Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Side 18
Helgarblað 17.–20. febrúar 201718 Neytendur
Bestu kaupin
í Costco
n Þetta eru vörurnar sem hagstæðast er
að kaupa n Lærðu að lesa í verðmiðann
n Svona er hægt að versla án aðildar
K
lósettpappír, bleyjur, raf-
hlöður og leikföng eru á
meðal þess sem hagstæð-
ast er að kaupa í Costco.
Bandaríski heildsölurisinn
Costco opnar vöruhús sitt í Kaup-
túni eftir rúma þrjá mánuði, eins
og íslenskum neytendum ætti að
vera orðið kunnugt um. Í verslun-
inni verða aðeins um 3.800 vöru-
númer en á móti kemur að þeir selja
vörurnar ódýrt og í risastórum ein-
ingum.
Á Youtube má finna mörg mynd-
bönd um það hvernig hagstæðast
er haga innkaupum sín í verslun-
inni. DV lagðist yfir nokkur af nýrri
myndböndunum og hefur kortlagt
hvaða vörur það eru sem lífsstíls-
frömuðir á Youtube telja að best sé
að kaupa í Costco. Upptalningin
hér að neðan tekur mið af breskum
og bandarískum Costco-verslun-
um en verslunin í Kauptúni verð-
ur útibú frá Bretlandi. Tekið skal
fram að markaðsaðstæður á Íslandi
geta verið aðrar en í þessum lönd-
um. Þannig getur vara sem er dýr í
Costco í Bandaríkjunum, saman-
borið við aðrar þarlendar verslan-
ir, verið mjög ódýr samanborið við
íslenskar verslanir. Þessu getur að
sjálfsögðu líka verið öfugt farið.
Ómögulegt er að spá fyrir um
nákvæma verðlagningu í Costco í
Kauptúni. Þó skal haft í huga að að-
spurðir sögðu forsvarsmenn þessa
risafyrirtækis á kynningarfundi í
síðustu viku, að ástæðan fyrir því að
þeir opna fyrsta vöruhúsið á Norð-
urlöndum í Garðabæ, sé að þeir sjái
mikið svigrúm til að bjóða miklu
lægra verð en hér hefur tíðkast. Af
þeim viðtölum mátti skilja að þeir
sæju hag í að segja íslensku okri stríð
á hendur, en eins og DV afhjúpaði
með greinaröð í haust er verðlag á
Íslandi í flestum tilfellum 60–80%
hærra en í nágrannalöndunum. Þar
virðist Costco sjá tækifæri.
Hvort tilkoma Costco á Íslandi
verði til þess að verðlag lækki á Ís-
landi verður tíminn að leiða í ljós
en hér eru nokkur dæmi um vörur
sem í Bandaríkjunum og Bretlandi
eru töluvert ódýrari í Costco en í
þarlendum samanburðarverslun-
um. Hér er einnig að finna hagnýtar
upplýsingar og trix sem hjálpa þér
að búa þig undir þína fyrstu versl-
unarferð í Costco. n
Kirkland Signature
Kirkland vörumerkið var hannað af Costco og er í eigu verslunarrisans. Undir því selur Costco gæðavörur í ótal flokkum, svo sem matvöru,
raftæki, fatnað og hreinlætisvörur. Flestum virðist bera saman um að Kirkland Signature sé gæðamerki og standist þekktustu vörumerkjum
heims snúning þegar kemur að gæðum – enda oft framleitt af sömu aðilum. Ruslapokar, bleyjur og klósettpappír eru dæmi um vörur sem
hægt er að kaupa undir þessu vörumerki á sérstaklega hagstæðu verði.
Fylgstu með
endingunni
Dæmigert verð í Costco mun enda á níu
krónum (t.d. 1.799 kr.). Þetta gildir raunar
um flestar íslenskar verslanir. Þeir sem til
þekkja í Costco ráðleggja fólki að fylgjast
vel með vörum sem seldar eru á sléttu verði
eða ef verðið endar á fjórum eða sjö krónum.
Það bendir yfirleitt til þess að varnan sé á
niðursettu verði. Og ástæða þess er að þá er
verið að rýma fyrir nýrri vöru.
Sjónvarpstæki
Í Costo er hægt að kaupa daglegar neysluvör-
ur en einnig stærri hluti eins og hjólbarða og
stór raftæki. Kunnugir hafa orð á því að gott
sé að fylgjast með verði á raftækjum á borð
við sjónvarpstæki í kringum „Black Friday“ og
jól. Þá sé stundum hægt að gera frábær kaup.
Aftur mælir DV með að neytendur geri verð-
samanburð áður en slík vara er keypt. Elko er
á heildina litið með ódýrustu sjónvarpstækin
á markaði. Á elko.is er hægt að fletta upp öllu
verði. Ekki kaupa í blindni.
Bensín
og annað
eldsneyti
Costco leggur að 14% á
flestar vörur sem þeir selja.
Þar er eldsneyti eitt af
því sem er undanskilið en
almennt séð er talað um að
eldsneyti sé selt án álagn-
ingar í Costco. Ef sú verður
raunin hér, sem DV hefur ekki
ástæðu til að efast um, gæti
lítraverðið orðið miklu lægra
en við Íslendingar eigum að
venjast. Verið er að setja
upp 16 dælur við Kauptún.
Aðeins meðlimir geta verslað
eldsneyti.
Rafhlöður
margfalt
ódýrari
Allar rafhlöður í Costco eru
framleiddar af Duracell. Þær
eru hins vegar flestar seldar
undir vörumerkinu Kirkland
Signature, sem er í eigu Costco.
Í þriggja mánaða gömlu
myndbandi úr Costco, sjást
72 AA rafhlöður á um 2.100
krónur. Til samanburðar kosta
fjögur stykki í Elko 445 krónur.
Verðmunurinn er næstum
fjórfaldur en óvíst er hvað raf-
hlöðurnar munu kosta í Costco
í Kauptúni.
Leikföng á
kostaverði
Costco selur mjög mikið af
leikföngum. Lífsstílsfrömuðir
á Youtube segjast flestir versla
allar sínar gjafir í Costco. Til að
átta sig á því hvort verðið er gott
er sniðugt að vera með app í sím-
anum, t.d. frá Amazon, sem flettir
upp verði eftir strikamerkinu eða
QR Code. Þá getur verið sniðugt
að skoða toysrus.is og leita þar að
sömu vöru. Í þeim dæmum sem
tekin eru á Youtube, svo sem af
The Krazy Coupon Lady, reynast
leikföng í Costco miklu ódýrari en
á Amazon.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is