Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Side 32
Helgarblað 17.–20. febrúar 201728 Fólk Viðtal það. Það fyrsta sem ég spurði Anton að var hvort að hann sæi eitthvað. Þó svo að hann hafi verið mjög illa farinn og skaðbrenndur skiptu aug- un mestu máli á þessum tímapunkti. Áfallið kom svo þegar hann sagði: „Nei, ég sé ekkert“.“ Skömmu síðar kom sjúkrabíll í forgangsakstri frá Selfossi. „Þeir fleygðu honum upp í bílinn og brenndu síðan beint í bæinn. Mamma hans fór með í bílnum en áður en þau lögðu af stað greip ég í hann og spurði: sérðu pabba? „Já, ég sé ljós,“ sagði hann en ég vissi að það gat ekki verið rétt.“ Haldið sofandi í tvo sólarhringa Kæli- og verkjameðferðin byrjaði í sjúkrabílnum og um leið og komið var á bráðamóttökuna fór hreinsunarferlið af stað. Í fyrstu höfðu læknarnir mestar áhyggjur af því að öndunarfærin hefðu brunnið en svo var ekki. Fljótlega eftir komuna á bráða- móttökuna byrjaði Anton að segja brandara. Hann sagði að þar sem hann liti út eins og gaurinn í Dead- pool þyrfti litli bróðir hans að sjá hann. „Nú er ég fín forvörn fyrir hann.“ Gunnar segir að kvöldið og nóttin hafi, þrátt fyrir létta lund sonarins þessa fyrstu klukkustund eftir slysið, einkennst af yfirþyrmandi ótta um framtíð Antons en á þessum tíma- punkti var óvíst hvort hann myndi ná sér að fullu. Morguninn eftir var Anton svæfður. Honum var haldið sofandi i öndunarvél í tæpa tvo sólar hringa á meðan teymi lækna og hjúkrunarfólks gerði að sárum hans. „Hann var aðallega svæfður til að hlífa honum fyrir sársauk- anum. Ystu lögin af húðinni voru fjarlægð og hún hreinsuð upp. Þá var gerð aðgerð á aug- anu sem glerbrotið fór í og fósturfylgjur settar yfir augað þar sem hornhimnurn- ar höfðu verið,“ segir Helga en fyrstu dag- ana var mjög tvísýnt um hvort Anton fengi sjónina aftur. Langar að verða flugmaður Fyrstu vikuna mátti Anton ekki opna augun nema þegar augnlæknarnir settu dropa í þau. Hann segir þessa fyrstu daga vera í mikilli móðu þar sem hann var gríðarlega kvalinn þrátt fyrir að vera á sterkum verkjalyfjum. „Ég hugsaði stöðugt um það hvort ég væri orðinn blindur. Ég þorði samt ekki að spyrja en hafði miklar áhyggj- ur af því að hugsanlega myndi ég aldrei fá bílpróf. Mig langar líka að verða flugmaður og á þessum tíma- punkti var ég handviss um að það yrði aldrei. Ég hugsaði mikið um þetta þegar ég var að reyna að sofna á kvöldin. Þetta var ömurleg tilfinning.“ Líkt og fram hefur komið var ástandið tvísýnt fyrstu dagana. Yngri systkini Antons fengu ekki að hitta hann fyrr en nokkrum dögum eftir slysið sökum þess hversu illa hann var farinn í andlitinu. „Þau hittu prest áður en þau fóru inn á sjúkrastofuna. Litli bróðir hans, sem er níu ára, fór að hágráta og var mjög hræddur. Hann hljóp aftur út þar sem honum þótti Anton svo hræðilegur í framan,“ segir Helga en þau Gunnar vöktu yfir Antoni fyrstu sólar hringana eftir slysið. „Hann var svo kvalinn og þetta með sjónina var okkur öllum gríðar- lega þungbært. Á einu augnabliki umturnaðist veröldin eins og við þekktum hana. Það er ekki hægt að lýsa með orðum hvernig manni líður þegar barnið manns lendir í svona. Það fer allt á hvolf. Þá reyndist þrettándinn honum gríðarlega erfiður. Þann dag var mikið sprengt og við heyrðum það á Barnaspítalan- um.“ Bataferlið sársaukafullt Á sjöunda degi opnaði Anton annað augað í fyrsta skiptið eftir slysið. Þá sá hann bróður sinn sitja við rúm- gaflinn. „Ég var mjög glaður en hélt því samt leyndu í smástund af því að ég mátti tæknilega séð ekki opna augun strax.“ Og eftir það fór batinn að ganga hraðar. Verkirnir minnkuðu samhliða því að sárin greru hratt og örugglega. Hægri höndin á Antoni, sem fór mjög illa í brunanum hefur gróið svo vel að lýtalæknirinn hans kveðst varla hafa séð annað eins. „Þetta var annars og þriggja stigs bruni og það sér varla á henni í dag. Þetta er alveg ótrúlegt,“ segir Helga og bætir við að sjúkraþjálfari Antons hafi sömuleiðis verið furðu lostinn yfir því að hann væri búin að ná upp færni sem tekur alla jafna lengri tíma á aðeins nokkrum dögum. „Fyrst sá hann mjög óskýrt. En í dag er hann er kominn með 100 pró- sent sjón á hægra auganum og 70 prósent á vinstra. Þetta hörmulega slys mun því ekki hafa áhrif á hvort Anton komist í flugnám. Hann er samt undir miklu eftirliti og við bind- um vonir við að sjónin á vinstra aug- anu eigi eftir að batna. Það er samt óvíst. En miðað við hvað hann hefur verið fljótur að ná sér hingað til þá leyfum við okkur að vona.“ Síðastliðinn föstudag voru saum- arnir teknir úr auganu sem gler- brotið skarst í og í dag, föstudag, fer Anton í fyrstu lýtaaðgerðina af fjöl- mörgum þar sem læknirinn ætlar að freista þessa að fjarlæga púðuragn- irnar sem eru grónar inn í húðina í andlitinu á Antoni. Versti óttinn varð að raun- veruleika Fjölskyldan er sammála um að allir hafi lært mikið af þessari skelfilegu lífsreynslu. „Ég á örugglega eftir að sprengja aftur en aldrei taka neitt í sundur,“ segir Anton. Gunnar segir að hann muni héðan í frá vera meira vakandi fyrir flugeldanotkun barna sinna. „Ég ofmat þroska hans til að umgangast flugelda og héðan í frá mun ég aldrei sofna á verðinum. Ég ætla aldrei að horfa upp á svona slys aftur.“ Þá segir Gunnar að það sé mjög fjarlæg hugsun að svona erfið lífs- reynsla geti bankað upp á fyrirvara- laust. „Það sem ég óttaðist mest var að koma að barninu mínu svona. Og svo gerist það. Ég man varla eftir fyrstu fjórum sólarhringunum. Svefnleysi, ótti og hugsanir um það hverjar af- leiðingarnar af slysinu yrðu. En þetta gerist og ég bið fólk um að gæta vel að börnunum sínum og ræða við þau um þessa hluti. Það er svo mikið í húfi.“ n Gríðarlegur kraftur Hér er húfan sem Anton var með þegar slysið átti sér stað. Krafturinn í sprengingunni var mjög mikill. „Á einu augnabliki umturnaðist veröldin eins og við þekktum hana. Vilja að fólk læri af þessari erfiðu reynslu Helga Ísfold Magnúsdóttir hefur staðið þétt við bakið á syni sínum. Mynd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.