Skinfaxi - 01.11.2015, Qupperneq 32
32 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Kynningar á boccia
og ringó á vegum FÁÍA
víða um land
Í haust og í vetur hefur Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra,
FÁÍA, verið með kynningar og námskeið í boccia og ringó víða
um land. Farið hefur verið til Húsavíkur, Grindavíkur, Reykja-
nesbæjar og Flúða í þessum tilgangi og nú fyrir ekki löngu
síðan var námskeið haldið í Kópavogi.
Þátttaka hefur verið góð en þess má geta að rúmlega 50
manns tóku þátt í námskeiðinu á Húsavík. Þórey S. Guðmunds-
dóttir sagði frá starfinu innan FÁÍA og Flemming Jessen sagði
frá UMFÍ og samstarfi þessara félaga í gegnum tíðina. Í
Hvammi var námskeið í dönsum af ýmsu tagi en í íþróttahús-
inu var kennsla í ringó og boccia. Auk Þóreyjar og Flemmings
tóku Kolfinna Sigurvinsdóttir og Sigurrós Ottósdóttir þátt í
ferðinni. Þessi heimsókn heppnaðist með afbrigðum vel og
var vel staðið að öllum undirbúningi, þátttaka góð og aðstaða
mjög til fyrirmyndar. Þátttakendur voru virkir í öllum atriðum
og höfðu sýnilega mjög gaman af.
Námskeiðinu lauk síðan með smá kaffi og meðlæti þar sem
Þórey þakkaði heimafólki fyrir góðar móttökur og Flemming
afhenti Félagi eldri borgara á Húsavík bækur frá UMFÍ.
Þ á eru ekki nema rúmir fimm mánuð-ir þar til við bregðum okkur vestur á Ísafjörð og tökum þátt í íþrótta- og
skemmtihátíð á 6. Landsmóti UMFÍ 50 ára
og eldri. Gaman saman og heilbrigði eru
einkunnarorð þessara hátíða UMFÍ, sem
fram hafa farið frá árinu 2011. Hátíðin hef-
ur smám saman verið að festa sig í sessi
og þátttaka jafnframt að aukast. Frá því að
ákveðið var að hleypa mótinu af stað hafa
tvö veigamikil atriði ráðið för.
Mótið skal halda sem víðast um land.
Mótsstaður býður upp á þá aðstöðu sem til
er hverju sinni, en hleypir ekki sveitarfélag-
inu/ungmennasambandinu í framkvæmd-
ir sem neinu nemur
Það er stjórn UMFÍ sem tekur ákvörðun
um mótsstað eftir að auglýst hefur verið
eftir hverjir hafi áhuga á að halda mótið.
Héraðssambönd og sveitarfélög samein-
ast um verkefnið og saman mynda þau
ásamt UMFÍ landsmótsnefnd. Val hverju
sinni tekur nokkurt mið af aðstöðu, starf-
semi og þátttöku í starfi og starfsemi UMFÍ
og tengdra aðila eins og Félags áhugafólks
um íþróttir aldraðra – FÁÍA.
Á 4. Landsmóti UMFÍ tilkynnti þáverandi
formaður UMFÍ, Helga Guðrún Guðjóns-
dóttir, að mótið 2016 yrði haldið á Ísafirði.
Það kom ekki á óvart. Ísfirðingar hafa verið
mjög duglegir að sækja þau Landsmót sem
fram hafa farið fyrir 50+ hópinn og ekki síð-
ur duglegir að sækja mót á vegum FÁÍA. Þá
ber að nefna að Kubbi, íþróttafélag eldri
borgara á Ísafirði, sá um púttmót FÁÍA árið
2014 og gerði það með miklum ágætum.
Aðstaða á Ísafirði er mjög góð til iðkunar
þeirra íþrótta sem hvað flestir hafa verið
þátttakendur í á mótunum frá upphafi.
Það er von mín að við fjölmennum vest-
ur á Ísafjörð 10.–12. júní 2016. Ísfirðingar
hafa verið duglegir að koma að vestan og
nú skulum við fjölmenna vestur.
Gaman saman á Ísafirði,
Flemming Jessen
Landsmót UMFÍ
50 ára og eldri á Ísafirði
KOMDU Í
FÓTBOLTA
Það leika að meðaltali
250
landsliðsmenn fótbolta
Alls leika um
20.000
fótbolta með liðum