Fréttablaðið - 07.10.2017, Blaðsíða 24
7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r24 S p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
sport
FótboLti Strákarnir okkar í íslenska
landsliðinu í fótbolta eru einu skrefi
frá því að komast beint á HM 2018
eftir magnaðan 3-0 sigur gegn Tyrkj-
um í Eskisehir í gærkvöldi. Þökk sé
jafntefli Finnlands og Króatíu er
Ísland nú efst í riðlinum og er öruggt
með farseðil til Rússlands vinni það
Kósóvó á mánudaginn í Laugar-
dalnum. Hverjum hefði dottið í hug
að þetta yrði staðan eftir tapið gegn
Finnlandi?
Sigur strákanna í gærkvöldi var
algjörlega magnaður. Enn eina ferð-
ina gekk Tyrkjum ekkert að brjóta
niður fastmótað og vel útfært leik-
skipulag Íslands og fljótlega fór það
að fara í taugarnar á þeim. Í síðustu
fjórum leikjum gegn Tyrklandi er
íslenska liðið aðeins búið að fá á sig
eitt mark og það var draumamark,
beint úr aukaspyrnu.
Ísland hélt sig við grunngildi sín
og skipulag. Undirbúningurinn fyrir
leikinn var augljóslega fullkominn
bæði er varðar fótboltafræðin og
eins varðandi undirbúninginn fyrir
stemninguna sem var búist við að
myndi ríkja á leiknum. Hún var
svakaleg til að byrja með; ærandi
læti og baul svo enginn heyrði
mannsins mál.
Það er ekki nema mánuður síðan
króatíska landsliðið mætti til Tyrk-
lands og bognaði undan þessu and-
rúmslofti. Það gerðu okkar strákar
ekki. Hetjur nefnilega óttast ekkert
og þessir drengir eru ekkert annað
en hetjur. Alltaf þegar maður heldur
að þeir séu búnir að toppa sig draga
þeir svona frammistöðu fram úr
erminni og kemur íslensku þjóð-
inni, sem er nú þegar búin að fá að
fagna með þeim, á óvart.
Hver einn og einasti maður vissi
hvað hann átti að gera inn á vell-
inum og gerði það vel. Eins og alltaf
er þó ein stjarna sem skín aðeins
skærar og að þessu sinni var það
Jón Daði Böðvarsson sem átti sviðið.
Þó honum gangi illa að skora fyrir
landsliðið er hann þyngdar sinnar
virði í gulli með vinnusemi sinni
og baráttu. En í gær lagði hann upp
fyrstu tvö mörkin og var óskabarn
þjóðarinnar í nokkrar klukku-
stundir.
Það er skammur tími fyrir Heimi
til að vinna með strákana fyrir leik-
inn á mánudaginn en við vitum
að þeir eru klárir. Kósóvó er klisja;
sýnd veiði en ekki gefin. Við erum
samt með betra lið og ef menn spila
svona eins og í Tyrklandi verður
mánudagurinn 9. október rauður
dagur á dagatölum framtíðarinnar.
HM-dagurinn.
Hetjur sem
óttast ekkert
Brjáluðu lætin og óvinveitta andrúmsloftið hafði
engin áhrif á strákana okkar sem pökkuðu Tyrkjum
saman enn og aftur. Ísland er einum sigri frá HM.
Birkir Bjarnason býr sig undir að þruma boltanum í þaknetið á marki Tyrklands og koma Íslandi í 0-2, sex mínútum fyrir hálfleik. FréTTaBlaðið/ernir
Skrifar frá
eskisehir
Tómas Þór Þórðarson
tomas@365.is
Tyrkl. 0 – 3 Ísl.
0-1 Jóhann Berg Guðmundsson
(32.), 0-2 Birkir Bjarnason (39.),
0-3 Kári Árnason (49.).
Frammistaða Íslands (4-4-2)
Hannes Þór Halldórsson 9
Birkir Már Sævarsson 9
Kári Árnason 9
Ragnar Sigurðsson 9
Hörður Björgvin Magnússon 9
Jóhann Berg Guðmundsson 9
(82. Ari Freyr Skúlason -)
Aron Einar Gunnarsson 9
(65. Sverrir Ingi Ingason 7)
Gylfi Þór Sigurðsson 9
Birkir Bjarnason 9
Alfreð Finnbogason 9
(78. Ólafur Ingi Skúlason -)
Jón Daði Böðvarsson 10
Maður leiksins
Jón Daði Böðvarsson
lék einn sinn besta
landsleik. Afar vinnu-
samur og lagði fyrstu
tvö mörkin upp.
Úrslit og staða í riðli Íslands
Króatía - Finnland 1-1
Kósovó - Úkraína 0-2
efri
Ísland 19
Króatía 17
Úkraína 17
neðri
Tyrkland 14
Finnland 8
Kósovó 1
Olís er stoltur styrktaraðili úrvalsdeildar karla
og kvenna á Íslandsmótinu í handbolta.
KOMDU
Á VÖLLINN!
8. okt.
10. okt.
10. okt.
12. okt.
OLÍSDEILD KVENNA
Stjarnan - Valur
Selfoss - Fram
Fjölnir - Haukar
ÍBV - Grótta
8. okt.
8. okt.
9. okt.
10. okt.
11. okt.
12. okt.
OLÍSDEILD KARLA
Fjölnir - ÍBV
Grótta - Stjarnan
Haukar - Fram
Afturelding - Selfoss
Víkingur - FH
Valur - ÍR
Ef Ísland vinnur Kósovó
á mánudaginn er liðið komið
á HM í fyrsta sinn í sögunni.
Breytir þá engu hvernig aðrir
leikir í riðlinum fara.
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
C
-5
6
A
0
1
D
E
C
-5
5
6
4
1
D
E
C
-5
4
2
8
1
D
E
C
-5
2
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K