Skinfaxi - 01.11.2015, Blaðsíða 37
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 37
Þ ann 28. nóvember sl. voru vinnings-höfum í ratleik, sem haldinn var í tengslum við Forvarnadaginn, afhent verðlaun á Bessastöðum. Þátttakan í
ratleiknum var mjög góð, en mörg hundruð
grunn- og framhaldsskólanemendur tóku
þátt með því að svara ákveðnum spurningum
sem tengdust íþrótta- og æskulýðsstarfi í
landinu.
Verðlaunahafar í ratleik
Forvarnadagsins
Vinningshafarnir, sem dregnir voru út,
eru: Benjamín Smári Kristjánsson, Grunnskóla
Sandgerðis, Elínborg Eir Sigurfinnsdóttir,
Framhaldsskóla Vestmannaeyja, Thelma Ósk
Þrastadóttir, Framhaldsskóla Mosfellsbæjar,
Sigurlaug Margrét Sigmarsdóttir, Grunnskóla
Vestmannaeyja, Ása Sóley Ásgeirsdóttir,
Varmahlíðarskóla, og Þorvaldur Marteinn
Jónsson, Verkmenntaskóla Austurlands.
Við þetta tækifæri þakkaði forseti Íslands
Actavis fyrir ötulan stuðning við Forvarna-
daginn allt frá upphafi.
Forvarnadagurinn er haldinn að frumkvæði
forseta Íslands í samvinnu við Samband
íslenskra sveitarfélaga, Ungmennafélag Ís-
lands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands,
Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg,
Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
U ngmennafélag Íslands hefur um árabil staðið fyrir félagsmálanámskeiðum
undir nafninu Sýndu hvað í þér býr. Hafa
þessi námskeið notið vinsælda og verið
vel sótt í flestum tilfellum. Í haust hafa sex
námskeið verið haldin víðs vegar um land-
ið og eftir áramótin verður þráðurinn tek-
inn upp að nýju. Heildarfjöldi þátttakenda
á námskeiðunum í haust var um 130 manns.
Almenn ánægja og gleði var meðal þátttak-
enda með námskeiðið en það er Sabína
Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi UMFÍ,
sem hefur veg og vanda af námskeiðun-
um og er kennari á þeim.
„Það hefur alltaf verið töluverður áhugi
á því að fá þessi námskeið. Í haust sem leið
fórum við aftur á móti í markvissa kynn-
ingu á námskeiðunum og hvað þau hafa í
Félagsmálanámskeiðin – „Sýndu hvað í þér býr“:
Miklar framfarir hjá þátttakendum
raun upp á að bjóða. Með nýjum áherslum
á Facebook, heimasíðunni og fréttabréfi er
þetta verkefni sýnilegra en áður. Við förum
á oft á sömu staðina ár eftir ár en reyn-
um að laga okkur að aldurshópi og stað
hverju sinni. Það mjög mikilvægt, þegar
maður er að leiðbeina yngri hópunum, að
höfða svolítið til áhugamála þeirra þegar
maður er að kenna á námskeiðinu,“ segir
Sabína Steinunn.
Aðspurð um hver væru helstu markmið
námskeiðsins sagði hún að þau væru
annars vegar að gera fólk hæfara í því að
standa frammi fyrir hópi og halda ræðu
og hins vegar að starfa í stjórnum og
nefndum og hvernig hægt sé að skipta
með sér verkum og dreifa ábyrgðinni á
fleiri einstaklinga.
„Maður sér mikinn mun á þessu stutta
námskeiði á þátttakendum, framfarirnar
eru miklar,“ sagði Sabína Steinunn.