Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Síða 29
Helgarblað 17.–20. febrúar 2017 Kynningarblað - Málning 3
„Við höldum ekki
bara á penslum“
Gæðamálverk veitir alhliða málningarþjónustu og sinnir nýbyggingum af miklum krafti
M
álningarfyrirtækið Gæða-
málverk er nú að vinna við
nýbyggingu sem bygginga-
fyrirtækið Mannverk hefur
reist að Herjólfsgötu 32–
34 í Hafnarfirði. Hér er um að ræða
fjölbýlishús með 32 íbúðum og ver-
kefni Gæðamálverks eru fólgin í því
að sandspartla, gifsmúra, grunna,
kítta, líma pappaborða í samskeyti og
svo auðvitað að mála húsið. Þetta er
dæmigert verkefni hjá Gæðamálverki
sem hefur unnið við fjölmargar vel
heppnaðar nýbyggingar sem Mann-
verk hefur reist á undanförnum árum.
„Mannverk leggur mikla áherslu á
að fá okkur til liðs við sig,“ segir Gísli
V. Eggertsson, eigandi Gæðamál-
verks, og hann er ánægður með sam-
starfið: „Það vinnur ákaflega gott fólk
hjá Mannverki og sérstaklega er ég
ánægður með Hildi Margréti verk-
efnastjóra sem er tengiliður minn hjá
fyrirtækinu, en þessi frábæra kona
stýrir hörðum iðnaðarmönnum af
mikilli röggsemi.“ Annar þekktur og
náinn samstarfsaðili Gæðamálverks
er Flügger-litir en Gæðamálverk not-
ar að mestu leyti efni frá þeim og
gengur samstarfið afar vel.
Sandspörtlun er eitt af sérsviðum
Gæðamálverks en fyrirtækið stát-
ar meðal annars af því að hafa
sandspartlað hæstu byggingu á Ís-
landi, fjölbýlishús í Skuggahverfi í
Reykjavík. Auk sandspörtlunar sinn-
ir Gæðamálverk allri málningar vinnu
innanhúss og utan, þar á meðal þak-
málningu; sem og léttum múrvið-
gerðum utanhúss.
Gísli V. Eggertsson er ungur að
árum, 35 ára gamall, en hann hefur
unnið við málun frá unglingsaldri.
Hann er lærður málarameistari og
fyrirtækið hefur hann rekið í tíu ár:
„Já, þetta er orðið tíu ára gamalt
fyrirtæki en ég hef aldrei skipt um
kennitölu. Satt best að segja þykir tíu
ára kennitala í þessum bransa vera
ansi gömul. En heiðarleiki er okkur
mikilvægur og ég vil standa við mín
orð,“ segir Gísli.
Það er mikið að gera hjá Gæða-
málverki nær allt árið en
mest er að gera á vorin og
sumrin þegar verkefnum
í útimálun fjölgar mjög
mikið. „En vegna vaxt-
arins í nýbyggingum þá
get ég í rauninni fengið eins mikla
vinnu og ég vil. Ég vil hins vegar ekki
stækka fyrirtækið of mikið því mér
finnst mikilvægt að ég geti unnið
áfram sjálfur við málun en þurfi ekki
að færast yfir í stjórnunarstarf. Þetta
er mitt fag og ég get ekki hugsað mér
að hætta í því strax. Ég vil auk þess
gera hlutina vel og vandlega og þetta
má ekki verða of stórt,“ segir Gísli sem
hefur unun af sínu
fagi og nýtur þess
að skila af sér góð-
um verkum sem
viðskiptavinurinn
er ánægður með.
Starfsmenn
Gæðamálverks eru
um sjö talsins að Gísla meðtöldum
en á álagstíma fer hann í samstarf
við undirverktaka sem er með annan
eins starfsmannafjölda.
Segja má að vinna við nýbyggingar
Mannverks séu stærsti hlutinn af
starfsemi Gæðamálverks. Fyrirtæk-
ið tekur hins vegar að sér alls konar
verkefni bæði stór og smá og málar til
dæmis líka hús fyrir einstaklinga.
Nánari upplýsingar er að finna
á heimasíðunni gaedamalverk.is
en síminn er 867-7010. Heimasíða
Mannverks: mannverk.is. n
Vönduð vinnubrögð Gæðamálverk
skilar af sér góðu og fallegu verki
Gísli V. Eggertsson
Málarameistari