Fréttablaðið - 07.10.2017, Blaðsíða 100
Þeir Einar Garibaldi og Kristján Steingrímur sem sameinast um sýninguna Staðsetn-ingar í Gerðarsafni eru báðir trúir málverkinu.
En eins og sýngarstjóri þeirra, Jón
Proppé, bendir á eru aðferðir þeirra
sérstakar. Því segir hann sýninguna
verða í tveimur hlutum. „Sú sem
við opnum núna er elegant en svo
lokum við henni, breytum öllu og
sýnum eldri verk og skyssur, förum
nær vinnuferlinu og aðferðunum.“
Verk Kristjáns Steingríms eru
úr jarðefnum sem hann tekur á
ákveðnum stöðum. „Ég bý til lita-
duft úr jarðefnunum, set í þau líno-
leum og svo mála ég. Þannig vísa
ég í upprunastað efnisins og sögu,“
segir hann og bendir til dæmis á
seríu á gafli salarins. „Þessar myndir
eru úr almenningsgörðum, flestum
erlendis en ein úr Lystigarðinum á
Akureyri þar sem ég ólst eiginlega
upp því pabbi var garðyrkjustjóri á
Akureyri.“
Eitt ljóst málverk minnir á suð-
ræna strönd en er frá Bleikjuholti
á Ströndum. Annað dumbrautt,
úr Seyðishólum. Stórt verk, málað
2004, nefnist Undir vatni. Í því eru
jarðefni frá Sauðárgígum sem nú eru
komnir undir Hálslón, minnisvarði
um farið land. Kristján Steingrímur
tekur einnig agnir úr umhverfinu
sem eru nánast ósýnilegar þar til
hann setur þær í víðsjá og málar þær.
Takast á við landslag og tákn á sinn hátt
Kristján Steingrímur og Einar Garibaldi með Jón Proppé sýningarstjóra á milli sín. Fréttablaðið/Hanna
Einar Garibaldi við eina af fjórtán myndum í seríunni reykjavík.
Smáagnir og jarðefni úr garði í París er uppistaða þessa verks sem Kristján
Steingrímur stillir sér upp við.
Tveir listmálarar,
Einar Garibaldi Ei-
ríksson og Kristján
Steingrímur Jóns-
son, fylla hvor sinn
sal á efri hæð Gerð-
arsafns í Kópavogi.
Heiti sýningarinnar
er Staðsetningar og
hún verður opnuð
klukkan 16 í dag.
„Þannig upphef ég þær og bý til sýni-
legan heim,“ útskýrir hann og bendir
á þriggja mynda seríu. Líka stórt
verk, gert úr ögnum úr garði í París.
Í salnum sem Einar Garibaldi
hefur til umráða sýnir hann eitt
verk, Höfuðborg. Það er í 14 hlutum.
Annars vegar búið til úr þekktum
texta, Ó Reykjavík, ó Reykjavík …
og hins vegar korti, ætluðu til að
vísa ferðamönnum á áhugaverða
staði í borginni. Þar eru myndir
af myndum, hver ofan í annari. Af
hverju? „Kannski tengist það upp-
lýsingaflæði samtímans sem hefur
gert það að verkum að við erum
hætt að sjá raunveruleikann fyrir
þeim myndum sem búnar eru til af
honum – týnd inni í korti og göngum
þar milli tákna til að reyna að sjá hið
upprunalega?“ svarar hann. Segir
verkið Höfuðborg vera spurningar-
merki frekar en yfirlýsingu. „Mál-
verkið er í mínum huga leið til að
reyna að skilja raunveruleikann,
að átta mig á þeim römmum sem
stjórna sýn okkar á heiminn og þar
með annmörkum tilverunnar.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Auglýsing frá yfirkjörstjórnum Reykjavíkurkjördæma norður og suður
um móttöku framboðslista og aðsetur yfirkjörstjórna á kjördag
Framboðsfrestur til alþingiskosninga 28. október 2017 rennur út föstudaginn 13. október kl. 12 á hádegi.
Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæma norður og suður taka á móti framboðslistum miðvikudaginn 11. október
kl. 15-17 og aftur föstudaginn 13. október kl. 10-12 í fundarherbergi borgarráðs, Ráðhúsi Reykjavíkur við
Tjarnargötu.
Á framboðslista skulu vera nöfn 22 frambjóðenda. Hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra
sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal og fylgja skrifleg yfirlýs-
ing um stuðning við listann frá kjósendum í hlutaðeigandi kjördæmi á tölusettum blaðsíðum. Tilgreina skal nafn
meðmælanda, kennitölu hans og heimili. Fjöldi meðmælenda skal vera 330 að lágmarki og 440 að hámarki.
Enginn kjósandi getur mælt með fleiri en einum framboðslista. Komi það fyrir strikast nafn kjósandans út í
báðum/öllum tilvikum. Loks skal fylgja framboðslista skrifleg og undirrituð tilkynning frá frambjóðendum listans
um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans. Allar framangreindar yfirlýsingar skulu ritaðar eigin hendi og
frumritum skilað til yfirkjörstjórnar.
Eyðublað fyrir framboðslista og umboðsmenn má nálgast á www.landskjor.is.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og
heimili til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri. Mælst er til að framboðslistum verði einnig skilað
á rafrænu formi og meðmælendalistar skráðir rafrænt á þar til gert vefsvæði á www.island.is.
Að öðru leyti er vísað til ákvæða laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, með síðari breytingum.
Meðan kosning fer fram, laugardaginn 28. október nk., verður aðsetur yfirkjörstjórnar Reykjavíkurkjördæmis
norður í Ráðhúsi Reykjavíkur, þar sem talning atkvæða mun fara fram að kjörfundi loknum. Aðsetur yfirkjör-
stjórnar Reykjavíkurkjördæmis suður verður í Hagaskóla og að kjörfundi loknum fer talning atkvæða fram í
Hagaskóla.
Nánari upplýsingar má nálgast á www.kosning.is eða með því að hafa samband við skrifstofu borgarstjórnar
í s. 411-4700 eða með tölvupósti á kosningar@reykjavik.is.
Reykjavík, 2. október 2017
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis norður
Erla S. Árnadóttir
Andri Björgvin Arnþórsson
Eldar Ástþórsson
Leifur Valentín Gunnarsson
Páll Halldórsson
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður
Sveinn Sveinsson
Heimir Örn Herbertsson
Hilda Cortez
Bergþóra Ingólfsdóttir
Sunna Rós Víðisdóttir
ALÞINGISKOSNINGAR
28. OKTÓBER 2017
7 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r52 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
C
-3
D
F
0
1
D
E
C
-3
C
B
4
1
D
E
C
-3
B
7
8
1
D
E
C
-3
A
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K