Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2017, Síða 34
Helgarblað 20.–23. janúar 201726 Skrýtið Sakamál Inni- og útilýsing Sími: 565 8911 & 867 8911 - www.ledljos.com - ludviksson@ludviksson.com Led sparar 80-92% orku Ledljós Ludviksson ehf Kvennamorðinginn „Cody“ Einnar viku morðæði kostaði þrjár konur lífið Þ að var engu tauti komið við þriggja dómara teymi í Jefferson-sýslu í Colorado í Bandaríkjunum þann 29. september 1999. Þrátt fyr- ir að William „Cody“ (sennilega til „heiðurs“ William Frederick „Buffalo Bill“ Cody) Neal sværi og sárt við legði að hann væri ekki leng- ur sami maður og myrti með hrotta- legum hætti þrjár konur í vikulöngu morðæði í júlí 1998. William sagð- ist vilja lifa svo hann gæti unnið verk Guðs innan veggja fangelsisins, en honum tókst ekki að sannfæra dómarana sem ákváðu að lífi hans yrði ekki þyrmt og hann þess í stað dæmdur til dauða. Neydd til að horfa á William, sem fæddist árið 1955, ját- aði sig sekan um að hafa barið til dauðs Angelu Fite, Candace Walters og Rebeccu Holberton með bolöxi. Ein kona, 22 ára, lifði af kynni sín við William, en hún bar fyrir dómi að hann hefði bundið hana við rúm í húsi því sem hann nýtti til morðanna. William neyddi hana til að horfa á þegar hann braut höfuðkúpuna á Angelu Fite með fleyg. Að því loknu nauðgaði hann konunni. Eini viðeigandi dómurinn Við dómsuppkvaðninguna sagði einn dómaranna, Thomas Woodford, við William að glæpir hans væru „hrotta- leg, tilefnislaus dráp“ að ónefndum þeim harmi sem hann hefði valdið ættingjum fórnarlambanna. Woodford sagði að dómararnir hefðu „komist að þeirri niðurstöðu að eina refsingin sem hægt væri að beita, sem samræmdist þeim lög- um sem dómararnir hefðu svarið að framfylgja, væri dauðadómur.“ Sá sjálfur um vörnina Ákæruvaldið vísaði á bug fullyrðing- um Williams, sem sá um eigin vörn, um að hann hefði myrt konurnar í þeim tilgangi að fela að hann hafði rænt þær fé. Sjálfur bar William aldrei brigð- ur á ákæruatriðin og afþakkaði, þá tíu daga sem réttarhöldin stóðu, að gagnspyrja vitni ákæruvaldsins. William fór ekki í launkofa með þá skoðun sína að hann ætti enga mis- kunn skilda, en sagði, sem fyrr segir, að hann væri breyttur maður og hefði gengið Guði á hönd. Sú fullyrðing féll í grýtta jörð hjá saksóknara Jefferson-sýslu, Dave Thomas, og hafði hann á orði að glæpir Williams væru „klæð- skerasniðnir“ að dauðarefsingu. Níu önnur ákæruatriði Hver veit nema Dave Thomas hafi haft eitthvað til síns máls því lýs- ingar lögregluþjóna sem komu á vettvang gætu allt eins hafa átt við sláturhús. Thomas hafði enda á orði að hann hefði ekki heyrt viðlíka vitn- isburð í 26 ára starfi sem saksóknari: „Mér rann kalt vatn milli skinns og hörunds.“ Þegar þarna var komið sögu stóð William frammi fyrir níu öðrum ákæruatriðum tengdum morðun- um; kynferðislegu ofbeldi, mann- ránum og þjófnuðum þar á meðal. Í lokin er vert að geta þess að árið 2003 var dómur yfir William Neil mildaður og í stað dauðarefsingar fær hann að dúsa á bak við lás og slá það sem eftir er ævinnar. n Fórnarlömb Williams Rebecca Holberton, Candace Walters og Angela Fite. „Hafði hann á orði að glæpir Williams væru „klæðskerasniðnir“ að dauðarefsingu. William „Cody“ Sá um eigin vörn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.