Fréttablaðið - 07.10.2017, Blaðsíða 40
Erindið mitt mun fjalla um líðan starfsmanna á vinnu-stað. Hvernig mikil streita og
vanlíðan getur að lokum leitt til
kulnunar sem er alvarlegt geðheil-
brigðisvandamál. Skoðað verður
hvaða þættir í umhverfinu geta leitt
til kulnunar og hvernig er hægt að
bregðast við, bæði stjórnendur sem
og starfsmenn. Það er ekki bara mikil-
vægt að einstaklingurinn sé meðvit-
aður um eigin líðan og geðheilbrigði
heldur er mikilvægt að stjórnendur
séu vakandi fyrir þessu hjá sínum
starfsmönnum,“ útskýrir Linda Bára
Lýðsdóttir, sálfræðingur og sviðsstjóri
mats og þjálfunar hjá Virk en hún
flytur erindið Ertu komin/n í þrot?
á morgunverðarfundi Virk og Geð-
hjálpar næstkomandi þriðjudag.
Linda segir að hlúa þurfi að
vinnuumhverfinu, bæði af hálfu
stjórnenda og starfsfólks, til að skapa
geðheilbrigðan vinnustað.
„Það að vinna getur verið mikil-
vægur þáttur í vellíðan fólks og því
skiptir gríðarlega miklu máli að
okkur líði vel í vinnu. Geðheilbrigður
vinnustaður er staður þar sem stjórn-
endur og starfsmenn vinna markvisst
að því að hlúa að vinnuumhverfi
sínu þannig að öllum líði vel. Þar sem
reynt er að draga úr vægi þátta sem
geta ýtt undir vanlíðan, unnið að því
að styrkja starfsmenn í starfi og þar
sem tekist er á við vandamál tengd
líðan þegar þau koma upp. Geðheil-
brigður vinnustaður er staður sem
rúmar einstaklingsbundna þætti og
aðstoðar einstaklinga þegar þeim
líður illa.“
Hvernig má koma í veg fyrir að fólk
veikist vegna aðstæðna á vinnustað?
„Ýmsa þætti er hægt að skoða til að
koma í veg fyrir vinnutengd veikindi.
Huga þarf að álagi og að einstaklingar
skynji að þeir hafi stjórn á aðstæðum
sínum, að traust og stuðningur sé
hluti af menningu vinnustaðarins,
að komið sér fram við einstaklinga
af sanngirni og þeim umbunað á
sanngjarnan hátt. Stjórnendur jafnt
sem starfsmenn geta unnið að þessu í
sameiningu en auðvitað leika stjórn-
endur stórt hlutverk og þurfa að
hafa færi á að sinna þessum þáttum.
Undirmannaður vinnustaður með
langvarandi álagi veitir til dæmis lítil
tækifæri til þess,“ segir Linda.
Starfsendurhæfing hjá Virk
Þegar einstaklingur þarf að hætta eða
draga tímabundið úr vinnu vegna
heilubrests getur hann í samráði
við lækni leitað eftir aðstoð hjá Virk
starfsendurhæfingarsjóði. Hjá Virk er
metið hvort og hvernig megi aðstoða.
„Hjá sumum getur það tekið stutt-
an tíma en öðrum lengri. Þá er mikil-
vægt að einstaklingur hafi möguleika
á að koma til baka í vinnuumhverfi
sitt í skrefum,“ segir Linda
„Ef starfsendurhæfing er talin tíma-
bær og einstaklingur vill vinna að því
að komast aftur til starfa hittir hann
ráðgjafa sem fylgir honum gegnum
ferlið. Hlutverk ráðgjafans felst í því
að gera áætlun í samstarfi við ein-
staklinginn sem stuðlar að endur-
komu til vinnu, hvetja hann áfram og
hlúa að honum þegar hlutirnir eru
ekki að ganga sem skyldi. Virk styður
einstaklinginn í að sækja sér úrræði,
til dæmis í formi hreyfingar, sjúkra-
þjálfunar og sálfræðiaðstoðar en
úrræðin eru valin með það í huga að
þau auki líkur á endurkomu til vinnu.
Markmiðið er alltaf að einstaklingur
verði virkur á ný, að hann geti tekið
þátt í atvinnulífinu og því samfélagi
sem hann býr í. Það er gríðarlega
mikilvægt fyrir geðheilbrigði að ein-
staklingi finnist hann gildur þegn.
Samfélagið, þar með talinn vinnu-
markaðurinn, þarf að axla ábyrgð í
að skapa tækifæri til þátttöku fyrir
einstaklinga, sem eru að kljást við
ýmis vandamál.
Linda Bára
Lýðsdóttir, sál-
fræðingur og
sviðsstjóri mats
og þjálfunar hjá
Virk, fjallar um
geðheilbrigði
á vinnustað á
morgunverðar-
fundi Virk og
Geðhjálpar.
Ertu komin/n í þrot? Erindi
um vellíðan á vinnustað
Linda Bára Lýðsdóttir fjallar um geðheilbrigði á vinnustað á morgunverðarfundi Virk og
Geðhjálpar á Alþjóða geðheilbrigðisdaginn. Yfirskriftin er: Ertu kominn í þrot?
Allt frá því að Alþjóða geð-heilbrigðisdagurinn 10. október leit fyrst dagsins
ljós hefur ákveðið þema verið til
umfjöllunar ár hvert. Þemað í ár
er ,,Geðheilbrigði á vinnustað.
„Vinnan er í flestum tilfellum stór
hluti af lífi fólks og þegar staðan er
sú að um 300 milljónir manna hér
á jörðu þjást af þunglyndi og um
260 milljónir af kvíða er ljóst að
vekja þarf athygli á mikilvægi þess
að vel sé búið að fólki á vinnu-
staðnum. Þetta er ákaflega brýnt
mál,“ segir Tryggvi Garðarsson,
formaður Styrktarfélags Alþjóða
geðheilbrigðisdagsins.
Vinna með einum hætti eða
öðrum er öllum nauðsynleg.
Markmið með vinnu skapar betri
velmegun og vellíðan hjá okkur
sjálfum, fjölskyldum okkar og
fyrirtækjunum sem við vinnum
hjá. En til þess að geta skilað
fullum afköstum þarf heilsan að
vera í lagi og þar leikur geðheilsan
stórt hlutverk. Ef vinnuumhverfið
er ekki í lagi getur það haft alvarleg
og niðurdrepandi áhrif á vinnu-
getuna og lífsgæði fólks. Streita,
einelti og annað neikvætt áreiti
getur dregið enn frekar úr einstakl-
ingum sem þá getur valdið mikilli
vanlíðan og frekari vangetu til þess
að inna störf sín af hendi svo vel
sé. Einelti er viðvarandi þrátt fyrir
að löggjafinn hafi undirstrikað að
tekið skuli á einelti og öðru ótil-
hlýðilegu athæfi á vinnustöðum.
Ef vinnan skapar ekki velmegun
og vellíðan, heldur veldur tapi og
vanlíðan, þá hættum við að stunda
slíka vinnu og leitum verkefna
sem uppfylla grundvallarmark-
mið vinnu. Áframhaldandi og
síendurteknir erfiðleikar geta
valdið kulnun í starfi sem má líta
á sem félagslegt fyrirbrigði en það
kemur fram á vinnustað og hefur
áhrif á framleiðni, samskipti og
þróun en spillir einnig starfsanda
vinnustaðar. Kulnun er í grunninn
atvinnutengd.
„Á Íslandi höfum við nokkur
geðúrræði til þess að endurhæfa
einstaklinga sem með geðraskanir,
sem geta komið þeim til góða á
brautinni til betra lífs,“ segir Tryggvi
„Á Alþjóða geðheilbrigðisdeginum
komum við saman og gerum okkur
glaðan dag í bland við fyrirlestra
leikra sem lærðra. Að þessu sinni
ætlum við að bjóða fólk velkomið í
Tjarnarbíó klukkan 16.15 þar sem
forsetafrúin, Elíza Reid, heiðrar
okkur með nærveru sinni og segir
nokkur orð í tilefni dagsins. Ari
Eldjárn verður með uppistand og
leikhópur úr Hlutverkasetri flytur
gjörning, ljóðalestur, á vegum Hlut-
verkaseturs og brot úr leikritinu
,,Fyrirlestur um eitthvað fallegt“ sem
er leikverk á vegum Smartilab. Við
munum síðan gæða okkur á kaffi og
góðgæti,“ upplýsir hann.
Í tengslum við Alþjóða geðheil-
brigðisdaginn 10. október verður
Geðhjálp með ráðstefnu sem nefnist
,,Geðheilbrigði á vinnustað. Hún
verður á Grand Hótel og byrjar með
morgunverði kl. 8.30 þennan sama
dag.
Heimild: Kristinn Tómasson. Geð-
heilbrigði á vinnustöðum. Mögu-
leikar til forvarna og ráðgjafa.
Geðvernd. 1. tbl. 2006.
Mikilvægt að búa vel
að fólki á vinnustað
Tryggvi Garðarsson, formaður
Styrktarfélags Alþjóða geðheil-
brigðisdagsins.
DAGSKRÁ
F ÁVARP
Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra
F ERTU KOMINN Í ÞROT?
Linda Bára Lýðsdóttir, sviðstjóri hjá VIRK
F HÚMOR OG GLEÐI Í VINNUNNI ERU DAUÐANS ALVARA
Edda Björgvinsdóttir, leikkona og fyrirlesari
F REYNSLUSAGA
Sveinn Þorsteinsson
F VERT ÞÚ FYRIRMYND
Bára Hildur Jóhannsdóttir, deildarstjóri á mannauðssviði Landsspítala
F REYNSLUSAGA
Margrét Marteinsdóttir
F SAMANTEKT FUNDARSTJÓRA
AÐGANGUR ÓKEYPIS
en skrá skal þátttöku á virk.is
HVERNIG LÍÐUR ÞÉR
Í VINNUNNI?
Morgunfundur VIRK og Geðhjálpar um
geðheilbrigði á vinnustöðum
Grand Hótel 10. október kl. 8.30-10.30
FUNDARSTJÓRI Sirrý Arnardóttir
Ábyrgð stjórnenda og starfsfólks
á andlegri líðan á vinnustað
4 GEÐHJÁLP 7 . O K TÓ B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
7
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:4
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
C
-9
B
C
0
1
D
E
C
-9
A
8
4
1
D
E
C
-9
9
4
8
1
D
E
C
-9
8
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
0
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K