Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Síða 26
Helgarblað 17.–20. febrúar 201726 Fólk Viðtal
É
g veit að ég er orðinn blindur,“
voru fyrstu orðin sem Ant-
on Freyr Gunnarsson sagði
eftir að heimatilbúin sprengja
sprakk beint í andlitið á
honum þann 4. janúar síðastliðinn.
Anton, sem er nýorðinn 16 ára,
gerði sprengjuna úr sjö tertum, þar
á meðal einni sýningartertu, sem
hann keypti sjálfur fyrr um daginn.
Margar klukkustundir fóru í að útbúa
sprengjuna sem nærri kostaði hann
lífið. Foreldrar hans lýsa aðkomunni
að slysstað svo hryllilegri að þau eigi
aldrei eftir að gleyma augnablikinu
þegar þau sáu fyrst framan í son sinn
þar sem hann skvetti vatni framan í
sig afmyndaður eftir sprenginguna.
Andlitið afmyndað
„Augun voru brunnin, andlitið svart
og afmyndað af sóti, brunasárum
og blóði. Það lak úr eyrum hans og
hægri höndin var svo tætt að kjöt-
tægjur fóru út um allt,“ segir Gunnar
Þór Magnússon, faðir Antons Freys,
og bætir við að fyrstu viðbrögð hans
hafi verið að reyna að forða móður
Antons, Helgu Ísfold Magnúsdóttur,
frá því að horfa framan í drenginn af
ótta við viðbrögð hennar við að sjá
barnið þeirra í þessu ástandi.
Betur fór en á horfðist í fyrstu en
Anton Freyr hefur náð undraverðum
bata á þeim rúmlega sex vikum sem
liðnar eru frá kvöldinu örlagaríka.
Sjónin er að megninu til komin til
baka og brunasárin hafa gróið svo vel
að læknarnir sem séð hafa um Anton
frá slysinu segja það kraftaverki líkast.
Blaðamaður DV settist niður með
Antoni og foreldrum hans á heimili
þeirra í Þorlákshöfn í vikunni. Öll eru
þau sammála um að margir hefðu
gagn af því að lesa um skelfilega lífs-
reynslu þeirra svo hægt sé að draga
lærdóm af henni. Anton segir mjög
algengt að „krakkar“ séu að útbúa
og sprengja heimatilbúnar sprengj-
ur dagana í kringum áramótin. Faðir
hans tekur í sama streng og telur sig
hafa ofmetið getu sonar síns til að
umgangast flugelda.
„Það verður að passa miklu betur
upp á börn og unglinga á þessum
árstíma. Ég ofmat aldur hans og
þroska og tel að söluaðilar flugelda
Anton afmyndaðist
eftir flugeldaslys
Heimatilbúin sprengja
kostaði Anton Frey
Gunnarsson næst-
um því lífið. Fyrstu dag-
ana var tvísýnt um hvort
hann fengi sjón aftur.
Þrátt fyrir alvarlega
áverka hefur Anton náð
undraverðum bata
„Ég hugsaði stöðugt
um það hvort ég
væri orðinn blindur
Kristín Clausen
kristin@dv.is