Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Page 22
Helgarblað 20.–23. janúar 20172 Bílasölur - Kynningarblað
Nýlegir bílar og hjólhýsi á
sérlega áhugaverðu verði
Höfðahöllin
H
öfðahöllin er rótgróin
bílasala, staðsett að Funa-
höfða 1, í miðju bílasölu-
hverfinu á Höfðanum. Þar
eru til sýnis og sölu bílar
bæði á útistæðum og í björtum inn-
isal. Eigandi fyrirtækisins, Indriði
Jónsson, starfar á staðnum ásamt
Árna Ágústi Brynjólfssyni, en þeir
félagar hafa selt bíla í þúsundatali
undanfarin ár. Báðir eru þeir með
mikla bíladellu og hafa haldgóða
þekkingu á þeim bílum sem þeir
taka að sér að selja.
Innflutningur á bílum
Höfðahöllin hefur flutt inn nýlega
bíla með góðum árangri undan-
farna mánuði og oft boðið upp á
spennandi kosti á frábæru verði.
Nýjastir eru hinir vinsælu bílar frá
Audi og VW, annars vegar Golf GTE
og hins vegar Audi A3 E-tron plug
in hybrid, en það stendur fyrir bíla
með bensín- og rafmagnsmótorum
með möguleikann á að hlaða með
snúru þegar þörf er á. Núna eru sex
slíkir bílar til sýnis og sölu á staðn-
um og ekki síst til afhendingar strax
meðan það hefur verið talsverð bið
eftir þeim hjá umboðsaðila. Drægni
þessara bíla er um 50 km eingöngu,
en með fullum bensíntanki að auki
má komast allt að 900 km að sögn
framleiðanda.
Innflutningur á hjólhýsum
Nýverið komst Höfðahöllin í sam-
band við umboðsmann Hobby-
hjólhýsa á meginlandinu og eru
þegar nokkur hús komin í ferli.
Núna er rétti tíminn til að panta sér
hús með sínum sérþörfum. Verðið
er sérlega áhugavert, hafðu sam-
band og fáðu tilboð.
Nánari upplýsingar á bilo.is eða
í síma 567 4840.
Meðfylgjandi eru myndir af Audi
A3 E-tron, Golf GTE og Hobby-
hjólhýsi. n
Nýlegir bílar á réttu verði og
kaupendur njóta sterkrar krónu
Nýja bílahöllin, Eirhöfða 11, Bílakjarnanum
É
g er búinn að starfa við
bílasölu frá árinu 1982 og við
sjálfstæðan rekstur frá árinu
1988,“ segir Ingimar Sigurðs-
son, eigandi Nýju bílahallar-
innar, sem stofnuð var fyrir 29 árum.
Hún er með aðsetur í Bílakjarnan-
um að Eirhöfða 11 í Reykjavík. Þar er
góð aðkoma og frábær aðstaða til að
skoða og sýna bíla.
„Í gegnum tíðina höfum við tek-
ið að okkur allar gerðir af bílum. Í
upphafi lögðum við áherslu á ódýra
bíla en undanfarin ár höfum við fært
okkur meira yfir í að selja nýlega bíla.
Stór hluti kaupenda eru bílaleigur en
þær hafa verið uppistaðan í kaup-
endahópi nýlegra bíla eftir hrun.“
Að sögn Ingimars er bílasala á
uppleið. „Straumurinn undanfarin
misseri hefur hins vegar meira legið
í nýja bíla og það hefur aðeins slitn-
að á milli sölu nýrra og notaðra bíla.
Á þessu ári teljum við hins vegar
að þetta leiti í sama far, þ.e. að sala
á notuðum bílum muni haldast í
hendur við sölu á nýjum bílum.“
Nýja bílahöllin er með yfir 150
bíla í sölu og afskaplega góða sýn-
ingaraðstöðu: „Við erum með 10 bíla
innisal og 150 bíla útisvæði. Það er
fágætt að bílasölur bjóði upp á svona
stórt útisvæði og innisal að auki,“
segir Ingimar.
Að sögn Ingimars kappkostar
Nýja bílahöllin að bjóða upp á rétt
verð á notuðum bílum, í samræmi
við verð á nýjum, og láta þannig
kaupendur notaðra bíla njóta styrk-
ingar krónunnar: „Við höfum reynt
að hafa það að leiðarljósi að hafa
verð á bílum rétt miðað við nývirði.
Verð á notuðum nýlegum bílum, 3–5
ára, á að haldast í hendur við nývirði,
með öðrum orðum að lækka eðli-
lega, við reynum að hafa það eins rétt
og mögulegt. Á síðustu 12 mánuðum
hefur gengið styrkst um 17% sem
þýðir að verð á nýjum bílum hefur
lækkað og við erum að reyna að út-
færa það á notaða markaðinn.“
Sem fyrr segir er Nýja bílahöllin
til húsa að Eirhöfða 11, í Bílakjarnan-
um. Opið er virka daga frá 10 til 18 og
á laugardögum frá 12 til 15. Sími er
567 2277. Nánari upplýsingar á vef-
síðunni nyja.is. n
myndIr sIgtryggur arI