Fréttablaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 38
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
Vörunúmer
29507-0031 svartar
Danmörk kr 15.376*
Svíþjóð kr. 13.316*
skv. verðskrá Levi.com & Isl.banka 23.08.17
12.990
502 TAPER
Kjötsúpuhátíðin hefur verið haldin í 15 ár en síðustu fimm ár hafa um tvö þúsund
manns tekið þátt í henni. Hún hefst
iðulega á súpurölti á föstudags-
kvöldið þegar heimamenn bjóða í
kjötsúpu. Aðal dagskráin fer fram
á laugardeginum,“ segir Árný Lára
Karvelsdóttir, markaðs- og kynn-
ingarfulltrúi hjá Rangárþingi eystra.
Hún segir heimamenn taka
virkan þátt í hátíðinni en einnig
mæti margir brottfluttir sveitungar,
íbúar úr nágrannabæjarfélögum og
auðvitað ferðamenn.
Gestir laugardagsins sem misstu
af súpurölti föstudagskvöldsins fá
einnig súpu, en Sláturfélag Suður-
lands eldar súpu ofan í alla sem
vilja.
Ýmislegt verður til gamans
gert á hátíðinni í dag. Veitt verða
verðlaun fyrir best skreytta
húsið og götuna og frumlegustu
skreytinguna. Loftboltar verða á
hátíðarsvæðinu, hoppukastalar og
hringekja auk þess sem folfvöllur
verður vígður.
Meðal skemmtiatriða má nefna
Latabæ, Góa og vatnsknattleik
en Stuðlabandið verður með
krakka- og fjölskyldufjör. Brenna
Kjötsúpan best daginn eftir
Kjötsúpan stendur alltaf fyrir sínu.
NORDICPHOTOS/GETTY
Einar Þór Jóhannsson, kokkur frá
Moldnúpi, gefur uppskrift að góm-
sætri kjötsúpu.
Keppt verður í vatnsknattleik.
Kjötsúpa Einars
3 l vatn
2,5 kg kjöt á beini
400 g rófur
200 g gulrætur
2 laukar
50 g íslenskt bygg
1 poki súpujurtir
Hálfur hvítkálshaus
Hnefi af selleríi
Fyrst gerir þú þér ferð til næsta
bónda sem er í Beint frá býli og
færð þér úrvals súpukjöt og keyrir
svo undir fjöllin og kaupir byggið.
Skolar kjötið undir rennandi vatni
í 5 mín. og setur svo í pottinn með
bygginu, súpujurtunum og hellir
vatninu yfir. Sjóðið í klukkutíma
og bætið þá við rófum, gulrótum
og lauk og sjóðið í hálftíma til við-
bótar. Tíu mínútum áður en súpan
er borin á borð er hvítkálinu og
selleríinu bætt út í. Salt og pipar
eftir smekk.
og brekkusöngur er klukkan 21
sem lýkur með flugeldasýningu. Þá
tekur við ball með Stuðlabandinu í
félagsheimilinu Hvolnum. Á sunnu-
daginn mun Ísólfur Gylfi Pálmason
sveitarstjóri leiða sögugöngu um
Hvolsvöll sem hefst við íþróttamið-
stöðina klukkan 10.30.
Stendur alltaf fyrir sínu
Einar Þór Jóhannsson kokkur býr
á Moldnúpi undir Eyjafjöllum
þar sem hann er einnig fæddur og
upp alinn. Þar rekur hann ásamt
fjölskyldu sinni ferðaþjónustu og
auk þess nokkur kaffihús og gisti-
hús í sveitinni.
Einar þykir mikill matgæðingur
og því upplagt að fá hann til að
gefa uppskrift að góðri kjötsúpu.
„Kjötsúpan stendur alltaf fyrir
sínu. Ég hef borðað hana alla tíð og
elda hana bæði heima og fyrir gesti
mína,“ segir Einar sem notar gamla
fjölskylduuppskrift sem hann
hefur þróað í gegnum tíðina. „Við
notum til dæmis bankabygg sem
ræktað er í hér í sveitinni í staðinn
fyrir hrísgrjón.“
Hann segir súpuna sívinsæla,
sér í lagi meðal ferðamanna.
„Það er mikill misskilningur að
útlendingum þyki lambakjöt vont.
Flestir eru mjög hrifnir af íslenska
lambinu en margir þora hins vegar
ekki að smakka það því lambið er
svo vont úti. Hér heima er miklu
minna rollubragð af kjötinu en úti.
Þeir sem fást til að smakka það eru
mjög sáttir,“ segir Einar og bætir
við að galdurinn að góðri kjötsúpu
sé að láta hana sjóða nógu lengi.
„Svo er hún líka alltaf betri daginn
eftir.“
Árleg Kjötsúpuhátíð er haldin á Hvols-
velli um helgina. Gestum er boðið upp
á súpu og ýmis skemmtiatriði. Kokkur-
inn Einar Þór Jóhannsson gefur upp-
skrift að kjötsúpu sem klikkar ekki.
Nám í Svæðameðferðaskóla Þórgunnu
Haustönn hefst þriðjudaginn 5. september
Tilvalið nám fyrir þig sem hefur áhuga
á að vinna sjálfstætt eða í hlutastarfi.
Viðurkennt af BIG og niðurgreitt af
stéttarfélögum.
Kennsla eitt kvöld í viku
frá kl. 18.00 - 21.00.
Nánari upplýsingar á heilsusetur.is
og í síma 8969653
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
4
-6
B
0
8
1
D
9
4
-6
9
C
C
1
D
9
4
-6
8
9
0
1
D
9
4
-6
7
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K