Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Qupperneq 20
Helgarblað 17.–20. febrúar 201720 Fréttir Erlent Ofbeldi Og hamfarir n Nokkrar af fréttamyndum liðinnar viku n Uppskerubrestur á Filippseyjum  Uppskerubrestur vofir yfir Veðurfarsbreytingar, knúnar af hlýnun jarðar, eiga sér ýmsar birtingarmyndir. Á þessari mynd má sjá filippseyska bændur í örvæntingu grafa eftir vatni til að vökva akra sína. Myndin er tekin í Taguig-borg, suður af Maníla, á þriðjudaginn. Bændur á svæðinu sjá fram á umfangsmikinn uppskeru- brest á hrísgrjónum vegna vatnsskorts.  Minnast stríðsloka Úkraínumenn leggja blóm að minnismerki í Kænugarði, tileinkuðu níu ára stríði Sovétmanna í Afganistan. Um þessar mundir eru 28 ár liðin frá stríðslokum en Sovétmenn réðust inn í landið til að styðja baráttu marxista gegn andspyrnuhreyfingu íslamskra bókstafstrúarmanna – sem háðu heilagt stríð gegn yfirvöld- um. 620 þúsund sovéskir hermenn þjónuðu í Afganistan en 14.453 féllu.  Lét hann myrða bróður sinn? Hér má sjá umfjöllun taívanskra dagblaða um dauða hálfbróður Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. Grunur leikur á að eitrað hafi verið fyrir manninum, Kim Jong- nam, sem hneig niður á flugvelli í Kúala Lúmpúr á mánudag. Talið er fullvíst að um leigumorð hafi verið að ræða en kona, sem var handtekin á flugvell- inum umræddan dag, er enn í haldi. Suður-Kóreumenn eru þess fullvissir að norðurkóresk stjórnvöld hafi fyrirskipað morðið, en Kim Jong-nam var þyrnir í augum bróður síns.  Áhrif fjar- fundabúnaðar Oscar Vargas (t.v.) og Jon Messenger (t.h.), höfundar skýrslu á vegum Alþjóðasamvinnumálastofnunar og Eurofound (Evrópustofnunar um bætt lífskjör og starfsskilyrði), kynna niðurstöður sérfræðinga stofnananna á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í Genf í Sviss á miðvikudag. Skýrslan ber nafnið Working Anytime, Anywhere: The effects of the world of work og fjallar um hvernig tilkoma fjarfundabúnaðar hefur haft áhrif á vinnumarkaðinn í heild.  Féll í skotárás Ravi Kumar féll ásamt þremur öðrum indverskum hermönnum í skotbardaga í Kasmír í Indlandi á þriðjudag. Hér má sjá syrgjandi ættingja mannsins en alls féllu átta á svæðinu í tveimur aðskild- um skotbardögum sem brutust út á milli hermanna og uppreisnar- manna. Tólf öryggisverðir særð- ust að auki, auk eins almenns borgara. Myndin fangar nístandi sársauka foreldra mannsins, skömmu fyrir bálförina.  Reyndi að lokka unglinga til ISIS Spænska lögreglan handtók á miðviku- dag marokkóskan mann vegna meintra tengsla við Íslamska ríkið, ISIS. Maðurinn var handtekinn í Vitoria í Baskalandi, í norð- urhluta landsins. Maðurinn 41, árs gamall, er grunaður um að hafa reynt að sannfæra ungt fólk um að ganga til liðs við samtökin. Á sama var annar einstaklingur handtekinn í Alicante, á Austur-Spáni. Þar var um að ræða spænska konu sem var að sögn að reyna að komast til Sýrlands, með fjögur börn sín, með það fyrir augum að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.