Skinfaxi - 01.11.2015, Qupperneq 33
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 33
S æmundur Runólfsson, fyrrverandi fram-kvæmdastjóri UMFÍ, hlaut fyrir skömmu viðurkenningu fyrir ævistarf í þágu æsku-
lýðsstarfs á Íslandi. Æskulýðsráð veitir viður-
kenningar fyrir æskulýðsstarf en þeim er ætlað
að vekja athygli á því sem er til fyrirmyndar í
æskulýðsstarfi á Íslandi og vera hvatning til
þróunar, nýsköpunar og þátttöku.
Jóhannes Stefánsson, aðstoðarmaður
menntamálaráðherra, veitti viðurkenningarn-
ar fyrir hönd Æskulýðsráðs á ráðstefnunni
Íslenskar æskulýðsrannsóknir sem haldin var
á menntavísindasviði Háskóla Íslands 15. nóv-
ember sl. Veittar voru viðurkenningar í þrem-
ur flokkum og fékk Sæmundur viðurkenningu
sína undir flokknum Starfsmenn eða sjálfboða-
liðar í æskulýðsstarfi sem skilað hafa merku
ævistarfi eða á annan hátt skarað fram úr.
Sæmundur lét af störfum sem framkvæmda-
stjóri Ungmennafélags Íslands síðastliðið vor
eftir ríflega 23 ára starf, en hann tók til starfa
hjá UMFÍ þann 1. janúar árið 1992. Hann hafði
áður setið í stjórn UMFÍ 1985–1991 og verið
framkvæmdastjóri Landsmóts UMFÍ í Mos-
fellsbæ árið 1990. Sæmundur hefur gegnt
fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum á veg-
um ungmennafélagshreyfingarinnar. Hann
var meðal annars formaður Ungmennafélags-
ins Drangs í Vík 1977–1983, sat í stjórn
Íslenskra getrauna 1992–2009, íþróttanefnd
Sæmundur Runólfsson hlaut viðurkenningu
fyrir ævistarf í þágu æskulýðsstarfs á Íslandi
ríkisins 1992–2004 og í stjórn ISCA (Inter-
national Sport and Culture Association)
1999–2011. Þá sat Sæmundur í stjórn Æsku-
lýðsvettvangsins 2007–2015 og þar af var
hann formaður 2012–2015.
Í umsögn segir að Sæmundur sé kröftug-
ur og ósérhlífinn einstaklingur sem ávallt hafi
verið til taks fyrir ungmennafélagshreyfinguna
og haft hagsmuni hennar að leiðarljósi. Því
hlýtur hann þessa viðurkenningu.
Frá vinstri: Sæmund-
ur Runólfsson, Hreiðar
Már Árnason, Ruth
Jörgensdóttir Rauter-
berg og Jóhannes
Stefánsson.