi og við finnum
fyrir meðbyr á svæðinu og almenningur
hlakkar til að hjálpa okkur og taka þátt. Við
viljum ekki síður fá góða þátttöku fólks frá
okkur og vonandi að sem flestir Ísfirðingar,
sem komnir eru yfir fimmtugt, taki þátt í ein-
hverju. Það skiptir lykilmáli að heimamenn
fjölmenni á mótið. Við höfum verið að taka
til okkar mót yfir vetrartímann og fólk er búið
að átta sig á því að hægt er að halda mót
annars staðar en í Reykjavík. Fram undan
blasa við okkur spennandi verkefni og ekki
ástæða til annars en að hlakka til,“ sagði
Guðný Stefanía.
Af héraðsþingi HSV. Frá vinstri:
Þórunn Pálsdóttir þingritari,
Guðný formaður, í pontu Marinó
Hákonarson þingforseti og Pétur
Markan gjaldkeri.