Fréttablaðið - 07.10.2017, Blaðsíða 112
V ið Árni Felix Gíslason, unnusti minn, fluttum í nýtt hús í maí. Við erum búin að vera að dunda okkur við að koma
okkur fyrir og gera allt fínt síðustu
mánuði,“ segir lögregluþjónninn
Guðbjörg Ester Einarsdóttir sem
hefur ástríðu fyrir innanhúss
hönnun.
Guðbjörg er dugleg við að breyta
til á heimilinu með því að færa til
hluti og raða húsgögnum og stofu
stássi upp á nýtt. „Ég er alltaf með
nýjar pælingar og nýjar hugmyndir
sem mig langar að framkvæma. Það
þarf ekki alltaf að kaupa eitthvað
nýtt til að breyta, það er nóg að
finna nýjan stað fyrir hlutina og þá
kemur nýr blær á heimilið.“
Skandinavískur stíll einkennir
heimili Guðbjargar og Árna enda
versla þau mikið í IKEA. „Ég kaupi
nánast öll húsgögn í sænska ris
anum IKEA. Þær vörur hafa reynst
mér mjög vel, þær eru fallegar og
alls ekki of dýrar. Epal er líka í miklu
uppáhaldi hjá mér, en þangað fer ég
oft til að kaupa fallega smáhluti eins
og ljós, kertastjaka og þess háttar.
Søstrene Grene er líka í miklu uppá
haldi hjá mér, yndislegir smáhlutir
á lítinn pening.“
Guðbjörg er virk á Instagram en
þar deilir hún gjarnan myndum af
heimili þeirra Árna. Hún vonast til
að myndirnar veiti öðrum fagur
kerum innblástur. „Þegar við Árni
keyptum húsið okkar byrjaði ég að
leita mér innblásturs á Instagram.
Þegar við vorum búin að koma
okkur fyrir í húsinu byrjaði ég að
taka myndir og deila þeim á minni
Instagramsíðu og er búin að fá
góðar undirtektir síðan þá. Það er
það skemmtilega við þetta – að veita
öðrum innblástur. Svo er þetta líka
mjög góð leið til að halda húsinu
alltaf hreinu,“ segir hún og hlær.
gudnyhronn@365.is
Guðbjörg Ester er 27 ára Selfyssingur sem hefur brennandi
áhuga á innanhússhönnun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Svefnherbergið
er ansi smart en
þar er svarthvítt
þema.
Louis Poulsen-ljósið fyrir ofan eldhúsborðið er í
uppáhaldi hjá Guðbjörgu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það Þarf ekki
alltaf að kaupa
eitthvað nýtt til að
breyta.
Skandinavískur
Guðbjörg ester einarsdóttir starfar sem
lögregluþjónn en í frítíma sínum hefur hún
gaman af því að spá í innanhússhönnun.
Heimili Guðbjargar og unnusta hennar er
ansi flott en þeim hefur tekist að koma sér
vel fyrir í nýju húsi sem þau keyptu í sumar.
stíll á Selfossi
Guðbjörg
breytir reglulega
uppröðuninni á
húsgögnum og
stofustássi heim-
ilisins.
Guðbjörg
lýsir stílnum á
heimilinu sem
skandinav-
ískum með
mínímalískum
blæ.
Flest húsgögn
heimilisins
koma úr IKEA.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r64 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
Lífið
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
C
-4
C
C
0
1
D
E
C
-4
B
8
4
1
D
E
C
-4
A
4
8
1
D
E
C
-4
9
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K