Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Side 30
Helgarblað 20.–23. janúar 201722 Fólk Viðtal Glæsibæ • www.sportlif.is PróteinPönnukökur Próteinís Próteinbúðingur niður og ekkert seldist. Ég held að það hafi verið 6 þúsund niðurhöl og það var einmitt það sem við vorum að vonast til að selja – en í staðinn seldum við í kringum 6 eða 7 hund- ruð. Unga fólkið í dag vill fá hlutina ókeypis, á Spotify og Netflix og allt þetta. En einhvers staðar verða listamenn að fá pening, enda eru núna tónleikar nánast upp á hvern einasta dag,“ segir Laddi. Annað nýja lagið þitt, „Hér er ég“, sýnir svolítið nýja hlið á þér. Það er glaðlegt kántrípopp, og þar er ekkert grín í gangi, bara léttleikandi ástar- óður sunginn af ljúfsárri einlægni. „Já, þetta er eiginlega það sem mig langaði alltaf að gera. Ég ætl- aði alltaf að vera afskaplega alvar- legur þegar ég samdi tónlist. Fyrsta sólóplatan mín, Deió, átti að verða þannig. Gunni [Þórðarson] hins vegar neitaði: „Það vantar allt grín í þetta, það vill enginn hlusta á þetta!“ og rak mig heim til að semja nýja texta. Þannig að þetta nýja lag er tónlist eins og ég vildi alltaf gera.“ Er auðveldara að vera alvarlegur með aldrinum? „Nei,“ svarar Laddi eftir svolítið hik. „Ég vil ekki vera of alvarlegur. Ég er það nú eiginlega aldrei. Ég vil bara vera með svona léttleika. Það er bara ég.“ Heimsmet í karaktersköpun Ef við snúum okkur aftur að gríninu, þá langar mig að spyrja þig hverjir hafa verið þínir helstu áhrifavald- ar þar? „Í gamla daga var það Chaplin í þöglu myndunum og svo var það Jerry Lewis sem var alltaf með Dean Martin. Hann var mitt ídol. Hann var með allar þessar grettur og geiflur sem ég hermdi svolítið eftir. Hann gerði karakterinn Nutty Pro- fessor sem mér fannst algjör snilld. Mér fannst svo áhugavert að búa til karaktera og breytast algjörlega. Ég fór þá sjálfur að fíflast með að búa til einhverja karaktera, án þess að gefa þeim nöfn fyrst um sinn. Svo komu kvikmyndaleikarar eins og Peter Sellers, ég dýrkaði hann. Hann átti örugglega metið í að gera marga karaktera – en ég held ég hafi örugglega toppað það met. Gísli Rúnar heldur því reyndar fram að ég eigi heimsmet í að búa til marga karaktera sem eru svo þekktir að þeir eru nánast með kennitölu.“ Fylgist þú mikið með íslensku gríni í dag? „Ég verð að játa að ég fylgist ekki mikið með nema það sem kemur í sjónvarpi. Ég hef ekki mikið verið að fara á uppistandssýningar nema kannski Mið-Ísland til að byrja með. Mér finnst Ari Eldjárn standa upp úr, þó það séu margir mjög fín- ir. Þetta er orðið svo mikið – það eru allir uppistandarar í dag.“ Nú er sonur þinn, Þórhallur Þór- hallsson, einmitt nokkuð áberandi uppistandari. Getur þú eitthvað sagt honum til á þeim vettvangi? „Ég reyni að gefa honum góðar ábendingar, en sennilega fer hann ekkert eftir þeim. Ég er bara með eitthvert gamalt grín. Þetta er að- eins öðruvísi í dag. Ég er ekki beint uppistandari því ég hef alltaf notað tónlistina með, eða gert sýningar og einhvers konar kabarett. Maður er svolítið fastur í því.“ Of mikið af klámbröndurum í dag En hvernig finnst þér íslenskt grín í dag, finnst þér það fyrst og fremst vera formið sem hefur breyst, eða hefur það breyst í grunninn? „Það er aðallega formið sem hef- ur breyst en svo eru það líka aðrar áherslur. Hjá þeim sem eru nýbyrj- aðir er það oft svolítið mikið klám, typpi og rass. Það er svo auðvelt að fara út í það og mér finnst fólk gera of mikið af því. Ég hef einmitt ver- ið að skamma Þórhall fyrir það! Við Halli náðum að vera alveg lausir við það – fórum aldrei út í slíkt. En kannski er þetta það sem fólkið vill í dag og það er kannski þess vegna sem ég hef ekki meiri áhuga.“ Það er áhugavert að þú segir þetta, því það er oft talað um að í dag séum við sérstaklega viðkvæm og talað um pólitískan rétttrúnað. Kannski eru aðrir hlutir sem virka. Ég velti til dæmis fyrir mé hvort að lag eins og „Hún er allt of feit“ eða karakter eins og Grínverjinn myndu ganga í dag? „Ég er ekki viss um það. Meira að segja þegar Of feit kom út var þetta umdeilt. Ég var að árita plötur og þá kom ein kona og var alveg brjáluð. Hún sagði að ef við værum í Banda- ríkjunum væri búið að kæra mig. Ég benti henni reyndar kurteisislega á að þetta væri bandarískt lag, og ég hefði hálfþýtt textann – lagið heitir „She‘s too fat for me“ – en sá söngv- ari var ekki settur í fangelsi. Varð- andi Grínverjann þá var mér sagt að Kínverjar á Íslandi hefðu móðg- ast yfir þessu, þannig að ég hætti að koma fram með hann. Þetta var viðkvæmt og hvað þá heldur núna – það myndi aldrei ganga.“ Þannig að þegar grínið er farið að særa þá hættir þú? „Já, þá stoppar maður. Þá er það ekki alveg að gera sig.“ Óttast mest að missa getuna til að spila golf Það eru nokkrir mánuðir síðan Laddi eignaðist sitt fyrsta barna- barnabarn og er því orðinn langafi. En hvernig finnst manninum að eld- ast? „Bara frábært, já, já. En ég fór samt að velta þessu fyrir mér núna í kringum afmælið. Mér fannst svo stutt síðan ég varð sextugur. Þessi áratugur hefur verð svo fljótur að líða! Ég staldraði því aðeins við og fór að hugsa. „Vá, sjötugur, hvað er langt eftir?“ Það er nefnilega ekki svo mikið, kannski 10 eða 20 en varla 30 ár. Ég næ vonandi tíu góðum árum, en svo fer að halla undan fæti.“ Hvernig líður þér með þetta? „Mestu áhyggjurnar eru að ég missi getuna til að spila golf. En ég sá reyndar nýlega viðtal við 88 ára gamlan mann sem var enn að spila. Hann var með 13 í forgjöf og ég er með 11 núna, þannig að ég er ekki mikið betri en hann! Ég verð rosa- lega sáttur ef ég verð með 13 í forgjöf á þeim aldri. En golfið heldur manni líka gangandi, heldur manni ung- um. Maður labbar gríðarlega mik- ið, sjö kílómetra á dag, allt sumar- ið. Það er ástæðan fyrir því að konan mín leyfir mér að vera í golfi alveg eins og ég vil.“ En hefur þú líka farið að líta yfir farinn veg, velt fyrir þér hvort þú sért sáttur við ferilinn eða hvort það sé eitthvað sem þú sérð eftir? „Ég er ekki beint farinn að hugsa þannig. Þessa stundina sé ég ekki eftir neinu, en kannski fer ég meira að horfa til baka þegar ég verð kom- inn á níræðisaldurinn. Þá getur vel verið að maður sjái eftir einhverju, en ég vona ekki. Núna horfi ég fram á veginn.“ Ég hef frétt að þú sért farinn að einbeita þér að myndlistinni í aukn- um mæli, er það ekki rétt? „Já, reyndar ætlaði ég að verða myndlistarmaður þegar ég var tólf, þrettán ára. Ég og Bjarni Ragnar vin- ur minn stefndum báðir á það. Hann varð myndlistarmaður en ég er fyrst núna að byrja að einbeita mér að því. Ég ætla að taka myndlistina svo- lítið alvarlegar heldur en grínið. Það er minn draumur að fara til Spánar og fara á myndlistarnámskeið. Mig langar að gera þetta fljótlega, helst næsta vetur.“ Þannig að planið er að lifa lúxus- lífi á ellilífeyrinum á Spáni? „Ég er kominn á þann aldur að ég á að fá ellilífeyri, en ég fæ bara eigin- lega ekki neitt. Maður má ekki þéna meira en einhvern hundrað þúsund kall á mánuði annars er allt tekið af, og þar sem ég hef verið svo lengi sjálfstætt starfandi þá er lífeyrissjóð- urinn mjög lélegur hjá mér. Þannig að ég hef ekkert efni á að hætta.“ Þannig að fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því að sjá minna af þér á næstunni? „Nei, nei. Eða kannski örlítið minna, en ég verð alltaf viðloðandi þetta, að minnsta kosti á meðan fólk vill ennþá heyra í mér og sjá.“ n „Það voru ein- hverjir rapparar að tala um þetta við mig um daginn og þeir héldu jafnvel að þetta væri eitt fyrsta rapplagið á ís- lensku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.